Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.05.1996, Qupperneq 13
'’éinÆrði. OtaprsWti a3 hljóðS | a3 múz' r.ó, ckii á brtp stjónuu*.- i-eðtaœóifiííj iaoar* *íf® Íi^fccrajj V a. hcfiMil hl' crj»d stigð kooiis* iiÍBjg;- *>«o fiutet hiogað ítinnao 'faðslækmr • \Tsinpyumíi flP it fíttl! j jBHE ,-t. laaíii hiti ij tiökkun) i A i fer öíi» »! *—: ' ^*5éi "-inr cmíS'. V'"'' uowi.'aPL {>•« ^rfi(rt—— cíVi.'ttt, Wr ósdmmti I ■ -Ha hcfði ■ "Kgo; !étaðsl»' 1 .. 0 í :' í!‘A#lJjjÉ f eru í hatigum ’i»s,r ! fóik héða f :! ! kvað vera“ 4 jma h.'iti'. i. í kouist tii aa, .... I lcggja rolHTO^R^™ ,ttrs,-cf.höo rc.tti-.um ,.ir J (iíær haía I, ‘ bcr g « st n*\xhgf I «ciu , iic«t.|qHífl Wsðið st Irfinaast, eð»:: taaö; frv., þvf að 'stjóroií- varði,"jafnveUr sy*t»; ð cþtitiit miiC; s* u ?tgð*rféii *>, engi i<hi fyrir' 'tusjóo sJ «n TH félagiinJ Gluggaö í gömul blöð og rit og forvitnast um það, sem efst var á baugi fyrir nokkuð margt löngu Umsjón: Guðjón Baldvinsson ########################«####«##«####«####«# ísafold, 4. ágúst 1905. Bændafundur- inn í Reykjavík Suðurreiðin. Þeir vissu ógjörla hvaðan á þá stóð veðrið, sumir meiri háttar Reykvík- ingar, einkum stjórnarhöfðingjarnir, er það varð hljóðbært á sunnudaginn, seint nokkuð, að bændur lengst ofan úr sveit væru teknir að drífa hingað flokkum saman. „Koma þeir svona snemma á þjóð- hátíðina?“ spurðu einhverjir. „Og það í þessari tíð, frá hálfhirtum tún- unum.“ „Hann Eyjólfur í Hvammi er kom- inn við tólfta mann, allt Landmenn. Þeir eru að fara af baki í portinu hjá honum Jóni Þórðarsyni!“ Þetta var ein með fyrri fréttunum. Það var engin missögn. Þeir voru þar komnir, helstu bændurnir af Landinu, 12 af rúmum 30 alls í hreppnum, með tvo til reiðar hver. Þeir höfðu riðið heiman samdægurs, á sunnudagsmorguninn. Það er 24 stunda ferð lestagang. Þeir höfðu rið- ið það á 9-10 stundum eða þar um bil. Þar var og í hóp, Ofeigur prestur í Fellsmúla, Ólafur hreppstjóri í Austvaðsholti, o.sv.frv. „Nei, það gerir ekki Eyjólfúr eða þeir Landmenn aðrir, að fleygja frá sér orfinu og ríða suður í Reykjavík í þj óðhátíðarskemmtunarerindum, og það meira að segja 2-3 dögum fyrir þjóðhátíðina! - sögðu menn þá. Þeir fóru að renna í grun um að hér mundi vera eitthvað annað á seiði, eitthvað meira og alvarlegra. Síðar um kveldið komu Holtamenn og Áshreppingar, fram undir 20, þar á meðal þeir Þórður, f. alþm. í Hala, Runólfur hreppstjóri á Rauðalæk, Sigurður í Helli, Páll í Ási, Bjarni í Moldartungu, Ingimundur í Kaldár- holti, o.fl. o.íl. Ólafur prestur Finns- son í Kálfholti var áður kominn. Snemma morguns á mánudaginn, komu þeir bræður, Grímur og Þor- steinn Thorarensen og fleiri Rang- vellingar. Svörin voru lík eins og hin, um þá Landmenn. Nóttina þá og daginn eftir, drifu að Árnesingar, Borgfirðingar og nokkrir Mýramenn úr efri hreppunum. Af Niður-Mýrunum komu 10-12 bænd- ur sjóveg á áttæringi um kveldið, þar á meðal Ásgeir í Knarrarnesi, þeir bræður Hallgrímur og Sveinn Níels- synir, Pétur í Hjörsey, o.fl. Þá komu og Strandarmenn og fleiri sunnan- menn, þar á meðal þeir nafnar Guð- mundarnir frá Landakoti og Auðn- um, síra Árni á Kálfatjörn, Ágúst í Höskuldarkoti. En lengra að sunnan komu flestir ekki fyrr en morguninn eftir, á stórum mótorbát. Kjósarmenn og Kjalnesingar fjöl- menntu og mjög og loks Hafnfirð- ingar og Álftnesingar, fundardags- morguninn. Þegar hér var komið, duldist fáum, að merkistíðindi væri í vændum, ef ekki stórtíðindi. Og tíðindi voru það. Suðurreiðin sjálf, þessi liðsafnaður til höfúðstað- arins, mikið á 3. hundrað manns, eru tíðindi, sem aldrei hafa gerst fyrr í sögu landsins, þetta ferðalag um há- slátt í þeim einum erindum, að láta sjá sig í höfuðstaðnum og skifta sér af landsmálum lítils háttar eða reyna að hafa áhrif á þau, þau áhrif, að landið frelsaðist frá þeim voða, sem stjórn og þing (meirihlutinn) virðist þess albúinn að steypa því í. Sumum fór sannast að segja ekki að verða um sel. Istöðulitlar sálir, í karla líkamshreysum eigi síður en kvenna, prúðbúnum og borðalögðum eigi síður en lélega klæddum, tóku til að sjá ískyggilegar ofsjónir, meðal annars gilda bændur og vasklega á velli, vinda sér inn í þingsalinn og snara löggjöfúnum út þaðan, meira að segja taka suma þeirra og binda upp á mótruntu og hafa heim með sér í nokkurs konar gæsluvarðhald, að þeir gerðu eigi skaða af sér framar í lögréttu. En ofsjónir voru það allt, sem bet- ur fór, tómar ofsjónir og höfuðórar. # # « # # Heima er bezt 169 ########### #########«###

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.