Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Síða 26

Heima er bezt - 01.12.2000, Síða 26
egar greinarhöfundur leitaði eftir að komast í sumarferð eftir- launadeildar síma- manna, dagana 4. til 9. ágúst s.l. sumar, var það auðsótt mál. Ég var, þótt skömm sé frá að segja, ókunnugur þeim landshluta sem ferðin bauð upp á, m.a. til Flat- eyjardals og Hvalvatnsfjarðar á Flateyjarskaga í S-Þingeyjarsýslu, sem svo oftlega er nefndur því nafni í dag. Lagt var af stað frá Lands- símahúsinu við Austurvöll klukkan 9 árdegis, föstudaginn 4. ágúst og ekið sem leið liggur austur yfir Hell- isheiði til Geysis og Gullfoss og það- an um Kjalveg til Norðurlands. í fyrirsvari fyrir ferðinni voru þau Ragnhildur Guömundsdóttir og Valgarð Runólfsson, sem jafnframt var leiðsögumaður. Fyrsti áfanginn var ákveðinn til Akureyrar og skyldi gist á hótel Eddu í heimavist M.A. en þótt Kjal- vegsleið norður í land sé mörgum kunn, þá ber alltaf eitthvað nýtt fyrir augu. Hver getur gleymt útsýn- inu af Bláfellshálsi til Hvítársíðu og Langjökuls eða til Hofsjökuls og Kerlingarfjalla í góðu skyggni. Rigningarsúldin sem huldi Suð- urlnd þennan dag var á bak og burt norðan Bláfells og sól skein í heiði á Hvervöllum, en þar var stansað og teknir fram nestiskassar. Þama rifjaðist upp fyrir mér frá- sögnin um afdrif Reynisstaðabræðra er urðu úti á Kili 1780 og hið magn- þrungna kvæði Jóns Helgasonar, „Skuggar lyftast og líða um hjarn." En ferðinni er haldið áfram norð- ur yfir heiðalönd Húnvetninga til Blöndudals. Ekið er vestan uppi- stöðulóns Blönduvirkjunar og fram- hjá stöðvarhúsinu. Haldið er yfir Blöndubrú hjá Löngumýrarbæjun- um og þar sem Svartá fellur í Blöndu sér yfir að Tungunesi. Það er eitt stórbýlið sem farið er í eyði og Horft úr fjöru í Eyrarkróki á Flateyjardal til norðurhluta Hágangna. 458 Heinta er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.