Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 60

Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 60
Nú kom drengurinn auga á EMásk'iá. N/artS Viann þá há\íske\ka3ur og ætlaði að hlaupa heim, en Bláskjár hljóp til hans og bað hann að vera ekki hræddan, því að hann ætlaði ekki að gera neitt illt af sér. Drengurinn hikaði við og leit á Bláskjá og varð fljótt rólegur, þegar hann sá, hve vingjarnlegur og fallegur svipurinn var. Brosti hann til hans og spurði hann að heiti og hvaðan hann kæmi. „Bláskjár heiti ég og klifraði þarna yfir grindverkið." . „Bláskjár! Það er skrítið nafn.“ „Því er það skrítið? Ég heiti það, og þú átt ekkl að vera að hlæja að því. En hvað heitir þú?“ „Ég heiti Valter og á heima í fallegu höllinni þarna. Pabbi minn á hana. En hvar átt þú heirna?" „Ég á heima í græna skóginum, þar sem fuglarnir syngja og sólin skín, því að í hellinum, þar sem allt er dimmt og Ijótt, skal ég aldrei oftar eiga heima.“ „Hefur þú átt heima í helli? Auminginn, þá eiga foreldrar þlnir víst ekki aðra eins höll og þessa." „Ég á enga foreldra,“ sagði Bláskjár raunalega. Valter leit á hann meðaumkunaraugum og tók í hönd hans. „Láttu ekki liggja illa á þér. Ég ætla að segja honum pabba, að þú eigir enga foreldra, og þá er ég viss um, að hann vill vera pabbi þinn, því að hann er svo góður. Svo skulum við leika okkur saman og elta Hektor, ó, hvað það verður gaman!" Hann klappaði saman lófunum af kæti, lagði hendurnar um háls- Inn á Bláskjá og hló glaðlega. „Viltu ekki vera hérna hjá mér?“ „Vera hérna hjá þér, leika við þig, vera alitaf úti og sjá sólina á hverjum degi og vera aldrei skammaður eða barinn, nei, það væri alltof gott handa mér!“ „Þú ert skrítinn náungi. Finnst þér það svo mikið að fá að' sjá sólina? Hana geta þó allir horft á á hverjum degi. En hvað þú ert undarlegur!" „Já, þú mátt gjarnan hlæja að mér, ég get líka hlegið. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér, að sólin væri svona dásamleg. Sjáðu, hvað hún skín yndislega gegnum greinarnar og býr til myndir á grasið. Og þetta á ég allt að fá að skoða á hverjum degi.“ Valter leit á hann undrandi. „Hvaða vitleysa er þetta? Hefurðu ekki getað fengið að sjá sólina á hverjum degi?“ „Nei, ég hef aldrei séð hana fyrr en I dag. Þess vegna liggur svo fjarska vel á mér.“ Valter var sem steini lostinn. Hann spurði og spurði, og Blá- skjár sagði honum allan sinn æviferil, frá þvi hann mundi fyrst eftir sér. Þegar hann minntist á Ellu litlu, komu tárin fram í augu hans, og. gat þá Valter ekki heldur tára bundizt og vafði böndunum um há\s bonum. Þarna sá\u nú dreng\rn\r bvor v\<5 annars h\\ð, eins og þe\r hetöu þekkzt a\\a ævi. „Aumingja Bláskjár! Skelfing kenni ég i brjósti um þig! Það er þó gott, að þú ert kominn hingað. Nú átt þú að vera bróðir minn. Pabba þykir vlst vænt um, þegar ég kem með þig, því að hann verður ævinlega svo hryggur, þegar ég spyr hann, hvers vegna ég eigi engan bróður ti! að leika við mig. Það hlýtur að vera Guð, sem sendi þig hingað. „Hver?“ spurði Bláskjár. „Guð,“ svaraði Valter. „Já, en hver er það? Það kom enginn hingað með mig, ég var aleinn." „Ég var heldur ekki að tala um neinn mann, ég sagði Guð.“ „Hann þekkl ég ekki. Það er alveg víst, að hann hefur ekki fylgt mér hingað." „Já, en Bláskjár, þekkirðu ekki Guð? Veiztu ekki, að það er hann, sem hefur skapað alla hluti: Jörðina, blómin, fjöllin, himin- inn með öllum stjörnunum, já sólina sjálfa, sem þér þykir svo vænt um.“ „Nei, því ertu nú að gabba mig? Heldurðu, að ég trúi því, að nokkur hafi náð upp [ himininn og látið sólina þar? Nei, Valter, þú mátt ekki skrökva að mér.“ „Láttu nú ekki svona, Bláskjár! Hugsaðu þig ve! um, þú hlýtur að vita, hver Guð er.“ „Nei, ég veit ekkert um það. Hvar er hann þá?“ „Auðvitað á himninum og svo alls staðar í öllum heimlnum." „En þá hlyti ég llka að sjá hann einhvers staðar." „Nei, við sjáum hann aldrei, en hann sér okkur. Hann ber um- hyggju fyrir öllum mönnum. Þess vegna eigum við að vera honum þakklátir og tilbiðja hann og fara til kirkju; það segir presturinn." „Kirkja? Prestur? Það veit ég ekki hvað er. En ef það er satt, að Guð hafi búið til sólina og alla hluti, þá ætla ég að láta mér þykja fjarska vænt um hann. Geturðu ekki sagt mér eitthvað um hann, eins og Ella sagði mér frá sólinni?" En rétt í því að Valter ætlaði að fara að reyna að útskýra, hvernig Guð væri, heyrðu þelr þýðan og skæran klukknahljóm óma gegnum loftið. „Nú er hringt til messu," sagðl Valter glaður f bragði og spratt á fætur. „Nú geturðu komið með mér til kirkjunnar. Þar er manni kennt að þekkja Guð og verða góður og guðhræddur. Komdu nú með mér.“ Báðir drengirnir flýttu sér til þorpsins. Menn litu undrandi hver til annars, þegar þeir sáu litla greifa- soninn, sem allir þekktu auðvitað, vera með þessum ókunna dreng í rifnu og óhreinu fötunum. Valter hélt í höndina á Blá- skjá og teymdi hann méð sér inn f kirkjuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.