Heima er bezt - 01.06.1981, Page 7
Afrek Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum í Melbourne vöktu mikla athygli hér heima. Hér tekur Sigurður á
móti Vilhjálmi á flugvellinum og var því samtali útvarpað beint til landsmanna.
þetta, en svo hlóð þetta svo óskaplega utan á sig. Fyrst var
svo til eingöngu lýst fótbolta, en síðar var farið að lýsa
frjálsum íþróttum, sundi, körfubolta, skíðaíþróttum o. s.
frv. Þetta var því algjörlega orðið ofviða einum manni, og
raunar er það furðulegt að enn þann dag í dag skuli einum
manni vera ætlað að sinna þessu hjá útvarpinu. fþróttir eru
bæði vinsælar og ekki síst mjög yfirgripsmikið efni. Ef gera
á þeim góð skil þarf mikla vinnu og meðan aðeins einn
maður sér um þetta, þá gengur þetta fram af honum á
stuttum tíma.“
— Hvað er þér eftirminnilegast úr starfinu?
„Utanlandsferðirnar eru nú sennilega sá hluti starfsins,
sem maður man best eftir. Brússel mótið 1950 var mjög
skemmtilegt, en þá áttu íslendingar þar tíu keppendur sem
voru svo til allir í sviðsljósinu allan tímann og tveir urðu
Evrópumeistarar, Torfi Bryngeirsson og Gunnar Huseby.
Þá var örn Clausen í aðalhíutverki í tugþrautinni og var nú
klaufi að vinna ekki Evrópumeistaratitilinn, en hann gaf
sig á 1500 metra hlaupinu í lokin. Þá var keppnin í Ósló
árið eftir skemmtileg, þegar fslendingar unnu Dani og
Norðmenn á einu bretti í frjálsum íþróttum. Eftirminni-
legasti fótboltaleikurinn er sennilega leikur í Kalmar 1954,
þá höfðu Svíar og fslendingar aðeins einu sinni leikið
landsleik áður og þá unnu íslendingar alveg óvænt. Þarna
var því röðin komin að Svíum að hefna sín og voru þeir
með geysilega sterkt lið þegar þarna var komið sögu og
höfðu í vikunni áður unnið Finna í Helsinki 11:0. Ég var
því mjög myrkfælinn við þennan leik og allir auðvitað
logandi hræddir, bæði leikmenn og aðstandendur. Ég ætl-
aði að komast svolítið ódýrt frá þessum leik og senda hann
ekki beint út, heldur taka upp lýsinguna á band og senda
hana eftir á. Ég ætlaði bara að lýsa byrjuninni og hætta
síðan þegar staðan væri orðin svona 6:0 og segja svo bara í
lokin: „Mörkin urðu þetta mörg og þessir skoruðu, þessu er
lokið, veriði sæl.“ En Svíarnir skoruðu bara tvö mörk í fyrri
hálfleik og mér finnst það ekki nóg svo ég held áfram að lýsa
leiknum. Ég meira segja hætti ekki í leikhléinu. Þetta var
nefnilega svolítið erfitt tæknilega, því lýsingin var send á
línu til Stokkhólms og tekin þar upp á band. Ég notaði því
leikhléð til alls kyns hugleiðinga um fólkið sem þarna var
og umhverfið. f seinni hálfleiknum jafna fslendingar og
voru þar að verki þeir Þórður Þórðarson og Ríkharður
Heima er bezt 191