Heima er bezt - 01.05.1983, Side 13

Heima er bezt - 01.05.1983, Side 13
Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Eyvindarstöðum Fátœki sveitadrengurinn sem varð bankastjóri Mig hefur lengi langað til að skrifa þessa sögu, sem ég heyrði í œsku, en hvort hún þykir nokkurs virði verða aðrir að dœma um. Sagan er sönn og gefur ef til vill ofurlitla innsýn í það, hvernig líf og kjör munaðarleysingja voru stundum hér á landi fyrir meira en 100 árum. Eg held að okkur sé hollt að minnast þess stundum í því allsnœgta þjóðfélagi, sem við lifum nú í. Ég held ég hafi verið um það bil 9-10 ára er ég heyrði söguna, en ég tel mig muna hana að mestu orðrétta, eftir öll þessi ár. Það var seint á degi, í vonsku veðri um hávetur, að gest bar að garði á Eyvindarstöðum í Vopnafirði, æsku- heimili mínu, og baðst hann gistingar. Ætlaði hann að finna skyldfólk sitt, sem átti heima á Fljótsdalshéraði. En þar sem veðurútlit var ískyggilegt og gesturinn þurfti auðvitað að fara yfir hina illræmdu Hellisheiði eystri, vildi hann síður leggja á heiðina svo seint á degi. Þetta var góðkunningi okkar. Fæddur var hann og uppalinn á Fljótsdalshéraði, en þá löngu fluttur í annað hérað. Þessi maður hét Gísli, en af sérstökum ástæðum sleppi ég allri ættfærslu, þótt ég annars gæti það vel. Gisli var greindur maður og skemmtilegur, en ekki var hann veru- lega vinsæll, því hann þótti stundum dálítið illkvittinn og gjarn á að sletta til fólks, oft fyrir litlar sakir. En tryggur vinur gat hann líka verið og var hann okkur alltaf góður og sýndi okkur aldrei nema betri hliðina og sama var um ýmsa aðra er hann tók tryggð við, þótt hann ætti hitt til. Einn kost átti Gísli og hann reyndar ekki lítinn, en það var að hann var alltaf mjög góður öllum einstæðingum og lítilmögnum. Er kominn var háttatími segir Gísli við mömmu: „Áður en ég fer að hátta ætla ég að segja þér eina sögu að launum fyrir allan þann fróðleik sem þú hefur svo oft miðlað mér. Hef ég aldrei sagt neinum þessa sögu, nema mínu fólki, og kæri mig ekki heldur um að segja hana öðrum. Mér er það nóg, að ég hef þó einu sinni gjört gott verk, þrátt fyrir mína mörgu og stóru galla.“ Læt ég nú Gísla sjálfan segja frá: „Eins og þið vitið, er ég fæddur og uppalinn á Fljótsdalshéraði. Á næsta bæ við bæ foreldra minna bjó hrepp- stjóri sveitarinnar. Skammt var á milli heimila okkar. Hreppstjórinn var vel efnaður maður á þeirra tíma mæli- kvarða. Vinsæll var hann af öllu svo- kölluðu heldra fólki, því hann var höfðingjasleikja mikil og gaf hann slíku fólki oft stórgjafir, til að tryggja sér sem best vináttu þeirra. En annað mál var ef fátæklingar áttu í hlut eða þeir sem minna máttu sín, þá var hann mjög harður og óvæginn og víst mjög spar á líknarverkin. Og sama var að segja um konu hans. Eitt vor tóku þau hjón alveg mun- aðarlausan dreng, sem var niðursetn- ingur, sem kallað var. Var drengurinn ekki einasta búinn að missa báða for- eldra sína, heldur átti hann enga ná- komna ættingja og var hann búinn að vera í mörgum og misjöfnum vistum. Ég kynntist drengnum fljótt sökum þess hve skammt var á milli heimil- anna. Var hann mjög illa útlítandi og bar öll merki illrar meðferðar. Fljótt tók ég eftir því að hann myndi vera mjög góðum gáfum gæddur, enda átti hann kyn til þess. Fatalaus var hann að kalla, átti aðeins stagbætta og götuga garma og ekki einu sinni til skiptanna. Var hann lát- inn sofa í skoti í göngunum og hafði hann koddaræfil með heyrusli og teppisræfil undir sér og slitið og götótt brekán ofan á sér. Má nærri geta hvernig honum hefur liðið við slíka aðbúð. Mat fékk hann líka af skorn- um skammti og auðvitað það versta af matnum. Þessi drengur var látinn vinna mjög mikið, þótt ungur væri, en hann var lítið eldri en ég, og var það honum auðvitað ofraun og ekki síst við slíka aðbúð, sem hann hafði. Hann kom eins og ég sagði að vorlagi og leið oft mjög illa um sumarið. Þó tók út yfir er veturinn gekk í garð, sem var harð- indavetur. Þá varð hann að passa 30 sauði, sem hreppstjórinn átti, og var það alllangt frá bænum. Átti hann al- gjörlega að gjöra þetta einn, og meira að segja að standa yfir þeim í hvaða veðri sem var og halda þeim til beitar. Skammt var að fara frá heimili mínu að beitarhúsinu og fór ég þá oft að finna drenginn, því ég vorkenndi honum mjög, og hafði líka mjög gaman af að tala við hann því hann var svo skýr og skemmtilegur, þótt hann hefði auðvitað aldrei fengið að læra neitt. Urðum við miklir vinir. Oftast færði ég honum einhvern matarbita, sem mamma gaf mér, og Heima er bezt 157

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.