Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1976, Qupperneq 30

Heima er bezt - 01.05.1976, Qupperneq 30
RÖGNVALDUR S. MÖLLER FORTlÐIN GLEYMIST 3. HLUTI — Ég er í Reykjavík, svaraði Magga sneglulega. — Ég fór þangað strax og fékk þá vinnu í frystihúsi. Svo komst ég í kvöldafgreiðslu í fjölsóttu matsöluhúsi, og þar er nú líf og fjör, maður. — Gekk þér vel að fá leigt? Mér er sagt að erfitt sé að fá húsnæði í Reykjavík? —• Ég var svo heppin að hitta stelpu á leiðinni suður, og hún var búin að fá sér leigt. Þegar til kom var herbergið svo stórt, að hún varð fegin að láta mig hafa það með sér, og það gengur ágætlega hjá okkur. Þær voru nú komnar að tjaldinu, og Sigríður bauð henni inn og tók fram mat, sem Magga fór að hakka x sig án nokkurrar hæversku, en ekki leyndi sér að hún var glor- soltin. — Og hvernig er það með fæðið? Eldið þið sjálfar handa ykkur? hélt Sigríður áfram. — Eldum við handa okkur? tók Magga upp eftir henni. — Nei, ég held nú ekki. Ég fæ mér eitthvað á kvöldin, þegar ég er að afgreiða, og þegar ég vakna á daginn fæ ég mér kók og eitthvað með því. Ég kann ekkert að matbúa og hef skömm á slíku veseni. Nei, ég skemmti mér ágæt- lega, þegar ég er ekki að vinna. —• Hvernig getur þú skemmt þér? Það hlýtur að vera búið að loka öllum skemmtistöðum, þegar þú hættir að vinna á kvöldin? Og ég hef aldrei heyrt um neitt skemmt- anahald fyrri hluta dags, hvorki í Reykjavík né annars staðar, sagði Sigríður, um leið og hún hellti kaffi í bolla handa þeim. Magga hló og þurrkaði sér um munninn með handar- bakinu. — Þú ert nú svoddan óskapar flón á öllum sviðum. Þú hefur aldrei fylgst með í neinum skemmtunum, og ekki einu sinni þorað að vera með strákum, vesalings sveita- beibíið. Þegar ég er búin að vinna á kvöldin, þá hitti ég vanalega strák, og með honum er ég svo fram undir morgun. — Hvað gerir hann, þessi strákur, sem þú ert með, og hefur tíma til að svalla á hverri nóttu? — Vitlaus ertu! Heldurðu að ég sé alltaf með sama stráknum? Ne-hei, góða mín! Stundum mæli ég mér mót við einhvern, áður en ég fer úr vinnunni, en stundum kallar einhver gæinn í mig út um blíglugga, þegar ég er á leið heim. Þessir gæjar eiga alltaf eitthvað að lepja í bílnum eða heima hjá sér, svo úr þessu verður ágætis skemmtun. Stundum lendi ég með mörgum krökkum í hörku partíi he'ma hjá einhverju þeirra, og þá er nú lifað hátt. Þú ættir bara að vita hvernig er heima hjá ríka fólkinu. Oft eru karl- inn og kerlingin ekki heima, svo við höfum flottar íbúðir til að djamma í. Þá er nú lifað, maður. Sigríður hristi höfuðið. Henni leist ekki á þetta lífemi Möggu. Hún hafði víst aldrei góð verið, en ekki hafði hún batnað við brottförina frá Ærnesi. Það var víst satt, sem Þórarinn sagði, að Möggu væri ekki viðhjálpandi. — En, Magga mín, sagði hún svo, — hvernig stendur á því, að þú ert hérna, og hvernig ætlar þú að komast suður aftur? — Ég fékk fjögurra daga frí og lenti þá með fimm krökk- um öðrum í svaka fínni kerru, og með þeim fór ég langt norður í útilegu. Svo í gærkvöldi, í bakaleiðinni, komum við í eitthvert félagsheimili hér skammt frá. Það var dálítið í kollinum á mér og ég ráfaði út, en þá sá ég þar svo fallega hesta, að ég bað mennina, sem með þá voru, að lofa mér aS koma á bak. Þeir gerðu það strax og það endaði með því, að þeir fóru með mig langa leið í einhvern kofa, þar sem þeir geymdu mat og nokkrar vínflöskur. Það fór svo, að ég gleymdi mér alveg, ég drakk með mönnunum og var góð við þá, og þegar við komum aftur að félagsheimilinu voru allir farnir þaðan, krakkarnir hafa líklega leitað eitthvað að mér, en haldið svo áfram suður. Ég fór svo aftur með mönnxm- um í kofann og þar sváfum við eitthvað, og síðan í morgxm höfum við verið á leiðinni hingað. — Magga mín, segir Sigríður blíðlega, — hefurðu aldrei hugsað út í það, að þú eyðileggur alveg heilsu þína og mannorð með þessum lifnaði? Þér hlýtur að líða hræðilega illa eftir allan þennan drykkjuskap, og þú færð slæmt orð á þig með þessu líferni. Það hlýtur að fara svo, að þú færð ekki vinnu sökum óreglu, og enginn almennilegur piltur lítur ó stúlku, sem er allra gagn. Þú verður eitthvað að fara að hugsa um framtíð þína. — Þá ferðu nú enn að byrja með þínar siðapredikanir, hreytti Magga út úr sér. — Ég hugsa hvorki um heilsu eða mannorð, heldur frelsið. Eg vil engin bönd eða hömlur. Ég er ánægð og frjáls eins og er, og það er mér nóg. Mig varðar ekkert um, hvað um mig er talað. Þú getur verið eins og beljurnar þínar, verið á sama básnum og notast við sama nautið alla þína ævi. Frelsið er mér fyrir öllu, og mig varð- ar ekkert um, hvað aðrir segja. — En hefur þú nokkurn tímann hugsað út x það, Magga mín, hvað yrði um þig, ef þú misstir heilsuna? sagði Sig- ríður sefandi. — Og hvernig færir þú að, ef þú yrðir ófrísk, eins og alltaf getur komið fyrir? Ég tel, að þú ættir að 174 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.