Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Page 28

Heima er bezt - 01.06.1996, Page 28
skuldunautar hans urðu loks svo nærgöngulir, að hann, einungis þess vegna, vék burtu af Englandi og gekk í enska hersveit, er send var gegn Zuluköffum í Afríku, og þar féll hann í bardaga, 1879, eins og kunnugt er, 23 ára. En móðir hans sat heima með milljónirnar, er hún tímdi ekki að sjá af, og þó var sonur hennar auga- steinninn hennar, að sagt var. Nú hefur hún grátið sig blinda af harmi yfir þessu og sér nú aðeins í þoku. En gullið margfaldast og millj- ónir hrúgast á milljónir ofan hjá hinni bamlausu ekkju. Þjóðólfur, 19. október 1900. Vísindaleg loptferð verður innan skamms hafin frá Berlín til að fá sannanir fyrir því, hversu lengi loptfar með miklu burð- arafli geti haldið sér á lopti uppi. Loptfar það, sem til ferðarinnar er ætlað, hefur næstum því helmingi meira rúmmál en loptfar Andreés, og útbúnaður allur svo vandaður sem fong em á. Vistir verða teknar með til 3 vikna. Lagt verður af stað frá Berlín, þá er vindur þar blæs af vestri eða útnorðri, til þess að loptfarið geti sem lengst svifið yfir þurru landi austur yfir Evrópu og meginland Asíu. I förinnin verður einn enskur vís- indamaður, Alexander London, auk þýska verðurfræðingsins, dr. Berson í Berlín, og 3 annarra þýskra fræði- manna, alls 5 farþegar. Kúlumyndun jarðarinnar Nýja sönnun fyrir því, að jörðin sé kúlumynduð en ekki flöt eins og pönnukaka, hefur ítalskur málari, Possati að nafni, fundið og það á mjög einkennilegan hátt. Það er „maðurinn í tunglinu,“ mannsandlit- ið, sem menn þykjast sjá þar, er hef- ur gefið tilefni til þessarar sönnunar. ítalskir útflytjendur, er höfðu sest að ..................t................ 224 Heima er bezt JStZL ################«###■ í Argentínu í Suður-Ameríku, höfðu veitt því eptirtekt, að þar sást ekki „maðurinn í tunglinu," en er þeir fóru að gæta nánar að þessu, gátu þeir þó greint andlitið, en það sneri næstum því öfugt, augun neðar en munnurinn ofar, þ.e. að segja á höfði. Fyrir skömmu kom einn þessara útflytjenda aptur heim til Ítalíu, og minntist á þetta við kunningja sína, en þeir trúðu honum ekki, og var þá þessi Possati málari í Toscolano, beðinn úrskurðar, því að hann hafði í tómstundum sínum, ofurlítið rýnt í stjörnufræði. Eptir nákvæmar íhuganir lýsti hann því yfir, að útflytjandinn hefði rétt að mæla. Andlitið í tunglinu hlyti í raun og veru, að standa á höfði fyrir áhorfanda á suðurhelmingi jarð- arinnar, af því að áhorfandinn væri andfætingur vor. Það, sem er efri hluti tunglsins fyrir vorum augum, sýnist Argentínubúum neðri hluti þess og hins vegar. Til frekari fullvissu leitaði Possati álits hins heimsfræga ítalska stjörnu- fræðings Schiaparellis, forstjóra stjörnuturnsins í Mílano, og hann lýsti því yfir í bréfi til Possati, að at- hugun þessi væri rétt, en þessa væri hvergi getið í neinni náttúrulýsingu eða nokkrum stjarnfræðilegum vís- indaritum, svo að hér væri í raun og veru um nýja uppgötun að ræða, nýja sönnun fyrir kúlumyndun jarðarinn- ar. (Eptir „National Zeitung.“) Þjóðólfur, 30. desember, 1875. Auglýsingar Hús til sölu Hjer með auglýsist, að jeg hef í hyggju, ef kaupandi fæst, að selja hús það, er jeg hefi reist í Kapla- skjóli svo nefndu, í sumar. Það er múrhús, 16 álnir á lengd, 11 á breidd og 11 á hæð. Húsið er fullgjört að öðru en því, að það vantar á það helluþak, en plægð súð í þakinu, og er óþiljað innan. Sömuleiðis er eptir að hlaða upp skorsteininn, en nóg grjót dregið að í hann, og nokkuð af því höggvið. 94 borð eru með í kaupinu. í Kaplaskjóli er afbragðsgóð upp- sát, og hef jeg rutt þar vör, sem einnig fylgir húsinu, ásamt hálf- gjörðum kálgarði. Húsinu fylgir og væn lóð, nálægt 1200 ferh. álnum. Þá er og væn stjett í kringum allt húsið, og brunn hefi jeg grafið þar og hlaðið upp. Háholti við Reykjavík, 27. des. 1875. Jakob Jónsson. ísafold, 23. ágúst 1905. Dilkum úr Kjósinni verður slátrað í dag við versl. Jóns Þórðarsonar. Verð: 0.32 pd. í heilum kroppum, 0.33-0.36 pd. í smærri sölu, vigta (kjötið) á: 20-25 pd. í tilefni af ritsímasamningnum og undirskriftarmálinu þurfa margir að þvo hendur sínar. Besta handsápan er Cocossápa frá Sápuverkinu, Reykjavík. Kitsons- glóðarnetabrennaramir eru heimsins bestu og fullkomnustu brennarar, spara olíueyðsluna um 3/4 hluta ámóta við venjulega brennara og gefa einstaklega bjarta og góða birtu. Fást aðeins í Versl. B.H. Bjarnason. íbúð mót sólu, 3 herbergi og eldhús eða 2 herbergi og stúlknakamers, óskast til leigu nú þegar. Skrifleg tilboð send- ist J. All Hansen, Bókhlöðustíg 2. Tapast hefir úr Reykjavík 19. þ.m., rauðstjörnótt- ur hestur, mark að líkindum: blað- stýft a. v. og fjöður a. h.; fremur

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.