Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1978, Side 17

Æskan - 01.10.1978, Side 17
^skan hefur birt myndir af Snæfellsjökli og birtist ein enn, því að aldrei er góð vísa of oft kveðin Þennan fagra eldjökul. Svo má kalla hann, því aður gaus hann oft og er þjóðtrú sú, að göng lægju neðanjarðar milli hans og Etnu á Sikiley. Jules erne gerði Snæfellsjökul frægan með einni bók Snni< sem byggist á þessari þjóðtrú. En engin hindurvitni þarf Snæfellsjökull til þess að verða ástfólginn þeim, sem á annað borð sjá hann og þekkja. Reykvíkingum er hann hjartfólginn fyrir það, að hann skartar oft í góðu veðri, þegar sól tekur að lækka, sem útvörður Faxaflóa að norðan. Myndin er tekin úr Breiðuvík og sést Stapafell lengst til vinstri. bri 99ja vikna gamlir og léku sér, móðirin horfði með aðdáun á é; þetta er allt svo hörmulegt! En s 'Panir Senjórs Deeks létu ekki að Sérhæða. þe9ar hann var búinn að bera ^ððurina til Pedro, dragnaðist °nsepsión aftur heim til litlu hvolp- na- Lengi sat hann og horfði von- ^sislega á, hvernig þeir byltust og ,u hver um annan. Nú áttu þeir enga örnmu og höfðu enga mjólk. Þeir u'u því að svelta hægt í hel. Og gf6niór Deek var strangur húsbóndi. hann framkvæmdi nú ekki skiþanir ans ■ ■ það fór hrollur um Konsó. En 9inn óhlýðnaðist skipunum hús- - ■ viiiyuiiauioi ompuiium nuo- ^°ndans. Kannski var það líka betra, na, úr því hvolparnir höfðu enga i0|k- Konsó tók hvolpana varlega upp, hvern á fætur öðrum og stakk þeim í poka ... Heilaga guðsmóðir Heilt ár leið áður en Konsepsión svo mikið sem sá Senjór Deek aftur. En nú varð hann að fara til hans. Húsbóndinn hafði reyndar bannað honum að koma upp að stóra húsinu, nema sent yrði eftir honum. En hann hafði ekki verið boðaður þangað og vissi, að það yrði hann aldrei framar. Hann hafði aldrei neina aðra félaga en geiturnar. Nema einstöku sinnum, þegar hann gat skroppið snöggvast til Mikaelu, sem bjó með foreldrum sínum í litlum kofa. En nú stóö sérstaklega á. Kon- sepsión mundi, að Senjór Deek hafði haft í hótunum við hann, ef eitthvað kæmi fyrir geiturnar. Og hann var hræddur, alveg dauðskelkaður. Þetta var napurt vetrarkvöld. Slyddan og snjórinn höfðu nú þakið jörðina í tvær vikur. Mýsnar og hin smádýrin, sem úlfarnir voru vanir að lifa á, lágu í djúpum holum sínum, undir glitrandi snjóbreiðunni. Svo úlf- arnir voru soltnir. Konsepsión hafði heyrt þegar þeir söfnuðust saman í hópa í rökkurbyrjun. Hann hafði heyrt ömurlegt ýlfrið í þessum hungruðu ræningjum og einstöku gól, þegar þeir gáfu hverjum öðrum merki, færast nær. Konsepsión vissi hvað það táknaði. Að vísu lágu litlu geit- urnar í hnapp inni í hrísréttinni, sem hann haföi búið til handa þeim, ef hættu bæri að höndum. Og smala- hundurinn hans, hann Afrikano, sem vó fimmtíu kíló og hafði borið sig- ur úr býtum í mörgum næturbar- h r

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.