Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 35
GUNNAR cBJARNASON • °RÁDUNAUTUR
^mttbók^
cp °s
öai
CISKENZKA ^HESfSÍNS °A 20. OED
lARUS
IGRÍMSTUNGU
GY1JF1 ÁSMUNDSSON
bjó til prentunar
Æ
GUNNAR
BIARNASON
ÆTTBÓK OG SAGA
ÍSLENSKA HESTSINS Á 20.ÖLD
EFTIR GUNNAR BJARNASON
LÁRUS í GRÍMSTUNGU
GYLFI ÁSMUNDSSON
BJÓ TIL PRENTUNAR
LÍKABÖNG HRINGIR
EFTIR GUNNAR BJARNASON
Þetta er þriðja bindi hins viðamikla rit-
verks Gunnars Bjarnasonar ráðu-
nauts. Þessi bók er sérlega glæsileg
í alla staði og nauðsynleg öllum
áhugamönnum um íslenska hrossa-
rækt.
í þessu bindi er haldið áfram, þar
sem frá var horfið í öðru bindi, við að
fjalla um kynbótahryssur. Hér eru
birtar lýsingar á flestum skráðum og
völdum undaneldishryssum landsins
frá aldarbyrjun fram til ársins 1970.
Fjallað er um ættbókarfærðar hryss-
ur frá Eyjafirði og austur um, allt til
Borgarfjarðar.
í bókinni er einnig starfssaga
Gunnars, eins og í hinum fyrri. Þar er
mikið fjallað um útflutning hrossa og
baráttu Gunnars við að vinna ís-
lenska hestinum markað erlendis.
Verö kr. 700,00
Lárus Björnsson í Grímstungu í
Vatnsdal er einn þeirra manna sem
hefur orðið þjóðsagnapersóna í lif-
anda lífi. Hann er fyrir löngu orðinn
þjóðkunnur maður, ekki þó fyrir þá
verðleika, sem flestir verða þekktir
fyrir, svo sem embættisstörf, skáld-
skaþ eða íþróttir, heldur vegna per-
sónueiginleika, sem höfða beint til ís-
lendinga og vekja ímyndunarafl
þeirra og aðdáun. Sagan segir að
hann hafi verið fjárríkasti bóndi
landsins. Sagan segir líka, að hann
eigi svo mörg hross, að ekki verði tölu
á komið. Sagan segir, að á heiðinni
þekki hann hvern stein og hverja
þúfu, að hann sé ratvísari en fuglinn
og klókarientófan.
Verð kr. 350,00
í þessari bók segir Gunnar Bjarnason
ráðunautur frá eins árs skólastjóra-
dvöl sinni á Hólum í Hjaltadal, for-
sögu þess og eftirmála. Skólastjórn-
artíð hans þar var um margt söguleg
og endaði með því að flokksbróðir
hans og þáverandi landbúnaðar-
ráðherra, Ingólfur Jónsson á Hellu,
hrakti hann frá störfum. Mikil blaða-
skrif voru um þessi mál á sínum tíma,
sem jöðruðu við að vera rógsherferð
áhendurGunnari.
í þessari bók jafnar Gunnar
reikningana, hann svarar fyrir sig af
krafti. Eflaust mun einhverjum svíða
undan höggum hans, því ritstíll hans
er brýndur með háðsku ívafi.
Verð kr. 330,00
ÚKflFORLHGSBJEKI