Heima er bezt - 01.06.1981, Blaðsíða 36
HVAD GERÐIST Á AkuREVRI?
Um þessar mundir er að koma út ný bók hjá
Bókaforlagi Odds Björnssonar, Árbók Akureyr-
ar. I bókinni er gerð grein fyrir öllu því helsta
sem gerðist á Akureyri á árinu 1980 í máli og
myndum. Fréttir ársins eru raktar í tímaröð og
þjóna Ijósmyndir stóru hlutverki við að koma því
efni til skila. I bókinni eru einnig lengri greinar
um einstaka málaflokka sem ofarlega voru á
baugi í bænum og var leitað til margra mætra
manna um ritun greina. Fjalla greinarnar um
skipulagsmál, dómsmál, félagsmál, verkalýðs-
mál, skólamál, stjórnmál, atvinnuvegina, fjöl-
miðla, menningarstarf ýmis konar, íþróttir,
félagslíf og tómstundir. Einnig eru birt atriði úr
kirkjubókum um fermingarbörn á Akureyri og
látna Akureyringa. Lokakafli bókarinnar er
uppsláttarkafli, þar sem ýmsum upplýsingum
um stofnanir og þjónustu á Akureyri er raðað í
stafrófsröð. Vanti einhverjar upplýsingar úr
honum er mjög auðvelt að fletta þar upp.
Markmiðið með útgáfu Árbókar Akureyrar er
að safna saman á einn stað fréttum ársins og
umræðu um málefni sem ofarlega voru á baugi.
Meginstefnan við vinnslu bókarinnar hefur verið
að segja rétt og hlutlaust frá, án tillits til stjórn-
mála eða hagsmunahópa.
Árbók Akureyrar er ekki bara fyrir Akureyr-
inga, hún er fyrir alla þá sem vilja fylgjast með
því sem er að gerast í þjóðlífinu.
Ég óska eftir aö kaupa Árbók Akureyrar:
Nafn _____________________________________________________
Póstfang__________________________________________________
□ Sendi hér meö kr. 80,00.
□ Sendið mér bókina í póstkröfu.
Viljir þú síður klippa þetta út úr blaðinu getur þú allt eins
skrifað pöntun þína á laust blað og sent okkur.
Utanáskriftin er: Bókaforlag Odds Björnssonar,
pósthólf 558, 602 AKUREYRI.