Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.12.2000, Blaðsíða 10
við og tcilaði um jólin ón þess að skilja hvað það orð í raun merkti. Eg greip prjónana mína og sonur minn lék sér á gólf- inu að dótinu sínu. Annað slagið spurði hann hvort jól- in færu ekki að koma. Ég braut heilann um hvemig ég ætti að koma honum í skilning um hótíðleik þeirra. Enginn jólapóstur hafði borist, rafmagnsleysið gerði það að stundum var kveikt ó kertum, svo þuu mundu ekki virkja mjög hótíðlega ó hann, og varla var von að jólamessa í útvarpinu breytti neinu fyrir þriggja ára barn. Fyrir mig sjálfa var þetta ný lífsreynsla, ég var alin upp á heimili þar sem mikil gólagleði hafði ríkt og ég hafði ekki búist við að lenda í svona aðstöðu. Að vísu var veðrið orðið gott en ófærðin var mikil. Það var að myndast kökkur í hálsinn út frá þessum hugrenningum, en ekki gæti ég setið grátandi. Mitt í þessu hugarvíli mínu vom útidyrnar opnaðar og yngri bróðir minn, Ingi, birtist, hress að vanda. Hann bað mig að láta sig hafa mólkurfötuna, hann ætlaði að mjólka kúna á meðan við byggjum okkur til ferðar og setja niður jólafötin okkar. Nú var allt víl á bak og burt, ég gerði eins og hann sagði og eftir ekki langa stund vorum við lögð af stað. Ingi bar drenginn á háhesti og ófærðin reyndist ekki svo mikil þar sem ég gekk í spor hans. Ferðin gekk vel og áður en varði vomm við komin heim á bernskuheimili mitt. Þar var bjart og hlýtt og yndislegur matarilmur í lofti. Nú átti ég ekkert erfitt með að láta son minn skilja að iólin væm komin. Bréfaskipti Blaðinu hefur borist ósk frá Vestur-íslendingi, konu, sem mun vera í bréfaskiptum við fólk á ís- landi í öllum landshlutum. Einn þessara bréfavina hennar, Björk að nafni, kom óskinni á framfæri. Konan óskar eftir pennavinum sem víðast að á landinu. Nafn hennar og heimilisfang er: Herb N. Beck, POBox 68, Reick, MO 65248 U.S.A. Haraldur Cuðnason, Vestmannaeyjum: Fyrsta ferðin í verið 1930 Eftir áramót fómm við Landeyingar að undirbúa ferð- ina í verið, til Vestmannaeyja. Sveitin, Austur-Landeyj- ar, hálftæmdist af ungum mönnum. Stóð svo til loka- dags 11. maí. Ekki komu allir alltaf heim aftur. En menn reyndu að komast „út af sandinum" til Eyja, örstutta leið. Ef það tókst ekki var farið til Reykjavíkur og þaðan með „millilandaskipi" til Eyja. Ég fór tíu ferðir í ver til Vestmannaeyja og alltaf um Reykjavík, vegna brims við sandinn. Þá gat ferðin tekið viku og kostaði sitt. Um áramót áttu ungir menn ekki peninga. Margir tóku ferðavíxil í sparisjóði sýslunnar, 35-50 krónur. Þeir nefndust „Eyjavíxlar," eða „Vertíðar- víxlar." Fyrsta verferð mín var farin í janúar 1930. Þetta var mín síðasta ferð frá gamla torfbænum, unglingsárin að baki. Þá var ég átján ára. Pabba, leiguliðanum, var sagt upp jarðnæðinu. Frost var og snjór yfir landinu þennan vetrarmorgun, er ég lagði af stað og vissi lítt hvað við tók. Ferðaáætlunin var þessi: Á hestum að Ægissíðu við Rangá, þar tæki okkur bíll, hálfkassi, sem átti að skutla okkur á Kambabrún. Skafrenningur var á og orðið þungfært, dró í smá- skafla. Við, líklega fjórir, inni í bílnum, fórum út að moka er þurfti. Hinir piltamir lágu á bílpallinum undir feldi, svokallaðri „presenningu," og sungu sér til hita, oftast þetta: „Vertu hjá mér Dísa, meðan kvöldsins klukkur hringja..." Eftir að hafa farið nokkmm sinnum út að moka og inn í hlýju bílsins uppfenntur, varð maður blautur nokkuö. Þetta þótti mér ekki þægilegt, svo ég kaus að leggjast undir feldinn með söngmönnunum, þó kaldara væri. Svo tók að skyggja og hægt mjakaðist. Ööm hvoru var stopp og mokað, mokað. Um eða eftir miðnætti var 442 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.