Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Síða 24

Heima er bezt - 01.06.1996, Síða 24
ég reyndi eftir bestu getu að svæla, þótt oftast endaði það með því að ég ældi öllu þessu góða súkkulaði, enda óvanur reykingum á þeim árum, þótt ég legði þetta á mig til að sýnast maður með mönnum, með sígarettu lafandi í munnvikinu. Fljótlega þvarr virðingin fyrir þessum erlenda her og menn drógu úr afköstunum til jafnræðis við her- mennina sjálfa og svikust óspart um. Sumir þeirra, sem unnu við flugvall- argerðina, komust upp á lag með að láta sig hverfa strax á morgnana, komu sér niður að höfn og unnu þar allan daginn og voru þannig mestalla vikuna á tvöföldu kaupi, enda vant- aði ævinlega fólk í uppskipun á þess- um árum. Vinnubrögð og stjómun voru ekki til mikils sóma hjá Bretum. Eitt sinn gerði mikið rok og karlarnir, sem voru að reisa braggana, réðu ekki neitt við neitt, því plöturnar fuku út í veður og vind um leið og hreyft var við þeim. Þeir, sem unnu við þetta, vildu fá að gera hlé á plötulagningunni þang- að til veðrið lægði og var náð í æðsta „bossann" til að afla heimildar til þess. Hann kom blindfullur á offiserabíl sínum og hélt um það þrumandi ræðu að breskur her gæti unnið í öllum veðrum, skjögraði síð- an valtur á fótum upp í bílinn og brenndi í burtu, og áfram fengu plöt- umar að ijúka. Við steypuframkvæmdir var al- gengt að annað hvort vantaði sand eða möl. Stundum sátu karlarnir all- an daginn og biðu eftir mölinni, en sæist til offiserabílsins, voru allir reknir á fætur og látnir moka sand- hrúgunni út og suður, meðan hann fór framhjá. O, jú, allir voru að vinna og slógu ekki slöku við. Eg man að gamall bóndi, sem stjórnaði hrærivélinni, sagði oft og einatt: „Guð minn almáttugur, hvernig ætla þessir menn að vinna stríðið?“ Ég gat tekið undir með honum af heilum hug. Vera mín á vellinum varð ekki löng, því ég hafði sótt um starf hjá Ríkisskip og var ráðinn þjónn yfir- manna á e/s Súðinni, sem var í strandsiglingum með vörur og far- þega. Margt skemmtilegt bar fyrir á því skipi. Vistin þar um borð var sann- kallað ævintýri fyrir unga stráka, sem voru að byrja að kanna heiminn. Stundum var ég látinn hjálpa til á öðru farrými þegar mest var að gera hjá þjóninum og oft voru margir sjó- veikir. Sjálfur var ég lengi sjóveikur, en harkaði af mér, kyngdi ælunni og talaði digurbarkalega við sjóveika farþega þegar ég var að hreinsa upp gubbið eftir þá, ég tala nú ekki um væru það ungpíur, sem settu allt sitt traust á mig. Þjónarnir gátu lent í hörðu við að halda ástsjúkum hermönnum frá kvenpeningnum, sem kannski kærði sig ekki um að láta stía sér frá þeim. En þetta var skipun ofan frá. Her- menn mega ekki komast inn í her- bergi kvenna, en þeir borgaraklæddu voru undanþegnir þessu banni. Bret- arnir áttu ákaflega erfitt með að skilja þetta réttlæti. Ofit var slangur af hermönnum far- þegar með okkur, og fengu þeir marga sönnun fyrir því, sem forðum var kveðið, að: Betra er að hemja hundrað flær á hálu skinni, en píkur tvær A 220 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.