Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Page 14

Heima er bezt - 01.06.1996, Page 14
Titilblað fyrstu íslensku matreiðslu- bókarinnar, sem gefin var út í Leirár- görðum árið 1800. Hallgerður Gísladóttir safnvörður: ©nfatfii pi a t í e i t f r n fprlr {ictöct ntonna ■£,ttfofccyjuc. Utjtfíí cf Scií Cíffcffocittnu SKcrfu SWuritt ©tepfjctrfcm ©dft ílmtnttr liníiuMt 14 ftífb, 4«======:®%—=—=* tcicárjcrbiiin ois 8tirá, 1800. frcníSti á ft'ftnsÞ ftoíc.r.Ss Cðnfmjícgti rtpp, fCÆvtUöfil' c 0tlVíim3C. ttfgjftctí »8 ScffrjtFjara ®. g..S$sgfÍ'o>C. Eins og sagt var frá í síðasta matarháttapistli auglýstu íslenskir upplýsingar- menn eftir riti um matreiðslu og nýtingu matfanga í samræmi við landsins þáverandi ásigkomulag. Þeir uppskáru langa matreiðslugrein eftir Ólaf Ólafsson í höfuðrit upplýsingarmanna, lærdómslistafélagsritin árið 1792. Og aldamótaárið 1800 kom svo út í Leirárgörðum fyrsta íslenska matreiðslubók- in: „Einfalt Matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur eftir Mörtu Maríu Stephensen.“ Hún var dóttir dansks einokunarkaupmanns, Diedrik Hölter, sem einkum var frægur fyrir að safna óhóflegu spiki og fyrir að gifta dætur sínar efnamönnum. Marta María var fædd 1770 og því þrítug þegar bókin kom út. Hún giftist tvítug Stefáni Stephensen amtmanni gegn vilja for- eldra hans, sem þótti sonurinn taka niður fyrir sig með því að eiga kaup- mannsdóttur. Marta og Stefán áttu 10 börn og rekja margir íslendingar ætt- ir sínar til þeirra. Hún dó að lokum af barnsförum aðeins 35 ára gömul. Stef- án Stephensen og Magnús dómstjóri bróðir hans, voru hámenntaðir upplýs- ingarmenn og áberandi persónuleikar í íslenska samfélaginu á þessum tíma og gegndu þar mörgum embættum. aljósi þess, sem meðlimir Stephensens fjölskyldunnar hafa skrifað um matreiðslu- vasakverið, virðist ekki liggja í aug- um uppi hvað af innihaldinu er hvers. I formála þess, sem nafn Stef- áns er undir, segir að um sé að ræða minniskver Mörtu og að Stefán hafi fyrir tilmæli bróður síns Magnúsar hjálpað til með orðfæri og stíl. í minningarriti Magnúsar um Stef- án bróður sinn, sem dó 1820 segir hann eftirfarandi um Mörtu Maríu: „...að meðal annars votta um ferð- ugleika hennar innanhússtjórnar er það matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur, sem hún með að- stoð síns ektamanns samantók, og sem hér í landi útkom árið 1800.“ Ekki eru þessi orð Magnúsar í samræmi við það sem hann segir næst um þessa litlu matreiðslubók. í sjálfsævisögu sinni kveðst hann nefnilega sjálfur hafa skrifað kverið í samvinnu við danska konu búsetta í Noregi, en fengið Mörtu til að gang- ast við ritsmíðinni. Arið 1783 var Magnús á leiðinni til Islands með skipi en lenti í sjóhrakn- ingum og þurfti að hafa vetursetu í Noregi. Hann dvaldi þar hjá íslensk- um manni Þorkeli Fjeldsted og konu 210 Heima er beztÆR

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.