Heima er bezt - 01.06.1981, Page 17

Heima er bezt - 01.06.1981, Page 17
A Heilagsdal. mannagjá og Hafragjá. Langan tíma var verið að leita uppgöngu á vestari barmi gjárinnar, en alls staðar voru þverhníptir hamrar, þar til þeir sáu klif og komust þeir þar upp, og þar fundu þeir þrjú vörðubrot. Klifið hefur sýnilega verið rutt einhvern- tíma, en grjót hafði fallið í það úr börmunum. Frá klifinu voru siðan vörðubrot í beina stefnu við og við í Fremrinámur. Undarlegt er að byggðamenn hafi aldrei orðið varir við þessar vörður enda þótt þeir hafi farið oft þarna nálægt í fjallaleitir í Grafarlönd. Sveinagjá, sem þarna er ögn vestar, reyndist þeim félögum mjög erfið yfirferðar vegna sprungna og hrauns, en fleiri vörður fundU þeir ekki. Árið 1933, eða um það bil. var Pálmi Hannesson á ferð um Ódáða- hraun ásamt Steinþóri Sigurðssyni. Fóru þeir yfir Jökulsá á ferju, sem flutt hafði verið árið 1930 á gamla ferjustaðinn við Ferjufjall í tilefni Al- þingishátíðarinnar. Á grjótunum vestur frá Ferjufjalli rákust þeir á vörður og röktu þær vestur í skarðið við Veggjafell. Pálmi er svo með ýmsar vangaveltur um framhald leið- arinnar vestur um Ódáðahraun. f kringum árið 1940 er Ólafur Jónsson á ferð norðan Herðubreiðar- fjalla og fann þá klif það í Hafragjá sem Þorvaldur Thoroddsen getur um. Segir Ólafur þetta að öllum líkindum vera örnefnið Bræðraklif, sem minnst sé á í gömlum landamerkjaskrám. Framhald í næsta blaði. Hliðið á Kerlingadyngju. Heima er bezt 201

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.