Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1987, Qupperneq 6

Æskan - 01.01.1987, Qupperneq 6
VERÐLALNASAGAN — „Nei, hæ, Dóra.“ Maggi brosti til mín þar sem hann sat í grænum jakka með nýja töffklipp- ingu aftarlega í skólabílnum. Ég brosti á móti og settist hjá honum. Skólabíll- inn ók af stað. „Hæ, gamla,“ sagði Hrefna sem sat fyrir aftan mig hjá Steina. Ég sneri mér við. „Hæ, bæði. Þið eruð hress er það ekki?“ „Jú, blessuð vertu.“ Steini hallaði sér aftur í sætinu. „Ég er bara varla vaknaður." Ég brosti. „Það var óvenjulegt.“ Steini kinkaði kolli. „Það var ári góð mynd í sjónvarpinu í gær,“ sagði Maggi. „Sástu hana?“ „Nei,“ svaraði Steini. „Við tókum videómynd. Alveg meiriháttar mynd.“ Skólabfllinn brunaði áfram. Við eigum öll heima í sveit og forum því með skólabíl á hverjum morgni í skólann. Það er dimmt úti. Klukkan er rétt tæplega hálf níu og fáir bflar á ferð. Það er komið fram í desember. „Hefurðu pælt í hvað það er stutt í jólaprófin?" spurði ég Magga. Hann kinkaði kolli og leit á mig. „Ég er viss um að þú verður best núna.“ Mér kom þetta mjög á óvart og sagði ekkert. „Ég varð hæstur í fyrra. Samt læri ég aldrei heima, fylgist ekki með í tímum. Ég lærði bara fyrir prófin." „Hvernig fórstu eiginlega að því?“ spurði ég. „Allt er hægt ef viljann vantar ekki,“ sagði Maggi spekingslega. „Voðalega eruð þið alvarleg,“ sagði Hrefna og ýtti í mig. „Voruð þið rekin úr skólanum bæði tvö?“ „Nei, hvernig vissirðu?“ svaraði Maggi strax. „Jæja.“ Steini stóð upp. „Ætlið þið ekki með?“ Skólabfllinn var stansaður og við gengum öll út. í fyrsta tímanum var samfélags- fræði. Guðrún, ungur og ákveðinn kennari, gekk á milli borða og dreifði blöðum. „Þið eigið að gera eitt hópverkefni fyrir jól. Einkunnin úr því kemur svo með í jólaprófseinkunnina.“ „Úff, hvað ætli þetta sé?“ hvíslaði Hrefna sem sat við hliðina á mér. „Eitthvað skemmtilegt,“ hvíslaði ég á móti. Hrefna glotti. „Örugglega.“ Guðrún kom að borðinu okkar. „Það er líklega best að þið tvær verðið með Steina og Magga í hóp. Þið eruð hvort sem er alltaf saman.“ „Mér líst vel á það,“ svaraði Hrefna strax. Dagurinn var fljótur að líða. Áður en ég vissi af var ég komin í skólabíl- inn og á leiðinni heim. „Ég hringi kannski í kvöld,“ sagði Maggi um leið og ég gekk út. Ég kinkaði kolli og brosti. Morguninn eftir sá ég strax hvern vantaði í skólabílinn. „Hvar er Maggi?“ spurði ég Hrefnu og Steina og settist hjá þeim. „Bara veit það ekki,“ sagði Steini. „Hann hlýtur bara að hafa fengið frí.“ „Rosalega ertu syfjuð.“ Hrefna leit á mig. „Já, mig dreymdi hræðilega í nótt.“ 6

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.