Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Side 33

Heima er bezt - 01.06.1996, Side 33
Kinnarstaðir. enn í dag eigum við hér fimm kind- ur. Við erum svo heppin að ein dóttir okkar býr í sveit og auðvitað erum við þar oftast um sauðburðinn. Við eigum sumarbústað rétt hjá Bjarkar- lundi í landi Kinnarstaða og auðvitað erum við þar öllum stundum, að sumri til. Við höfum lagt af sumar- vinnuna í frystihúsinu, erum þar bara á veturna. Þess í stað dundum við okkur við sumarbústaðinn og annan leikaraskap. Bústaður okkar er í afar fallegu umhverfi. Ég horfi lítið á sjónvarpið, sit bara með prjóna mína og hlusta á útvarp- ið, svo hef ég gaman af að lesa ævi- sögur og afar gaman af að ráða krossgátur. Ég er lítið í félagsmálum, er aðeins í slysavarnadeildinni Unni, hér á staðnum. Störf mín hafa flest tengst sveitinni, fiskinum, húsmóður- og uppeldisstörfum. Það má segja að afkomendur okkar hjóna séu út um allan heim, m.a. hef- ur einn sonur okkar búið í 18 ár í Ástralíu og þar sem við höfum nú loksins nurlað saman fyrir fari þang- að, höfum við ákveðið að skreppa til hans innan tíðar. Við sumarhús Önnu og Hjartar. Hjörtur stundaði sjómennsku til ársins 1980 er hann hætti til sjós. Við vinnum nú bæði í frystihúsi. Ég vinn að vísu aðeins hálfan daginn. Áður en lengra er haldið langar mig til að segja nokkuð nánar frá foreldrum mínum. Fyrstu ár ævi sinnar var faðir minn að Kollabúðum í Þorskafirði en þegar móðir hans þurfti að gangast undir uppskurð vegna sullaveiki, sem hrjáði hana, fór hann með henni að Kinnarstöð- um þar sem uppskurðurinn var fram- kvæmdur. Þótt hann tækist vel, eða eftir vonum, þá var móðir hans lengi að ná sér og því varð hann eftir á Kinnarstöð- um, þá 5 ára gamall og þar ólst hann upp hjá foðurbróður sínum og alnafna, Magnúsi Sig- urðssyni og konu hans og var alltaf nefndur Magnús yngri. Þar sem engin nútíma- leg aðstaða til skurðað- gerða var á Kinnarstöð- um og þar af leiðandi ekkert skurðarborð fyrir hendi, var einni hurð kippt af hjörum og svo frá henni gengið að sem best færi um hina sjúku konu. Var aðgerðin framkvæmd þar og tókst eins og að framan segir, eftir vonum. Er móðir mín átti eldri börn sín brá hún sér ávallt af bæ, hélt að Kinnar- stöðum og ól þau þar. Tvö yngri börnin átti hún svo að Skógum og loks einn dreng að Hólum. Þar sem faðir minn var þá orðinn óvinnufær ólst drengurinn upp að Gautsdal í Geiradalnum. Kinnarstaðasystur, sem margir munu kannast við, tóku eina systur mína í fóstur, en hún dó um tveggja ára aldur, úr þá óþekktum sjúkdómi, sem sennilega hefur verið heila- himnubólga. Því var það að þegar móðir mín átti, telpu að Skógum 1937, fór sú stutta að Kinnarstöðum og ólst upp hjá systrunum þar. Foreldrar mínir keyptu jörðina Hóla í Reykhólasveit, sem staðið hafði um nokkurn tíma í eyði og hófu þar búskap. Þegar faðir minn er um þrítugt er hann við húsbyggingu, mig minnir á Hríshóli, og forkelast svo að hann fær brjósthimnubólgu og síðan berkla upp úr henni og að Hól- um andast hann 17. júlí 1940, 33ja ára. Frændi minn, Friðbjörn Guðjóns- son, kom til móður minnar er pabbi var dáinn og saman stóðu þau fyrir búinu uns þau brugðu búskap og næstyngsti bróðir minn tók við jörð og búi, en hjá honum voru þau svo í „horninu,“ eins og sagt var, uns þau létust bæði. Sérstök áhugamál hef ég alltaf átt af skornum skammti. Sveitin og allt sem henni viðkemur hefur alltaf tog- að í mig, ég er mikil sveitakona og Heima er bezt 229

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.