Æskan - 01.07.1973, Blaðsíða 42
Ein
kýr
nægir
Pað var einu sinni kona, sem átti
tvö lítil börn. Hún var svo fátæk,
að hún gat með naumindum fætt þau.
,,Það er gott, að ég á geitina," sagði
konan. „Börnin drekka geitamjólkina
með þurru brauðinu og hafa hana út á
grautarögnina. En hvorttveggja er þvi
miður af skornum skammti, en auk þess
get ég stundum búið til ofurlítið af
smjöri."
Dag nokkurn, er konan var að vinna
i garðinum sínum, bað hún drenginn að
fara með geitina út að skurðargarðinum
til þess að hún gæti fengið í svanginn.
í þessu bili komu ókunnugur maður
og lítil stúlka. Þau gengu til konunnar.
Maðurinn sagði:
„Litla stúlkan mín er mjög þreytt,
svöng og þyrst. Áttu ekki matarbita
og mjólkursopa handa henni. Ég er fá-
tækur og get ekki borgað fyrir þennan
greiða. En ég mun verða þér afar þakk-
látur, ef þú gerir það, sem ég bið um.
Stelpan þarf að fá hressingu."
Konan svaraði: „Hér er ekki um auð-
ugan garð að gresja. En ég á dálítinn
mjólkurslatta og brauðbita, og það
skaltu fá handa litlu stúlkunni."
En þetta var matur sá, er konan hafði
ætlað að neyta að loknu dagsverki sínu
í garðinum. En hún var svo greiðug og
hjálpfús, að hún hikaði ekki við að taka
allt ætt, sem hún átti, og gefa ókunnug-
um.
Litla stúlkan borðaði brauðið og drakk
mjólkina og hresstist bersýnilega af því.
Er þau voru að fara, sagði maðurihn
við konuna: „Hvers óskar þú mest af
öllu?"
Konan svaraði: „Mig iangar mest til
þess að eignast kú. Ef ég ætti kú, gætu
börnin og ég fengið alla þá mjólk, er
við þörfnumst. Ennfremur fengjum við
nægilegt smjör."
Maðurinn sagði: „Réttu mér rekuna."
Konan gerði það. Og maðurinn sló
með rekunni á stein. Samstundis stóð
indæl kýr hjá þeim. Konan varð mjög
forviða.
Maðurinn mælti: „Þú mátt eiga kúna.
Þetta er borgun fyrir matinn, er þú
tókst frá munninum á þér til þess að
seðja litlu stúlkuna. Ég vona, að kýrin
verði þér til hamingju."
Konan varð bæði glöð og hissa, og
hún kom ekki upp nokkru orði. Hún
góndi á kúna. En maðurinn og litla
stúlkan lögðu af stað.
Svo datt konunni i hug, að tvær kýr
væru betri en ein.
Ef hún ætti tvær kýr, gæti hún selt
mjólk og keypt ýmislegt, sem hana van-
hagaði um. Hún hélt á rekunni, er
maðurinn notaði þegar hann töfraði fram
kúna. Og henni datt í hug, að hægt væri
að fá aðra kú á sama hátt. Hún ákvað
að gera tilraun.
Svo barði hún með rekunni á steininn.
Það var ekki kýr, sem kom fram, heldur
gráðugur úifur. Hann hljóp til kýrinnar
þegar í stað og át hana.
Að þvi búnu sneri hann sér að kon-
unni í sama augnamiði.
En konan beið ekki boðanna heldur
hljóp sem fætur toguðu á eftir ókunna
manninum og litlu stúlkunni. Þau voru
komin niður að ströndinni.
Konan kailaði til mannsins:
„Hjálpaðu mér. Ég er i mikilli hættu.
Ég sé eftir því, sem ég gerði. Hjálpaðu
mér til þess að koma úlfinum burt áður
en hann étur börnin og geitina. Geitin
er mér dýrmæt, og án barnanna væri
mér lífið einskis virði. Þó að erfitt sé
að vinna fyrir þeim, tel ég það ekki eftir,
en hef mikla ánægju af því. Þú verðuf
að hjálpa mér. Ég er viss um, að þú 9et
ur það. Ég grátbæni þig um hjáip.
Maðurinn horfði alvörugefinn á k°n
una. Svo sagði hann:
3 . j Pn
„Þessi úlfur er þín eigin ágirna
vegna þess að þú iðrast, skal ég hjálp®
þér og koma þessum voðalega úlfi ðe
Vertu róleg. Farðu heim. Allt mun fara
vel og þú ekki verða fyrir neinum óþ®9
indum. Úlfinn mun ég kveða niður. P
er gott að hafa hjálpað öðrum, ÞesS
nýtur þú hjá mér.“
Að svo mæltu hélt maðurinn leiða
sinnar. Hann gekk hægt og leit ekki vi
Þegar konan kom heim, var élfur'n”
horfinn, og varð hún mjög glöð- ^
fallega kýrin var heima við kotið, su
sama, er fyrr hafði verið töfruð fral^j
eða önnur alveg eins. Þessa kú
konan. Það var góð eign. Má geta ÞeaS’
að kýr eru sums staðar, t. d. á lndlan 1
álitnar heilög dýr og eru ekki drepna^
Meira að segja ekki vaktar, þó að Þ ^
sofi á daginn á fjölförnum götum st°r
borga Indlands.
„Ég má ekki vera ágjörn," sagði kon
an við sjálfa sig um leið og hún tey
kúna inn i lítið útihús, er nú skyldi n°la
sem fjós. Konan var góð við kúna, e
mjólkaði hún vel. Börnin og konan °°
uðu ágætlega.
Þyrnirós
Kringum höllina, sem Þyrnirós (
hafði vaxið þyrniskógur, sem allir n
að ómögulegt væri að komast í 9 . ^
um. Reyndu, hvort þú getur ekki ko
inn til hennar. Þú mátt hvergi
fara
strik, heldur aðeins þar sem °P'
Þú getur notað blýant til að marka
Ina.
40