Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.06.1996, Qupperneq 12
Alþýðulist er orðið töluvert stórt félag í dag og mikil breidd í því, sem fólk er að gera og fáir eru að gera sama hlutinn. Við höfum verið með mörg námskeið, sem hafa verið vel sótt. Það er nauðsynlegt að fólk prófi margt og á endanum finnur það eitthvað, sem hentar því og verður þá aðalatriðið hjá hverjum og einum. Við verðum að vinna við að framleiða hluti, sem við höfum gaman af að gera. Þannig næst bestur árangur, annars verður engin sköpun. Einstaklingurinn verður að fá að njóta sín. Við höfum farið og tekið þátt í sölusýningum eins og til dæmis á Hrafnagili, í Kringlunni og á fleiri stöðum. Þá höfum við alltaf selt fyrir dálitlar upphæðir þó að það skipti kannski ekki sköpum hjá neinum enn sem komið er. Vonandi eykst það. En þetta er líka svo mikið félags- legt atriði, það er svo margt sem spilar inn í. Svona vinna kemur á tengslum á milli fólks, sem annars væru ekki. Ég hef alltaf verið dálítið afskiptafsöm og nógu frökk til að láta ljós mitt skína, þó að það logi kannski ekki alltaf skært. Ég hef mikinn áhuga á að konur komi sér og sínu á framfæri og hef aðstoðað dálítið við það. Við eig- um að vera við sjálfar en ekki bara konur mannanna okk- ar. Ég kynni mig t.d. aldrei sem konuna hans Jóhanns. Ef fólk áttar sig ekki á því hver ég er án þess að tilgreina að ég sé giflt einhverjum, þá læt ég það vera þeirra vanda- mál. Það eru ýmis atriði sem mér finnst ábótavant í þess- um efnum. Ég held til dæmis að Jóhann hafi aldrei verið spurður að því hvort hann sé maðurinn hennar Þóreyjar. Hins vegar þá er ég ekki alltaf Þórey í Keflavík, heldur konan hans Jóhanns. Við hér á íslandi eigum of langt i land með jafnrétti kynjanna. Þetta eru ekki hlutir sem verður breytt í nein- um hvelli. Það er ekki vegna illmennsku eins eða neins, þetta er svo samgróið fólkinu, okkur konunum ekki síður en körlunum. Hver er það, sem dregur sig í hlé ef eitt- hvað er? Hver er það, sem hleypur til að þjóna? Og hver er það, sem elur upp strákana? Við megum ekki gleyma því að við erum að ala upp eiginmenn annarra kvenna. Ég er ekki viss um að mér hafi tekist neitt sérstaklega vel með syni mína hvað kerlrembugenið snertir. Vonandi eru þeir bara að stríða mér en annars verð ég að segja við verðandi tengdadætur, ef einhverjar verða: „Fyrirgefið, en ég reyndi þó.“ Börnin og framtíðin Það er mikils virði að eiga góð börn og dugleg að vinna fyrir sér. Jón Axel er að klára bifvélavirkjun og vinnur á Sauðárkróki. Stella Hrönn varð stúdent í fyrra og er að vinna í Fisk- iðjunni núna. Hún hefur alltaf unnið með skólanum og verið mjög dugleg. Hún tók stúdentspróf á tveimur braut- Nokkrir handverksmuna Þóreyjar. um, vann 60% vinnu í Kaupfélagi Skagfirðinga og fékk fimm kíló af verðlaunum í útskrifltinni. Hún fékk viður- kenningu fyrir ensku, þýsku, dönsku og íslensku. Franska var það eina sem hún fékk ekki verðlaun íyrir. í haust fer hún í Ferðamálaskóla íslands. Hana langar í hótelskóla en það er of dýrt. Jóhann Oddgeir vinnur í Fiskiðjunni. Hann var í grunn- deild Málmiðna en hætti vegna kennaraverkfallsins síð- ast liðinn vetur og hefur ekki komist af stað aftur. Því miður er hann ekki einn um það en það breytist vonandi. Gangur lífsins Það er töluvert öðruvísi að búa hér en í Húnavatnssýsl- unni. Hér vantar víðáttuna. Ég er fædd og uppalin 240 metrum yfir sjávarmáli en er komin niður undir sjávar- mál hér. Við eigum trillu og stunduðum sjóinn áður, en höfum ekki gert það s.l. þrjú ár. Það er svo dýrt að halda úti trillunni að við höfúm ekki efni á því. Nú er hún bundin við gám norðan við húsið og telst vera landróðra- bátur á túnfiskveiðum. Við gerðum það ofit, okkur til skemmtunar, að fara á færi og sigla. Börnin höfðu mjög gaman af því. Það er regluleg afslöppun að fara á sjó. Nú erum við bara tvö að gutla í búskapnum en börnin hjálpa til þegar þörf er á og þau geta. í rauninni er mér sama hvar ég bý. Það er alltaf undir 208 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.