Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Side 30

Heima er bezt - 01.06.1996, Side 30
loptið um hinn ímyndaða höfund bréfsins, eins og lög gera ráð fyrir þeim megin. Og svo þykist veslings ritstjórinn ætla að gefa Þjóðólfi ádrepu(!) fyrir þessa goðgá að hafa birt þetta bréf. Og „ádrepan“ er í því fólgin að skora á Þjóðólf að sanna, að „Lögberg“ dragi nokkurn tíma fjöður yfir það, sem miður fer þar vestra, eða láti þess ógetið ef eitthvað amar að. Og þetta er auðvitað á borð borið með venjulegri lögbergskri ósvífni. En maðurinn hefði ekki átt að tala svona digurt, því að hann má vita, hve höll- um fæti hann stendur og hversu af- sakanir hans eru einskis nýtar. Auð- vitað hafði Þjóðólfur enga skyldu til að taka þennan þvætting mannsins til greina. En í þetta sinn ætlum vér samt að gleðja hann með því að prenta hér á eptir, bréf frá Ameríku, sem ritað er löngu áður, en Winnipegbréfið birtist í Þjóðólfi, svo að ekki geta ummæli þessa bréfs ver- ið tekin eptir því. Afskript af bréf- kafla þessum var sendur Þjóðólfi til birtingar norðan úr Hrútafirði, einmitt nú með síðasta pósti, og fer sá, sem sendi, um hann þessum orð- um í bréfi ds. 20. f.m.: „Mér sýnist það mjög æskilegt, að þér vilduð birta kafla þennan í yðar heiðraða blaði, almenningi til athug- unar. Það er áreiðanlegt, að bréf þetta er ekki skrifað af eigingjörnum eða persónulegum hvötum, og þekkingu og reynslu hefur bréffitarinn eflaust talsverða, því að hann er vel skyn- samur og búinn að vera fyrir vestan nær 20 ár.“ Þess skal getið, að höfundur Amer- íkubréfsins er móðurbróðir þess, er sendi oss það til birtingar, og hafði maðurinn skrifað þetta systur sinni hingað til lands. Meira þarf Sig- tryggur ekki að vita. Hann getur svo spáð í eyðurnar og skammað ein- hvern, sem hann hyggur höfund þess. Það gerir þá minna til, þótt það komi ekki í réttan stað niður, bara að hann geti stangað einhvern. Bréfið er ritað frá Gardar í Norður- Dakóta (þar sem séra Fr. Bergmann á * * heima) og dagsett 25. október f.á. Kaflinn, sem oss var sendur er svo látandi: „Ég get nú fátt skrifað þér, sem fréttir geta kallast. Tíðin hér í sumar var nokkuð votviðrasöm um sláttinn, en heyfengur varð þó í góðu lagi, og hveitiuppskera í betra meðallagi. Al- mennast hér um kring fengu bændur í kringum 20 „bushel“ af ekru til jafnaðar þar sem best var, og margir minna. Öll spretta var í sumar með besta móti, en víða hér í Dakota eyðilagði haglstormur alla akra og stórskemmdi suma; ekki urðu samt mikil brögð að því nú í ár meðal Is- lendinga. Þessir haglstormar koma árlega fyrir, í fyrra missti sonur minn alla uppskeru sína og margir íslendingar kringum hann. Um þetta þegir Lögberg, eins og annað, sem er af lakara tagi, en flytur heldur öfgar og ýkjur til ginningar fáfróðum innflytjendum. I einni Canadanýlendunni, sem var að byggjast mest í sumar, „Swanri- verdalnum,“ fraus allur sáningar- gróður og ónýttist í sumar í júlí. Ekki sést það á prenti. Margir hafa líka orðið fyrir stórskaða af eldsbruna í haust, eins og optar brunnið hús, hestar, hey, og svo þúsundum skiptir „bushela" af hveiti. Hér er margt svo stórkostlegt, sem maður hafði ekki af að segja á ís- landi. Óneitanlega er hér í margan máta hægra að hafa ofan í sig að éta, en gróðinn vill ganga misjafnlega, og eru hér margir mjög fátækir, eiga ekkert. Utgjöld þykja mörgum líka allmikil og fara vaxandi skattar og skyldur, og svo þar að auki, óendan- legar ljárbænir, fyrst og fremst til prests og kirkju, og svo margt fleira. Presturinn okkar, séra Friðrik, er nú kominn heim, búinn að kristna ykkur? Hann segist hafa komið til ykkar og hefur frætt ykkur sjálfsagt á öllu því góða, ólíklegt hann hafi ekki nefnt hið lakara líka. Lítið hefi eg heyrt af því sem hann segir frá Is- landi, nema heldur lætur hann dauft af lífinu þar, og nú vilji allir komast til Ameríku, embættismennirnir hvað þá aðrir. Ég held nú samt þeim brygði við ýmislegt.“ Þessa „ádrepu“ verður nú Sig- tryggur að láta sér nægja fyrst um sinn. Þykir honum það ekki sæmi- lega skýrt tekið fram af þessum Dakótabréfritara, hvernig „Lögberg“ fer að ráði sínu? Að segja hann ljúga, mann, sem enga hvöt hefur til að skrifa systur sinni ósatt, er að vísu handhægt, en sannar lítið. En auðvit- að verða það allar varnimar hjá S., eins og vant er. Hann hefur sjaldnast aðrar á takteinum, þessi sann- leikselskandi(l), síbullandi kristin- dóms- og klerkasnati þar vestra. Mr. Hjörleifsson Hvað skyldi sá dagur heita, sem vekur hina íslensku þjóð til viður- kenningar á hinu blessunarríka starfi mr. Hjörleifssonar í þarfir hennar? Mörg ár eru nú liðin, síðan þáver- andi cand. phil. Einar Hjörleifsson, reyrði saman leppa sína í höfuðstað vors danska konungsríkis. Manni dettur ósjálfrátt í hug landaleit Kol- umbusar í sambandi við þessi „hugð- næmu“ spor Einars, í áttina til þess að kanna „hvort nokkuð væri hinum rnegin." Hér stóð þó öðruvísi á. Kolumbus mætti miklum andróðri vina og óvina, áður en hann gat búið ferð sína, en aptur á móti urðu margir til þess að hvetja kandídatinn fararinn- ar; því var svo háttað, að þeir töldu það hentugra, að hafa hann fjærri sér heldur en í návist. Segir fátt af honum, fyrr en hann var „lagður upp“ í Ameríku. Þar var kandídatinn „upplagður.“ Hin farsælu áhrif hans á framsókn og friðsemi meðal landa í Ameríku, og starfsemi hans í þarfir íslenska þjóðernisins fyrir vestan haf, má kynna sér af „Lögbergi“ fyrrum, sem verður að skoðast sem þá verandi trúarjáming „Vona skáldsins.“ Svo líða tímar fram, þar til anda kandídatsins fýsti íslandsfarar, og sama hljóð var í meltingarfærunum. 226 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.