Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Side 21

Heima er bezt - 01.05.1996, Side 21
við storma þess og strengjaslátt stöðugt glaður uni. Vertu glaður, vinur hér, vinn með trú ogfestu, þá mun guð og gæfan þér gefa launin bestu. Og næst gefum við Óskari Þórðarsyni frá Haga orðið, en fyrsta vísa hans að þessu sinni nefnist Um „alltmulig“-manninn. Mér hefur löngum boðist basl en býsna lítill gróði. Oft hef ég getað ónýtt drasl endurnýjað, góði. Á gamals aldri. Þegar ellin kreppir kló kuldans fæ að gjalda. Meðan ég get mokað snjó mun ég lífi halda. Skáldamál. Það á að gera skáldum skil á skemmtilegan máta. En af hverju þau urðu til er mér jafnan gáta. Um hestamennsku. Þó ég engan eigi hest og ekki taumhald kunni, skil ég þann sem skeiði mest, skerpu og tölti unni. Askorunin Óskar Sigtryggsson segir eftirfarandi í bréfi til þáttar- ins, um svarvísur Óskars Ingimarssonar og Kára Korts- sonar við vísum hans, í 38. þætti: „Ekki var það meining mín, þegar ég sendi þættinum vísurnar þrjár, með þeim skýringum, sem þeim fylgdu, að í því kynni að felast ögrun. Hins vegar var þetta sett fram í tilefni af heiti þáttarins, til glöggvunar fyrir þá, sem kynnu að lesa hann en hefðu ekki sjálfir kynnst þeim reglum, sem ég hafði í æsku komist í námunda við, í sambandi við þá athöfn „að kveðast á.“ Eg læt ógert að svara að hætti nafna míns, með tvöföld- um skammti, þar sem ég hygg að áframhaldandi margföld- un af þessu tagi, kynni brátt að verða þættinum banabiti. Því læt ég þetta nægja: Nú „fór í verra “ nafni klár, ég naumast vildi þig hrella. Þó vísurnaryrðu óvart þrjár, það ei var meint sem nein brella. Með bestu óskum.“ Það er umsjónarmanni þáttarins ljúft að upplýsa, að hvorugur þeirra Óskars og Kára tók vísum þínum, Óskar, sem ögrun, miklu frekar höfðu þeir gaman af og skemmt- un við að svara þínum ágætu vísum. Enda hygg ég að öll- um sé ljóst að hér í þessum þætti er flest til gamans gert á vísnasviðinu og þegar svo vel tekst til að menn taka að kveðast á, þá er það eingungis til að krydda efnið svolítið. Og fróðleikur er alltaf vel þeginn. Sammála er ég þér um það að ekki sé hægt að kveðast endalaust á, einhver hæfilegur endir verður þar á að verða hverju sinni, þó undirritaður setji mönnum ekki endilega neinar skorður í því efni. Frá því að 38. þáttur fór á prent hefur það skeð, að okk- ar ágæti Óskar Ingimarsson, er látinn, og söknum við þar svo sannarlega „vinar í stað.“ Óskar var einn af betri hag- yrðingum þessa lands og átti afskaplega auðvelt með að varpa fram góðum stökum, auk þess að vera jafnvígur á flest önnur form ljóðagerðar. Hann var einnig þjóðkunnur fyrir þýðingar sínar og fræðistörf. Við endum þáttinn að þessu sinni með því að varpa fram nýrri áskorun frá Kára Kortssyni og að þessu sinni hefur hann uppi tvær vísur og skorar á ykkur, lesendur, að svara henni þannig að vísa ykkar hefjist á sama orði og fremst er í síðustu línu seinni vísu hans, þ.e. orðinu „oijarl.“ Vísumar nefnir Kári: Stráið Stráið eitt þar stendur í stormi Fróns á velli, bylur frosts og fanna því farga vill í hvelli. En það bognar, býður enn byrginn þessum öflum, áður fyrr og aftur senn ofjarl reynist sköflum. Látum við lokið þættinum að sinni en minnum, eins og jafnan áður, á heimilisfangið sem er: Heima er bezt, Póstliólf8427, 128 Reykjavík. WÍHtH Heima er bezt 177

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.