Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1978, Síða 20

Æskan - 01.10.1978, Síða 20
Verðlaunaferð Flugleiða og Æskunnar Flugferð til Parísar „Við bjóðum ykkur velkomin um borð í Gullfaxa á flugi til Parísar" sagði flugfreyjan þegar farþegarnir voru sestir í sæti sín, höfðu spennt beltin og flugvélin rann út af stæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þotan TF-FIE var á leið frá Keflavík til Par- ísar síðdegis laugardaginn 1. júlí og meðal farþega um borð voru tvær ungar stúlkur, komnar sitt frá hvoru landshorninu, þær Gyða Björg Jónsdóttir frá (safirði og Hólmfríður Gríms- dóttir frá Reykjavík. Þær höfðu ekki þekkst áður, en sátu nú allt í einu hlið við hlið, hægra megin í farþegarýminu og virtu fyrir sér samfarþega sína og myndirnar á veggjunum um leið og þær fylgdust náið með flugfreyjunum sem höfðu lokið við að að- stoða farþega til sæta sinna. Ævintýrið, sem nú var rétt að hefjast, hafði reyndar byrjað löngu fyrr. Þær Gyða og Hólm- fríður höfðu báðar tekið þátt í verðlaunagetraun Flugleiða og Æskunnar og þær ásamt næstum 7000 öðrum þátttakendum höfðu sent inn lausnir. Þær voru hinar heppnu þetta ár, því um helmingur lausnanna var réttur og síðan var dregið úr réttum lausnum. Þær höfðu ekki sést fyrr en í flugafgreiðslunni á Hótel Loftleiðum, en þangað höfðu foreldrar Hólmfríðar fylgt henni og móðir Gyðu, systir og frænka. Þarna höfðu þær hitt Grím Engilberts ritstjóra og einnig blaðafulltrúa Flugleiða og innan stundar var haldið af stað úr Reykjavík og ekið sem leið liggur til Keflavíkurflugvallar. Þennan dag var skýjað og veðurstofan spáði norð-austan átt, heldur köldu veðri á Norðurlandi en hlýrra fyrir sunnan. Samt var besta veður og sól skein öðru hvoru. Gyða, sem hafði komið frá (safirði hafði aldrei ekið þessa leið. Hún virti fyrir sér Verðlaunafararnlr Hðlmfrlður og Gyða. síðan það sem fyrir augun bar, Kópavog, Hafnarfjörð og mosavaxið hraunið sem tók við fyrir sunnan Álverið. ^ [s. var hópur franskra ferðamanna sem hafði verið á fer^ u sta land og héldu nú heim aftur. Þarna heyrðu stúlkurnar i i sinn talaða ekta frönsku, og það var mikið málaeði og ^ pat. Þarna voru ennfremur margir (slendingar, flest un®g|ns í sem var á leið til Parísar, sumir til langdvalar, aðrir a ý stutta heimsókn. Bíllinn nálgaðist Keflavík og brátt varS^u[ fyrirframan flugstöðina. Þau héldu inn í móttökusalinr1- n. töskurnar og hittu góðan afgreiðslumann sem tók við um og farseðlunum, síðan var farið gegnum vopnaef1 ’ eð það er skylda á öllum flugvöllum að sjá svo til að engir ‘a f|Ug- sér vopn um borð í flugvélar. Þetta er vegna hinna {'®U jgurfl vélarána, sem hafa verið hrein plága á mörgum f|tJ9 undanfarin ár. kaUpa (fríhöfninni var margt að sjá og Gyða var ákveðin ía en filmur og flasskubba. Hólmfríður þurfti ekki á slíku að n það var gaman að skoða ýmsan varning sem þarna var ^ af stólum og áður en yfir lauk höfðu þær keypt sér sælgæti og voru nú tilbúnar í ferðalagið. Flugvélin átti Ljósmyndir úr ferðasögu Gyðu Bjargar og Hólmfríðar tók Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.