Æskan - 01.01.1987, Page 24
Hæ, kæra Æska.
Mig langar til að segja frá
draumaprinsinum mínum. Hann er
skolhærður og mjög sætur. Hann er í
6. bekk Barnaskóla Akureyrar og er
frábær í knattspyrnu. Fyrsti stafurinn í
nafni hans er S.
Ein úr 5. BÁ
Kæra Æska!
Draumaprinsinn minn er dökkhærð-
ur, 168 sm á hæð og er í 9.b á Dalvík.
Hann heitir Marinó og á heima á Ár-
skógsströnd. Hann á nokkra hesta og
pabbi hans er mikill hestamaður. Ég
vona að þetta verði birt.
601050
Ágæti Æskupóstur!
Mig langar til að lýsa prinsinum
mínum. Hann er dökkhærður og með
blá augu, meðalhár og æðislega sætur.
Hann á heima í Hrauntungu í Hafnar-
firði og heitir Steini.
Einn aðdáandi í Hafnó
Halló, Æska!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
meiriháttar blað! Ég ætlaði að fá að
lýsa prinsinum mínum. Hann á heima
á sama stað og ég, í Grindavík, og er í
7. bekk. Ég er hins vegar í 6. bekk.
Þessi strákur er dökkur í framan og er
stór miðað við aldur. Hann er með
dökk augu og alltaf í svörtum skóm.
Svo er hann oft í blárri úlpu.
Ein sem segir ekki til nafns
Hæ, hæ Æskupóstur!
Mig langar til að lýsa prinsinum
mínum. Hann er hár með blá augu,
dökkt hár og er alveg æðislega sætur.
Hann er í Dalvíkurskóla og býr á vist-
inni.
Ein frá Dalvík
Kæra Æska!
Prinsinn minn er skolhærður og með
blá augu og fyrsti stafurinn í nafni hans
er F>. Hann er í Seljaskóla og í sama
bekk og ég. Við erum þrjár stelpurnar
sem erum skotnar í honum.
Ein í Seljaskóla
Draumaprinsessiir
Ágæti Æskupóstur!
Ég á eina draumadís. Hún er dökk-
hærð með brún augu og frekar hávax-
in. Hún er góð í íþróttum og mjög
félagslynd. Mér finnst hún mjög
skemmtileg.
Strákur í Ólafsvík
Kæra Æska!
Ég hef verið skotinn í stelpu í langan
tíma og get ekki hætt að hugsa um
hana. Hún er svo sæt og skemmtileg.
Það eru fleiri skotnir í henni en hún
virðist ekki hafa áhuga á neinum okk-
ar. Kannski er hún bara hrifin af eldri
strákum en okkur? Ég hugsa stundum
svo stíft um hana á kvöldin að ég á
erfitt með að sofna. Þessi stelpa er
ljóshærð, meðalhá og vel vaxin. Hún
er dugleg að læra og er mjög ákveðin.
Hún á heima á Akureyri eins og ég.
1x2
Frábæra Æska!
Ég á heima í Reykjavík en drauma-
dísin mín í Keflavík. Ég sé hana stund-
um þegar hún kemur í bæinn því að
hún er góð vinkona systur minnar.
Hún er tveim árum yngri en ég, 12 ára.
Við höfum stundum farið þrjú saman í
bíó en ég á erfitt með að átta mig á því
hvort hún hefur einhvern áhuga á mér.
Hún er mjög broshýr og almennileg
við alla. Þess vegna er ekki svo gott að
átta sig á því hvað hún vill. Við höfum
bæði mikinn áhuga á bíómyndum,
sömu tónlistarmönnunum og ferða-
lögum.
Leynigæi
Ljósmyndasamkcppni
Kæri Æskupóstur!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
mjög gott blað. Mig langar til að biðja
ykkur að svara tveim spurningum.
1. Er Æskan hætt að efna til ljós-
myndasamkeppni?
2. Getið þið ekki birt mataruppskrift-
ir?
Bless, bless,
MX21
Svör:
1. Nei. Við verðum með nýja keppni
áður en langt um líður.
2. Jú, það kemur vel til greina.
ÆSKUPÓST URINN
24