Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1987, Qupperneq 18

Æskan - 01.01.1987, Qupperneq 18
— Þú hefðir átt að vera fluttur að heiman fyrir löngu. Fangi fékk konu sína í heimsókn í steininn. „Eru peningarnir á öruggum stað,“ hvíslaði hann óttasleginn. „Þeir gætu ekki verið á betri stað,“ svaraði kona hana. „Ég flutti þá úr grafhýsinu á nýjan stað og nú er verið að byggja blokk þar yfir. “ Eftirfarandi tilkynningu mátti lesa í einu dagblaðanna fyrir skömmu: „Jón Jónsson vill þakka þeim sem stuðluðu að andláti og útför konu hans. Sérstaklega þakkar hann lækn- unum.“ Tveir bræður voru með skál fulla af eggjum. Allt í einu segir sá eldri við þann yngri: „Ég skal borga þér hundrað krónur ef ég fæ að brjóta þrjú egg á höfðinu á þér.“ Þeim litla þótti þetta freistandi boð og tók því. Hann stóð síðan grafkyrr, fullur viðbjóðs, á meðan bróðir hans braut tvö egg á höfðinu á honum og lét gumsið leka alla leið niður á háls. Þeg- ar hlé varð spurði sá yngri: „Fer það þriðja ekki að koma?“ „Ég held nú síður því að þá yrði ég að borga þér hundrað kall!“ Móðir Grétu litlu hafði oft komist í stökustu vandræði með dóttur sína er þær voru á ferð í strætisvögnum. Henni hætti þá svo oft til að gera alls konar leiðinlegar athugasemdir við fólkið sem var í vagninum. Móðirin hafði því lagt ríkt á við hana að tala aldrei um fólkið sem var með þeim í vagninum á meðan það heyrði til. Og Gréta hafði lofað því. Einhverju sinni er þær voru á ferð í strætisvagni kom á einni biðstöðinni maður inn í vagninn. Hann hafði óvenjulega stórt nef. Grétu varð strax starsýnt á manninn og sá móðir hennar að hún fór að ókyrrast. Loks getur hún ekki orða bundist og segir: „Við skulum ekki tala um manninn með stóra nefið fyrr en við komum heim.“ Pétur: Hvers vegna rignir, pabbi? Pabbi: Til þess að blóm og tré geti vaxið. Pétur: En hvers vegna rignir þá á gangstéttina? Lísa litla er háttuð. Mamma stendur fyrir utan dyrnar og hlustar á hvort hún gleymi nú ekki kvöldbæninni sinni. Þegar hún heyrir ekkert segir hún: „Lísa, ég heyri ekki til þín. Lísa: Ég ætla heldur ekkert að tala við þig- — Togaðu bara í — þá sendir hann þér líka maðk. „EIoi / Svo lítil frétt var fæðing hans í fjárhúsjötu hirðingjans, að dag og ártal enginn reit, um aldur hans ei nokkur veit. Og jafnvel samtíð okkar enn sér ekki sína bestu menn, en bylting tímans birtir allt og bœtir sumum hundraðfalt. Því mótmœlt hefði hans eigin öld, að afmælið hans sé í kvöld, og tengt þann atburð ársins við, er aftur lengist sólskinið. Hann alla sína fræðslu fékk á fátæklingsins skólabekk. En sveit hans veitti sína gjöf þar sérhver hæð var spámanns gröf - Og skálda, er höfðu hegnt og kennt, en heimska lýðsins grýtt og brennt. Þar feður hjuggu hold og bein, en hlóðu synir bautastein. Þar birtist verka-vitrun hans, sem vitjar sérhvers göfugs manns, það kall að hefja land og lýð og lækna mein á sinni tíð. Og margur sagði hugarhlýtt: Sjá, hér er spámannsefni nýtt! Og móðurástar ótti og von sá undramann í kærum son. Hann sá, að eiginelskan blind var aldarfarsins stœrsta synd, og þyngst á afl og anda manns var okið lagt af bróður hans — 18

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.