Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Side 35

Heima er bezt - 01.12.2000, Side 35
FrarHhaldssagan Ingibjörg Sigurðardóttir: 51 uðmýkt hefur ekki verið hennar sterk- asta lyndiseinkunn um liðna ævi. Hún sér sjólfa sig í anda á vori lífsins, unga, föngulega einka- dóttur á ríkmannlegu hreppstjóra- setri þeirrar tíðar. Stolt og stórlát leit hún niður til flestra sveitunga sinna. Hún átti því fáa æskuvini og félaga sem hún taldi sér samboðna og þessi eini bróðir sem hún eignaðist var svo gjörólíkur henni að þau áttu litla samleið. Hann ávann sér hylli allra sem hann umgekkst, ekki síst þeirrra sem voru minni máttar og hún leit smáum augum. Hún viður- kennir það fúslega nú að Randver var fyrirmyndar drengur. Vor eitt kom ungur maður að Ljósalandi. Hann hafði tekið fola- efni í úrvals gæðing til tamningar fyrir föður hennar enda eftirsóttur til þeirra starfa víða um sveitir og var kominn til þess að skila gæðingnum fulltömdum. Hún hafði séð Matthías á Lyngheiði nokkrum sinnum áður sem krakka og ungling en ekki fyrr fullvaxta karlmann. Og þarna var kominn riddarinn á hvíta hestinum úr draumum hennar í orðsins fyllstu merkingu, því Matthías reið ljósgrá- um gæðingi. Riddarinn bað hvorki um hönd hennar eða hjarta né neitt annað í þá veru en hún vann þess heit þetta vorkvöld, að Matthías á Lyngheiði skyldi verða eiginmaður sinn, að öðrum kosti yrði það eng- inn. Hún hófst þegar handa og áður en Matthías fór frá Ljósalandi var hún búin að fá hann til þess að temja fyrir sig fola sem hún átti og vantaði fyrir reiðhest. Og þar með voru örlög þeirra ráðin. Hún var tíð- ur gestur á Lyngheiði þetta vor og lærði þá list undir leiðsögn temjar- ans að ná tökum á villtum eðliskost- um gæðingsins og móta þá til hlýðni. Henni tókst einnig að fanga temjarann sjálfan svo ekki varð aft- ur snúið áður en kaupakonan frá Drangalóni kom til sögunnar. En hafði hún með öllu hreinan skjöld í þeim sigri? Sú spurning vekur hjá henni framandi sektarkennd. Und- arlegt hvað þetta löngu liðna verður nú ljóslifandi fýrir hugarsjónum hennar og jafnframt krefjandi. Hjónabandið hefur reynst frekar friðsamlegt og áfallalítið, hún telur það vera því að þakka hve Matthías er gæflyndur og kann vel að stjórna skapi sínu, en ástríkt hefur það aldrei verið. Hún hefur yfirleitt ekki snúist gegn áformum bónda síns hafi hann borið þau undir hana en það gerði hann ekki þegar hann tók Hugborgu inn á heimilið. Þessu reiddist hún mjög og fannst sér gróf- lega misboðið og hefnd hennar bitn- aði á saklausum. Augu Ástríðar fyll- ast tárum. í móðu þeirra birtist henni munaðarlaust tökubarn, sem engu réði um komu sína að Lyng- heiði. Hún rak telpuna áfram með veldissprota sínum eins og hún væri ambátt og sýndi henni aldrei annað en hörku og skilningsleysi þar til hún sjálf var slegin til jarðar af ólæknandi sjúkdómi. En þá var það Hugborg sem kom óbeðin til móts við hana með slíkri hjálpfýsi og um- hyggju að enginn hefði getað gert það betur. Þessi óeigingjarni kærleik- ur var undur, sem hún hafði aldrei kynnst fyrr og opnaði augu hennar fyrir nýjum lífsgildum. Hugborg hef- ur sannarlega launað illt með góðu og í fyrsta skipti á ævinni finnst Ástríði að hún þurfi að biðja aðra mannveru fýrirgefningar. En er henni það nóg að hljóta fyrirgefn- ingu frá mönnum, þarf hún ekki líka aö leita út fyrir sjónhring þess stundlega? „Meistarinn er hér og vill finna Heima er bezt 467

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.