Heima er bezt - 01.05.1996, Side 7
Ur ættfræðinni
Foreldrar Margrétar og systkini
Friðrik Jónsson Sigríður Benediktsdóttir
Sigbjörn Brynjólfsson Jóna Vilborg Friðriksdóttir
L Kjartan Runólfsson
Margrét Sigríður Sigbjörnsdóttir
Birna K. Kjartansdóttir, FriðrikG. Kjartansson, Benedikt R. Kjartansson, Hrafnhildur V. Kjartansdóttir.
maður og ekki síst fyrir mína hönd. Hann hafði ætlað í
menntaskóla en varð að hverfa snemma frá námi vegna
augnsjúkdóms. Honum var mikið í mun að ég færi í
menntaskóla en kannski var einhver angi af uppreisn í
mér, ég vildi ákveða sjálf hvað ég ætlaði að læra. Eg taldi
gott að fara í eitthvert nám þar sem ég fengi réttindi og
væri þá örugg með að fá góða vinnu. Ég hafði líka alltaf
haft mjög gaman af því að búa til mat og ég held að eldri
frænkur mínar, sem oft voru heima á sumrin, hafi átt
fyrstu uppástunguna að þessum skóla. Hússtjórnarskólinn
sem slíkur er ekki til í dag heldur er hússtjórnarfræðslan
valnám í Kennaraháskóla íslands en þetta var heilmikið
nám og mjög lærdómsríkt og það sér maður enn betur
þegar frá líður. Margt fannst okkur þá vera mjög gamal-
dags og ég hef gjaman sagt mínum nemendum frá því að
á þessum tíma vorum við í sérsaumuðum sloppum með
svuntur og kappa. Við óttuðumst það mest að einhver
kunningi utan úr bæ kæmi í heimsókn og sæi okkur í
þessari múnderingu. En þetta var mjög gott nám, bæði
bóklegt og verklegt og útskrifaði okkur sem hússtjórnar-
kennara eftir 3 vetur og 1 sumar. Skipulagið var þannig
að fyrst vorum við einn vetur í skólanum í Reykjavík og
fengum svo sumarfrí. Þá kom annar vetur í Reykjavík,
sumardvöl á Laugarvatni og þriðji veturinn í Reykjavík,
þannig að síðasta törnin var ansi löng. Á Laugarvatni
vorum við með nema; 13-14 ára gamlar stelpur, sem við
kenndum og hugsuðum eiginlega alveg um. Við vorum
líka með heilmikla garðyrkju. í maí vorum við í garð-
vinnu og settum niður grænmeti, svo voru kennsluæfing-
ar í júní og júlí og í ágúst tókum við upp grænmetið og
útbjuggum til vetrarins.
Fjölskyldumynd frá Þorvaldsstöðum. Kjartan Run-
ólfsson og Jóna Vilborg Friðriksdóttir með börnin;
Birna Kjartansdóttir, Rúnar Kjartansson, Friðrik
Kjartansson og Margrét Sigbjörnsdóttir.
Maki og börn
Um það leyti sem ég kláraði skólann var ég búin að
finna mér maka. Maðurinn minn heitir Sigfús Grétarsson
og er ættaður að norðan en afi hans og amma í móðurætt,
Sigfus Jóelsson og Birna Steingrímsdóttir, bjuggu á
Reyðarfirði í mörg ár. Sigfús eldri var skólastjóri bama-
skólans á Reyðarfirði og síðar námsstjóri Austurlands.
Sigfús yngri, maðurinn minn, ólst upp á Reyðarfirði til
sjö ára aldurs en þá flutti ljölskyldan til Reykjavíkur.
Móðir Sigfúsar heitir Bergþóra Sigfúsdóttir og faðir hans
heitir Grétar Guðbergsson. Við hófum búskap og eignuð-
umst okkar fyrsta barn, Friðrik Atla, 1975, sama ár og ég
útskrifaðist úr skólanum. Þá var Sigfús að byrja í há-
Heima er bezt 163