Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 34
það allt veí fram í bókinni, en þó hygg ég
Pétur hafi verið helst til nískur á að telja
fram öll þau gamanmál, sem hann á í
fórum sínum. En allt um það verður því
ekki neitað að þeir Indriði og Pétur hafa
gert hér skemmtilega bók, en fyrir óbíl-
fróða menn er fullmikið um bíla, bilanir
og varahluti, og kemur þar fram sameig-
inlegur áhugi sögumanns og skrásetjara.
En mörgum mönnum og atvikum er lýst á
skemmtilegan og skilningsríkan hátt.
Nokkur lýti er að sums staðar er rangt
farið með nöfn t.d. verður Svartárkot í
Bárðardal að Skógarkoti og Valgerður á
Hofi er nefnd Auðbjörg, og eitthvað fleira
mætti til tína, og aldrei hefi ég heyrt
Hallgilsstaði í Hörgárdal talda til
Brekkutorfu. Þetta eru að vísu smámunir,
sem mátt hefði laga.
Frásagnir
Þórarins ylja
hverjum manni
um hjartarætur
Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum:
HORFT TIL LIÐINNA STUNDA.
Rvík 1981. öm og örlygur.
Þessi minningabók Þórarins skólastjóra
frá Eiðum er ekki æfisaga, heldur sund-
urlausir minningaþættir um ýmis atvik úr
æfi höfundar, og minningargreinar um
samferðamenn. Víða er komið við allt frá
baðstofunni á Valþjófsstað í bernsku höf-
undar til Péturskirkjunnar í Róm og
páfagarðs, en höfundur hefir víða farið og
skoðað margt með athugulum augum og
skilningi meira en ferðamönnum er títt.
Minningargreinar eru allmargar og góðar,
en mest þykir mér koma til greinanna um
Pál Hermannsson á Eiðum og síra Sigur-
jón Jónsson í Kirkjubæ, og enginn hefir
skrifað betur um Jón í Möðrudal en Þór-
arinn. En ég sakna þess, að ekki skuli vera
meira sagt frá skólastarfinu á Eiðum. Öll
er frásögn Þórarins hin skemmtilegasta,
og blandar hann þar saman alvöru og
góðlátlegu gamni, enda er hann gleði-
maður og ætíð reiðubúinn að hressa um-
hverfi sitt með gamanmálum og söng, þar
sem hann kemur, og þeir þekkja best, sem
verið hafa með honum á mannamótum.
Það er góður fengur að bók Þórarins, hún
sýnir ljóslega, hvernig gagnmenntaður
maður lítur á samtíð sína og lífið í kring-
(Framhald af bls. 74)
um, að hún eigi ekki stóran hóp and-
stæðinga, jafnvel litlu færri en fylgis-
menn. Sumir menn eru svo harðir í
sinni stjórnarandstöðu, að þeir sjá
engan hvítan blett á gjörðum stjórn-
arinnar eða henni sjálfri, og þeir
leggja sig fram um að vinna gegn
henni. En engu að síður greiða þeir
henni fúslega daglegan aukaskatt,
sem nemur tugum króna og láta sér
ekki hvarfla í hug að svifta hana þeim
stuðningi. Allar ríkisstjórnir skatt-
leggja borgarana með því að selja
þeim tóbak og áfengi, enda þótt þær
viti að með því er verið að spilla heil-
brigði þjóðarinnar og rýra hag ein-
staklinganna, og hafa má það fyrir
satt, að því ráðlausari sem hver ríkis-
stjórn er og blindari á hvað gagna
muni efnahag þjóðarinnar því ákafari
verður hún í að hækka verð á þessum
vörum og nota sér þannig mannlegan
veikleika. Það hneykslar oss, að
leynivínsalar selja áfengi, jafnvel
unglingum, við okurverði, en vér
segjum já og amen við samsvarandi
atgerðum ríkisstjórnanna.
Flestum mönnum er í blóð borið,
að vilja ekki valda samfylgdarmönn-
um sínum óþægindum eða tjóni.
Þessu gleyma reykingamenn alltof oft
enda þótt þeir séu í eðli sínu háttvísir
um sig með skilningi og bjartsýni, sem
raunar kemur fram í öllum málum, sem
hann snertir við, en kannske þó hvergi
eins og í skógræktarmálunum. En þótt
höfundur taki að eldast þá væntum vér, að
hann megi enn lengi geyma ónotaða
lerkiviðarkistuna sína, sem myndin er af í
bókinni, og segja oss margt fleira af litríkri
æfi. Frásgnir hans ylja hverjum manni um
hjartarætur.
menn eða að minnsta kosti vilji vera
það. Þeir hika ekki við að spilla and-
rúmsloftinu kringum sig, og valda þar
hinum, sem ekki reykja, óþægindum
eða jafnvel spilla heilsu þeirra. Fæstir
hugsa út í þetta en kasta frá sér síga-
rettunni, ef þeir eru beðnir þess.
9. mars var reyklaus dagur. Þjóð-
trúin sagði að öskudagurinn ætti „átj-
án bræður líka sér“. Vel má vera að
reyklausi dagurinn eigi það einnig, og
hann geti af sér aðra 18. Og þegar þeir
bræður allir eru komnir í halarófu,
verður eftirleikurinn sífellt léttari, og
fyrr en varir er árið eða æfin öll orðin
reyklaus.
1 stuttu máli sagt:
Reykingamaðurinn spillir heilsu
sinni.
Hann spillir fjárhag sínum.
Hann styrkir málstað andstæðrar
ríkisstjórnar.
Hann veldur samfylgdarmönnum
sínum tjóni eða a.m.k. óþægindum.
Þetta allt flýgur manni í hug á
reyklausum degi, og einnig það að
einn reyklaus dagur getur ef til vill
orðið upphaf þess að firra hann öllu
þessu, og gera bæði honum sjálfum og
samferðamönnunum lífið léttara.
Minnumst þessa og sjáum hvað setur.
St. Std.
Reyklaus dagur
106 Heimaerbezt