Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 30
Ekki vantaði kjötið þó oft væri hér margt um manninn. Það var lógað hér um 60-70 kindum, mest sauðum og geldum ám. Það var kallaður 1 skurður að drepnir voru 12 sauðir tveggja vetra og stundum um 20 i skurði. Það þótti þægi- legra að hafa ekki meira í einu. Kaupstaðarferðir Ég fór 9 ára að fara í kaupstað til Vopnafjarðar með fullorðnum manni til að standa undir og höfðum við Einar Bjömsson, nú bóndi á Eyvindarstöðum, sem þá var hér búherra hjá föður mínum (eða vinnumaður á lélegri ís- lensku). Við vöktum miskunnarlaust, lögðum saman nætur og daga. Það var fyrst áð á Arnarvatni, sem þá var kallaður Skálamór. Þar var sprett af öllum hestum og hvílt lengi. Svo fórum við áfram út í Ytri-Hlíð eða Vakursstaði. Það var ánægulegt að koma þar á brúnina að morgni þegar farið var að rjúka. Og sjá Sigurjón Hallgrímsson, þennan fjör- lega og snyrtilega gestrisnuhöfðingja koma brosandi upp- fyrir garðinn til að taka niður og spretta af öllum hestunum. í ullarferðinni sem kölluð var, voru oft þungar klyfjar 4 pokar á hesti, troðnir af ull eða þá 2 rúgsekkir sem vógu 70 kíló á hest. Þá spillti nú ekki þegar inn í bæinn kom til húsfreyjunnar, Valgerðar Guðfinnu Helgadóttur, sem var ættuð úr Mývatnssveit, glæsileg kona og myndarleg á allan hátt. Þar var ennfremur önnur kona við eldhúsborðið, glöð og góð, sem Guðlaug hét, af Krossavíkurætt, náfrænka konunnar minnar. Og þá var ekki síðra að koma í Vakurs- staði, fyrstu árin mörg, til heiðursmannsins Vigfúsar Jóns- sonar og Amþrúðar systur hans. Þá var þar ennfremur Björn Pálsson, gullsmiður, sá ágæti og skemmtilegi snill- ingur, sem bjó þar mörg ár með Vigfúsi. Ef að eitthvað kom gott á Vopnafjörð, sem menn höfðu ekki haft, þá var það oft ef Vigfús á Vakursstöðum var í kaupstað, og búinn að taka út á hestana, þá skildi hann eftir bundnar klyfjarnar. Því þá þurfti hann að færa honum Birni eða honum Sig- urjóni af þessu ágæti. Vigfús var óvanalega mikill höfðingi í öllum viðskiptum og þannig að það þótti öllum vænt um hann. Og ef einhverjir vesalingar voru sem fáir vildu hafa, þá tók Vigfús þá, var ekki verið að hrekja þá burtu aftur fyrr en í kistuna. Yfirleitt var óvanaleg gestrisni á báðum þessum bæjum, bæði með veitingar og hestlán, og svo að hjálpa okkur að búa uppá hestana. Á vetrum í ekiferðum kom það oft fyrir að (dalurinn) Vesturárdalur var auður og þurfti þá að fá hesta til að flytja á uþpá brún utan af Vopnafirði. Þegar maður bað Vigfús um hesta, var hann stundum vís að segja: „Fjöllungar eru nú alltaf með það,“ því hann var svo hreinskilinn og elskulegur gagnvart öllum mönnum og skepnum. Þetta var auðvitað alveg satt og rétt gagnvart hestunum. En svo sagði hann strax á eftir: „Taktu hann Jökul, taktu hann Brún“. Svo sendi hann einn eftir þeim, svo mátti maður hafa þá eftir það, þar til allt var komið uppá brún vestan Vestur- dals, og aldrei um borgun að ræða með neitt hjá Vigfúsi og þeim frændum Sigurjóni. Einnig var okkur tekið afar vel ætíð á Vopnafirði þar sem við héldum til í það og það skiptið, allsstaðar sami höfð- ingsskapurinn. Vopnafjarðarsveit er yfirleitt mjög mikil gestrisnissveit, þó það sé auðvitað eitthvað ögn mismun- andi. Nú, þegar þetta er skrifað, er bílvegur kominn út austursveitina og gestanauðin því komin meiri þeim megin, í Burstarfell, Teig, Hof og Ásbrandsstaði. Á seinni tíð eða á eftir Vigfúsi á Vakursstöðum bjuggu þar Elísabet Sigurðardóttir, bróðurdóttir hans og Pétur Ólafsson maður hennar, og ekki var rausnin minni hjá þeim, þau voru hvort öðru elskulegra við gesti sína, og greiðvikin með afbrigðum. Elísabet býr þar ennþá og er alltaf söm við sig. Sama íslenska höfðingslundin, sama aðalsblóðið og í gamla Vakursstaðafólkinu. Þakka ég þeim öllum lífs og liðnum er móti mér tóku. Vetrarferðirnar voru oftast erfiðar og mjög leiðinlegar eins og allar kaupstaðarferðir, ætluðu mann lifandi sundur að slíta, og er ekki rétt að segja neitt af hverri sérstakri, það yrði of langt mál. Að endingu langar mig að minnast á eina kaupstaðar- ferð, þá ég fimmtugur unglingur var. Þá lét ég fara 30 hesta í kaupstað á Kópasker, alla undir ull. Með lestinni voru 3 menn fullorðnir og dóttir mín, rúmlega fermd, 16 ára. Þeim þótti ævin ill, og allt vildi af göflum ganga, og var þó mest allur reiðskapur nýr og í ágætu lagi, en það fór ört niður samt. En það var gaman að sjá flotann, 4 hestum var riðið með og 7 voru heima, en einn var aðkominn — tamninga- hestur. Fjárrekstrar á haustin Þá voru nú fjárrekstrarnir á haustin ekki betri. Þeir gengu of illa og ganga illa ennþá t.d. síðastliðið haust (1950) varð svo ægilegur kostnaður við að flytja féð á bíl- um, að verðið þeirra fór mest í að borga bílana og fóður- vörur sem á þeim voru. Svo kom þessi fellisvetur sem ætlaði að verða, hefði ekki flugvélar, snjóbílar og ýtur bjargað. Mitt á milli vöggunnar og hjónarúmsins Veturinn þá ég var á 13. árinu passaði ég fyrst einn öll lömbin hérna, um 170 lömb. Þar af voru nálega helmingur geldingar. Þeim gaf ég alltaf einu hneppi meira en gimbrunum og veitti ekki af. Eyjólfur Marteinsson sem þá bjó að Rangalóni hér næsta bæ, gaf mér þann vitnisburð að lömbin væru vel pössuð og ágæt á hold, en þó furðu lítið gefið. Fór fyrst að heiman Haustið 1893 lét Hróðný Einarsdóttir föðursystir mín reka allt sitt sauðfé frá Amórsstöðum norður að Hálsi í Fnjóskadal. Því séra Einar Pálsson sonur hennar hafði fengið veitingu fyrir staðnum, þann 7. maí um vorið. Hróðný og ráðsmaður hennar, Jón Kjartansson, og 3 börn hennar, Helga Pálsdóttir, Jón Pálsson og Björn Pálsson fluttu öll norður að Hálsi til þeirra hjóna, Jóhönnu Katrínar Kristjönu Eggertsdóttur Briem og séra Einars Pálssonar, og voru öll hjá þeim til dauðadags. Föður- 102 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.