Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.06.1996, Qupperneq 13
manni sjálfum komið hvernig manni líður á hverjum stað. Við erum mjög þægilega staðsett hérna í Keflavík. Stutt að sækja vinnu og skóla. Hér er líka mokað daglega ef einhver snjór er. En þó að ég hafi gaman af búskap þá mundi ég ekki ráðleggja mínum börnum að leggja hann fyrir sig. Þetta er afskaplega erfitt, raunverulega, ekki einungis hér á landi heldur svo víða. En það hlýtur að breytast og það verður að breytast. Það er mjög erfið staða hjá mörgu sveitafólki. Það verður að þrauka í bú- skapnum og á engra annarra kosta völ. Allar eigur þess liggja á jörðunum og fæstir hafa starfsréttindi til annars. Til þess að vera bóndi þarf samt þekking fólks að liggja á mörgum sviðum, en það gefur engin starfsréttindi samt sem áður. Best væri ef hægt væri að skapa fólki lífs- grundvöll þar sem það á heima og vill vera en því miður gengur sú óskhyggja ekki upp. Af illri nauðsyn verður sveitafólk að finna sér eitthvað að gera með búskapnum. Eitthvað, sem gefur tekjur og skapar lífsgrundvöll. Auð- vitað geta ekki allir farið í handverk þó að margir geti það en margir eiga erfitt með að leita fyrir sér og eru hreinlega uppgefnir. Það er líka í þessu eins og öðru að það eru ótrúlega margir veggir sem fólk rekur sig á, sér- staklega konur. Það er í bígerð að setja á stofn lánatryggingasjóð kvenna. Það finnst mér mjög spennandi og ég held að það geti orðið gott. Staðreyndin er sú, að konur eiga mun minna af veðsetjanlegum eignum en karlar og mjög fáar geta hugsað sér að veðsetja heimili sitt og barna sinna. Munur á milli kvenna og karla er mikill í þessum efnum. Ein vinkona mín, sem rekur smáfyrirtæki, fór í banka og ætlaði að fá lán til að kaupa nýtt tæki. Það eina, sem bankastjórinn hafði áhuga á að vita, var hvað maðurinn hennar gerði. Vonandi hefur þetta verið sá eini af tegund- inni. Karlmaður, sem biður um lán í banka er ekki spurð- ur að því hvað konan hans geri! Ég er rótpólitísk að eðlisfari, en ég vinn ekkert í því. Hlutir þurfa oft að vera í umræðu í mörg ár áður en hægt er að framkvæma þá. Sem dæmi má nefna sameiningu sveitarfélaga. Það er eitt sem ég hef viljað árum saman. En það er hér sem víða annars staðar að mikil sameining hefur orðið nú þegar á svo mörgum sviðum. Það vantar bara lokastigið, að þurrka út hreppamörkin. Ferðalög og fleira Mig langar til að ferðast, skoða söfn og það sem til- heyrir gömlum tíma og sjá og kynnast lifnaðarháttum annara þjóða. Ég hef alltaf haft áhuga á ýmsu grúski, gamla tímanum og fornleifafræði. Ég fer kannski í það þegar ég verð orðin gömul, það mundi passa. Mér finnst gaman að skoða fortíðina og velta því fyrir mér hvernig fólk fór að því að lifa af harðindi og önnur áföll, bæði hér á landi og víðar. í sannleika sagt þá er ég ekki alveg sátt við hve fólk er komið langt frá náttúrunni. Ég held að við verðum alltaf að hafa jarðsambandið í lagi. Vera í tengsl- um við umhverfið og bera virðingu íyrir því. Fyrr á árum ferðaðist ég dálítið um Evrópu. Síðastliðið sumar fórum við til Sviss og Ítalíu. Það atvikaðist þannig að ferðaskrifstofueigandi frá Sviss var að koma með hundrað manna hóp að Hótel Áningu. Hann hringdi á undan sér og bað um að Jóhann kæmi og syngi fyrir þau á hótelinu. Hann gerði það, og þegar hann var búinn að syngja var hann spurður hvort þau mættu ekki færa hon- um smá gjöf. Þá voru það farmiðar til Sviss. Við fórum fjögur og skemmtum okkur konunglega. Síðan fórum við til New York í haust. Þá var Jóhann að syngja ásamt Kristjáni bróður sínum á vegum Danny Kaye Playhouse. Þarna var ofboðsleg stemmning og sér- staklega gaman. Það var fullt hús, 600 manna salur. Þetta var alveg sérstök upplifun. Það var reglulega gaman að fara þessa ferð. Þá komst ég í að gefa eiginhandaráritun í fyrsta skipti á ævinni. Þarna var finnsk kona, stór og mikil, hún var alveg frá- bær. Hún spurði mig hvort ég væri konan hans Jóhanns. Ég sagði henni að Jóhann væri maðurinn minn. Hún bað mig þá um eiginhandaráritun og sagði að þeir, karlmenn- irnir, væru ekkert án okkar kvennanna. Henni þótti verst að Kristján var ekki með sína konu svo að hún gæti skrifað líka. Margir tala um að þeir séu svo óöruggir í New York en ég fann ekkert fyrir því. Við fórum þarna og skoðuðum ólíka staði, að vísu um hábjartan daginn en mér fannst það mjög gaman. Það var svo einkennilegt að koma úr einu hverfi í annað, gjörólíkt umhverfi, mál og yfirbragð. Við sáum mesta ríkidæmi og sárustu fátækt. Við vorum á hóteli við Central Park. Það var mjög frið- sælt, þó að umferðin væri mikil. Umferðin er hæg og ég er viss um að venjulegur íslendingur yrði brjálaður af stressi. Fólk notar mikið línuskauta, þá er það fljótara að fara stuttar vegalengdir, eða þá að það gengur bara.“ Það var orðið áliðið og ég fór að huga að heimferð, eft- ir að hafa þegið veitingar og skoðað glæsilega handverks- muni sem Þórey býr til. Hún er sannkölluð listakona á sínu sviði. Þau eiga það sameiginlegt hjónin, að gera vel það sem þau gera, hún með handverksmunina sína og hann sönginn. Það er gott að sækja þau heim og Þórey segir skemmti- lega frá. Því miður er plássið í blaðinu takmarkað og þó að hún hafi frætt mig um margt þá veit ég að það er að- eins örlítið brot af öllu því, sem hún hefur að segja. Ég kveð baráttukonuna í Keflavík og gleðst vegna þess, að Þórey er ein af þeim, sem aldrei gefst upp. í framtíð- inni mun hún örugglega koma sínum baráttumálum í höfn, öllum til góðs. Eins og stendur einhvers staðar og gætu verið hennar orð: „Ég þori, vil og get.“ ÍHeima er bezt 209

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.