Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 45
3 Finnar
Finnland er þa5 NorSurlandanna, sem
{jarlægast er. Ekki aðeins að það sé
'engst í burtu, heldur er tungan, sem
Finnar tala gerólík öðrum norrænum
málum.
Um uppruna Finna sjálfra er heldur
ekki nein vissa, en ýmsar getgátur eru
Þar um, t. d. er ein þannig:
Hópur fólks villtist frá ættkvísl sinnl.
þa5 fann hentugan stað til þess að fara
' gufubað. Og því leið vel, það hætti við
a5 leita uppi ættingja sina, en tók sér
bólfestu. Síðan tók það lagið.
Hvað sem til er í þessari sögu, þá eru
9ufuböð mikið stunduð í Finnlandi, og
reyndar upprunnin þaðan. Og ennþá
taka Finnar lagið svo að um munar. Það
er sagt, að engin listgrein eigi sér eins
^júpar rætur með þessari listrænu þjóð
°9 söngur. Svo það er ef til vill ekki
undarlegt, þó að Finnar hafl átt marga
úrvalssöngvara.
Hér sjáum við þrjá Flnna, sem allir
eru meðal beztu söngvara heims. Allir
eru þeir bassasöngvarar.
Kim Borg
fsed ^ B°r9 6r ^eirra elz,ur- Hann er
ha dur I Helsingfors 1919. Þar ólst
I ef*n UPP °9 9ekk [ skóla’ °9 lauk námi
e,nknafr^i. Þar sem hann hlaut ágætis-
kunn- Jafnframt hafði hann alla tíð
Martti Talvela
stundað tónlistarnám. 27 ára að aldri
settist hann svo I Síbelíusar-akademíuna
pg lagði út á listamannsbra-utina.
Frá því 1951 hefur Kim Borg verið I
tölu beztu söngvara heims. Hann hefur
sungið við flest stærstu óperuhúsin. Til
dæmis Metropolitan óperuna I New
York, Vínaróperuna, Hamborgaróperuna,
Bolshoileikhúsið í Moskvu, Stokkhólms-
óperuna og mörg fleiri.
Ennfremur hefur hann sungið I ora-
torium og á tónleikum víða um heim.
Hann er mikill málamaður, og sagt er
að hann syngi ævinlega á frummálinu.
Kim Borg hefur fjórum sinnum komið
hingað til lands. Tvisvar sinnum til þess
að syngja, síðastliðið vor söng hann
hér á „Listahátíð 1972“, og íyrir 9 eða
10 árum söng hann með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands. Hann hefur sungið inn á
margar hljómplötur.
Auk þess að vera söng- og gáfumað-
ur, þá er Kim Borg mikið glæsimenni,
svo að eftirtekt vekur.
Martti Talvela er fæddur í Hiitela 1935.
Hann stundaði söngnám I tónlistaraka-
demíunni I Lahti.
Hann vann fyrstu verðlaun I söng-
keppni 1960 og heiðursheitið „Bezti
Ijóðasöngvari Finnlands" það árið.
Martti Talvela hefur óhemju mikla rödd,
og aðeins 27 ára að aldri söng hann
hlutverk Titurel I óperu Wagners, „Parsi-
fal“, á Bayreuth-hátiðinni.
Frá þeim tíma hefur hann sungið í
flestum stærstu óperuhúsum heims, t.
d. Þýzku óperunni í Berlin og La Scala i
Mílanó. Hann hefur sungið mikið í óper-
um eftir Wagner og Verdi. Ennfremur
eftir rússneska höfunda eins og t. d.
Rachmaninov. Þar að auki syngur hann
Ijóðalög af mikilli snilld.
Frægð og frami Martti Talvela fer
mjög vaxandi um þessar mundir, og
síðastliðið sumar mátti segja, að hann
færi frá einni tónllstarhátíðinni til ann-
arrar, þar sem hann söng við mikla
hrifningu.
Tom Krause fæddist i Helslngfors
1935. Þegar hann lagðl leið sína til
Vínarborgar og settist i tónlistaraka-
demíuna þar, þá hafði hann gengið í
skóla reynslunnar.
Hann hafði ieikið á píanó á bar, verlð
gítarleikari í jazzhljómsveit, og með
góðum ásetningi hafði hann lesið lækn-
isfræði við háskólann í Helsingfors.
Þegar hann var í háskólanum, var
hann hvattur til þess að fara i söng-
tíma i tómstundum sínum. Hann reyndist
hafa svo mikla sönghæfileika, að hann
sneri baki við læknisfræðinni og fór til
Vinarborgar, þar sem hann lagðl stund
á söng og leiklist.
Tom Krause söng fyrst opinberlega I
Helsingfors 1957. Hann var ráðinn að
Ríkisóperunni i Berlín, þar sem hann
söng við vaxandi vlnsældir í tvö ár,
jafnframt varð hann mjög vinsæil Ijóða-
Tom Krause
söngvari, og hefur hann sungið i sjón-
varp og útvarp hjá mörgum þjóðum.
Tom Krause er núna einn af aðal-
söngvurum Hamborgaróperunnar.