Heima er bezt - 01.05.1983, Side 25
um geimsins. Samkvæmt því eru
steinarog hólarekki hinir eiginlegu
bústaðir þessa fólks, heldur staðir
þar sem við eigum auðveldast með
að komast í samband við það, eins
konar ,,leiðslustaðir“. Þorbjörn Ás-
geirsson (Akureyri) hefur nýlega
túlkað þessa skoðun í HEB (7.-8.
tbl. 31. árg. 1981) í grein er hann
nefnir „Af hverju andaheimur?“,
og styðst þar við kenningar dr.
Helga Pjeturss.
Sjálfur hef ég ekki myndað mér
neina sérstaka kenningu um þetta,
en tel allar þessar skýringartilraunir
mjög athyglisverðar.
4
Er huldufólk gott eða illt?
Eflaust bæði gott og illt frá sjónar-
miði okkar mannanna, og fer það
líklega langmest eftir viðhorfi
okkar og breytni í garð þess. Það
virðist a.m.k. geta verið ákaflega
hefnigjarnt, ef það telur sér mis-
boðið, og staðfesta það margar
sögur. Það hefur ríka réttlætis-
kennd en er ekki að sama skapi
umhugað að fyrirgefa. Yfirleitt virð-
ast menn hafa litið það hornauga
fyrr á tímum og töldu oft nauðsyn-
legt aó blíðka það með gjöfum. Ekki
er fyrir að synja að það geti sumt
verið heldur illa innrætt, eins og
kallað er, rétt eins og mannfólkið,
en oftast sýnir það góðvilja að fyrra
bragði og launar velvild og greiða
margfaldlega.
Elísabet
Geirmundsdóttir
Hvers vegna?
Hvers vegna fæðist þú í þennan heim?
og þjáist, hatar, elskar, verður sæll.
Og spyrð án afláts — öðlast ekkert svar.
Ertu þá peð í tafli — lífsins þræll?
Hvers vegna ert þú innan veggja hér
einmana, sjúkur, bundinn rúm þitt við?
Og heyrir inn um opinn gluggann þinn
hvar elfa lífsins streymir þungum nið.
Hvers vegna skyldi höllin sem þú hlóðst,
og helgaðir þitt líf, hvern dropa blóðs,
hrynja á einu augabragði í rúst,
þitt æfistarf, þinn draumur, lag þíns óðs?
Hvers vegna berðu í brjósti þínu þrá,
að brjóta andans fjötra, verða frjáls?
En finnur hlekki hanga við þinn fót,
hvert sem þú snýrð þér er þér varnað máls.
Hvers vegna færðu ekkert, ekkert svar?
þín æfi er spurning lífið þegir við.
Skyldi það svara í eitt sinn fyrir öll,
er opnast þér að lokum dauðans hlið?
1951
Heimaerbezt 169