Heima er bezt - 01.05.1983, Síða 26

Heima er bezt - 01.05.1983, Síða 26
Yngsti ferðalangurinn við vinnu. REKAVIÐARREISA Elli hugði sem sé gott til fanga á eyrinni, hafði ekki komið þar í Drífu- leiðangrinum í fyrra. Blaðran fór þegar með tvo strandhöggsmenn ásamt tógum og tólum áleiðis til Lambeyrar. Þeir áttu að hefja undir- búning meðan lokið væri lestun af Miðeyri. Laust fyrir kl. 20.00, lauk henni. Hálftíma síðar var akkeri varpað við Lambeyri. Eyrin er all stór og uppi á henni lítið stöðuvatn eða fremur tjörn. Ekki er vatnið gott til drykkjar, salt og fúlt. Lending er heldur slæm. Fjöru- kamburinn stórgrýttur, raunar eyrin öll. og brattur. Skást er lendingin í dálitlum krika vestan á eyrinni. Ein- hverjar sagnir eru um, að á Lambeyri hafi verið búseta fyrr á öldum. Er það ekki ósennilegt. Stutt til fanga, fiskur og selur við landsteina, egg og fugl í björgunum. Staðurinn hefur vel hentað veiðimannaþjóðfélagi for- feðranna, en trúlega hefur verið ein- manalegt á útskækli þessum. Þó ber að hafa í huga, að einangrun, töluvert mismunandi, var þjóðinni í blóð bor- in. jafnvel litið á hana, sem sjálfsagð- an hlut, fylgdi þáverandi lifnaðar- háttum, enda stress óþekkt hugtak á þeim tímum. En í dag dytti engum í hug að hafa búsetu á Lambeyri við Langanes, jafnvel þótt enga skatta né skyldur þyrfti að greiða. Lágfóta kann aftur að meta aðstæðurnar þarna, einangrunina og rólegheitin. Hún Síðasti hluti Hér lýkur Guðjón að segja frá reisunni á Langanes 1980. Sumir minnast þess að hafa séð sjónvarpsmyndina af þess- um magnaða leiðangri, þar sem 30 manns notuðu 4 bfla og einn togara til þess að nýta sögufræg hlunninndi, rekavið- inn. f fyrsta hluta frásagnar sinnar lýsti Guðjón nokkuð gömlu Skálabyggðinni, sem nú er í eyði. Þar voru á þriðja hundrað manns þegar flest var á árunum 1925-30. í öðrum hluta ferðasögunnar fór hann síðan með okkur í Árvík, Skoruvík og á Miðeyri. Lokaáfanginn var á Lambeyri. Hún er ysti staðurinn á Langanesi þar sem reka festir að ráði og varla hægt að taka land utar nema í rjómablíðu. En eins og Guðjón segir er slíkt veður afar sjaldgæft við Langanes, þar sem straumar eru stríðir og landvar lítið. 170 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.