Heima er bezt - 01.06.1996, Qupperneq 11
Handverk
Ég tók þátt í að stofna „Alþýðulist,“ sem
er félag handverksfólks hér í héraðinu. Upp-
hafið hjá mér var það að við tókum okkur
saman nokkrar konur og stofnuðum á Sauð-
árkróki, menningarfyrirbæri sem var kallað
„Kvennasmiðjan.“ Það fór af stað með
miklu bauki og bramli og voru skráðir yfir
100 félagar. Þetta gufaði fljótlega upp en
eitt af markmiðunum sem við settum, var að
stuðla að atvinnusköpun kvenna og styrkja
konur. Við héldum markaði fyrir heima-
vinnufólk. Við settum auglýsingu í blöð og
fréttabréf heim á hvern bæ. Blað, sem eng-
inn sá og það skilaði sér ekki nokkur,
þannig að ég tók mig til og hringdi í fólk
sem ég vissi að var að gera eitthvað, vítt og
breitt um héraðið. Flestir voru svo hógværir
að þeir sögðu að það væri ósköp lítið og
ómerkilegt sem þeir væru með. En þetta varð heilmikið
flóð af vörum, sem var komið með og selt fyrir töluverð-
ar upphæðir. Það voru þrisvar sinnum haldnir svona
markaðir, og gekk vel. En eins og ég sagði þá lognaðist
þetta út af, en margar hugmyndir „Kvennasmiðjunnar“
eru nú að komast í framkvæmd og konumar hafa haldið
áfram að starfa.
Um þetta leyti var verið að senda menn út um landið
til að kynna ýmislegt í sambandi við atvinnusköpun. Þá
var haldinn fundur á vegum Byggðastofnunar og Iðnfull-
trúa Norðurlands vestra, í Varmahlíð. Við fórum þangað
og þar var kosin nefnd, sem átti að hrinda einhverju af
stað. Sú nefnd gleymdi sér, svo að við tókum okkur til,
nokkur, sem vorum þama, bæði kosin og ókosin, og drif-
um þetta félag okkar af stað. Félagið heitir „Alþýðulist"
og eru á milli 40 og 50 félagar í því. Þetta er orðið heil-
mikið batterí eftir að við ákváðum að byggja hús í
Varmahlíð.
Þetta hús, sem við ætlum að reisa gerum við í félagi
við Fléraðsnefnd Skagfirðinga, Ferðamálafélag Skaga-
fjarðar og Siglufjarðar og Menningarsetur í Varmahlíð.
Alþýðulist á 30%. Það var stofnað einkahlutafélag um
húsið, sem heitir „Ferðasmiðjan," og sér það um bygg-
ingu og rekstur þess. Þetta er mjög spennandi verkefni og
ég veit ekki um neitt þessu líkt annars staðar. Hjörleifur
Stefánsson arkitekt teiknaði húsið, þetta er þjóðlegt hús
með nýju sniði. Það verður með torfþaki og útveggir
klæddir með rekaviði, lítið af gluggum á veggjum, tveir
gluggar á framhlið og einn hátt á hvorum stafni en síðan
verða þakgluggar. Það verður tofhleðsla á endum og bak-
hlið og grágrýti á gólfi. Þetta verða 70 fermetrar, og
möguleikar á stækkun seinna meir. Þarna er hugmyndin
að upplýsingafulltrúi ferðamála starfi að sumrinu og að
handverksfólk verði þarna með sölu. Það verða sýningar-
Ýmsir handverksmunir eftir Póreyju.
skápar og reynt að hugsa um að hlutirnir njóti sín sem
best. Sérstök gæðanefnd mun velja inn hluti og við ætlum
að reyna að hafa úrvalið þarna. Svo verður hægt að vísa
út í héraðið, þangað sem hlutirnir eru framleiddir. Þetta
verður fléttað saman við ferðaþjónustuna og fólk getur þá
farið á ýmsa staði, skoðað og verslað. Til dæmis í
Glaumbæ, þar verða hlutir sem tengjast safninu á ein-
hvern hátt. Þannig verður valið markvisst það, sem teng-
ist hverjum stað fyrir sig.
Ég er fulltrúi Alþýðulistar í sambandi við þetta hús og
hugmyndin er að húsið verði komið upp seinni partinn í
sumar eða haust. Þá verður hægt að nota það sem vinnu-
stað í vetur. Ég held að þetta geti orðið okkur til fram-
dráttar. Staðsetning í Varmahlíð er mjög góð. Þarna fara
allir um sem fara hringveginn.
;wmw
Heima er bezt 207