Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 12
Organistinn og klerkurinn. Sigríður ásamt sóknarpresti
Húsvíkinga, séra Birni H. Jónssyni.
góðar gjafir. Öllu því fólki, sem hefur sungið í kórum hjá
mér, er ég af hjarta þakklát.
Að síðustu ein smá saga úr Grundarkirkju:
Vetur einn, er sr. Benjamín Kristjánsson var að messa,
fór rafmagnið er hann var að halda ræðuna. Kveikt var í
flýti á fleiri kertum, bæði fyrir prestinn og söngfólkið. Lauk
hann við ræðuna og við hófum sönginn, sem í þetta sinn var
„Verði ljós“. Er við höfðum lokið við fyrstu hendinguna,
varð allt í einu bjart um alla kirkju, því þá kom rafmagnið.
Fannst okkur þetta skemmtileg tilviljun.
Ég óska þess, að í framtíðinni verði unga fólkið fúst að
koma í kirkjuna sína og syngja Guði sínum lof og dýrð. Það
hefur góð áhrif á alla.“
HUNDURINN
BOKBFORLUGSBOK/
eftir Mark Watson
Leiðarvísir
um
meðferð
hunda
Verð kr. 50,00.
SIGILD
BÓK
FYRIR
HUNDAEIGENDUR
84 Heima er bezl
BÓKAFORLAG ODDS
BJÖRNSSONAR
AKUREYRI