Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1987, Síða 33

Æskan - 01.01.1987, Síða 33
eftir Helga Snæ Sigurðsson Pabbi Karenar lá á gólfinu og var að tengja lítið tæki við sjónvarpið. Fyrir aban hann, í hægindastólnum, sat namma hennar og lakkaði á sér negl- urnar með hálfluktum, þreytulegum dugum, í staðinn fyrir að laga til eftir veisluna sem hafði verið kvöldið áður. í einu heyrðist í lykli og dyrnar opnuðust. Karen kom inn og sagði glöð í bragði: ”Vitið þið hvað? Ég er orðin annar fulltrúi af tveim fyrir okkar bekk í Nemendaráði og ég er líka í ritnefnd.1' »Mmmmm,“ sagði mamma hennar en pabbinn: ^Það er fínt vinan, en veistu það að viö vorum að fá okkur afruglara?" "Afruglara? Hvernig væri að kaupa e'tthvað annað en það, t.d. MAT? Ég ef þurft að borða hjá ömmu undan- arið og þyrfti helst að sofa þar líka því ab þessi eilífu partý ykkar og nú örugg- ega sjónvarpsgláp fram eftir allri nóttu eru að.....“ hættu þessu röfli og farðu og ^æktu bróður þinn,“ greip mamma nennar fram í fyrir henni. Karen rauk út og skellti á eftir sér. ’>Þau eru eitthvað skrítin,“ hugsaði aren með sjálfri sér, leysti keðjuna af hjólinu sínu og hjólaði niður í leik- skólann. ”Er Róbert inni?“ spurði hún fóstr- urnar. ”Hann er inni í leikherbergi," sögðu Þær og héldu áfram að tala saman. Karen gekk inn í leikherbergið og °ni að Róbert grátandi. ”Hvað kom fyrir?“ spurði hún og kraup niður. “Strákarnir voru að stríða mér,“ Jökraði hann um leið og hann nudd- a i augun. Hún tók hann í fangið og a baði fram með hann þótt hann væri 0rðinn fimm ára. “Heyrðu Karen?“ kallaði ein fóstr- an' ySegðu foreldrum þínum að þau Ver i að fara að borga dagvistunar- y|a ðið- Það er komið svo langt fram ”Já, ég veit.“ Karen drattast inn með bróður sinn tanginu, hálfsofandi. Hún leggur ann í rúmið, örmagna eftir að hafa °nö hann upp á þriðju hæð. Klukkan er að verða 6. Hún sest við skrifborðið sitt og reynir að halda augunum opn- um meðan hún berst við að læra. Augnalokin þyngjast og þyngjast og loks líður hún út af niður í bækurnar. Dí-dídd, dí-dídd, dí-dídd. Karen reis upp og slökkti á vekjaranum á úrinu, geispaði og teygði úr sér. AAA- AAHHHHH! Það var langt síðan hún hafði fengið svona góðan nætursvefn. En hvað? Af hverju var hún í öllum fötunum? Ó, nú mundi hún það. Hún hafði sofnað yfir heimanáminu og þau höfðu lagt hana í rúmið. Hún hafði sofnað áður en hún hafði lokið við að læra og hún þurfti að ná í strætó eftir hálftíma. Skrambinn. Hún varð að flýta sér. Reikningur. Fjárinn. Bara tuttugu mínútur. Hún sem ekki var búin með þriðjung af því einu sinni. Hvað mundi Guðlaug segja? Nei, hún er svo róleg. En það er aldrei að vita. Kennarar eru svo mislyndir. Skratt- inn. Fimmtán mínútur. Áfram, áfram. „Jæja, ég er þó búin með helming- inn núna. Ég verð að fara.“ Hún flýtti sér í skóna og tróð sér einhvern veginn í jakkann. Æ, gleymdi ég skólatöskunni. Fimm mín- útur. Hún þaut niður stigann og kom ekki sekúndunni of seint í strætó. Hún settist niður og hugsaði með sjálfri sér að þetta væri þó lán í óláni. Hún sat hjá stelpunum fyrir framan skólastofuna. Loksins kom Guðlaug, fimm mínútum of seint. Svo var verið að skamma krakkana fyrir að koma of seint en kennararnir voru ekkert betri! í skólanum gekk allt vel þangað til að landafræðinni kom. Guðlaug tók upp þykkan hlaða af blöðum, alvarleg á svip og sagði: „Jæja, ég vona að þið hafið lesið vel landafræðina heima því að ég ætla að hafa smákönnun.“ „Ó, þurfti nú endilega að vera próf,“ hugsaði Karen og fékk í magann. Búið var að dreifa prófblöðunum. Sumir svitnuðu, aðrir glottu og létu alla sjá að þetta væri ekkert mál fyrir þá. En einhvern veginn lifði hún af. Hún leit aftur fyrir sig og sá að Halli leit snöggt undan. „Vá, það er bara svona...“ „Úff, loksins komin heim. Alltaf jafnóheppin," hugsaði hún með sjálfri sér og gleymdi sér smám saman. Ding-dong. Bjallan hringdi. „Ó, nei. Ekki gestir,“ hugsaði Karen. „Hæ, hæ. Komiði inn,“ heyrði hún mömmu sína segja. Hún sofnaði ekki fyrr en um eitt- leytið þegar gestirnir fóru. Næsta dag ætlaði hún varla að geta komið sér úr rúminu. „Ég vildi að það kæmi svo mikill blindbylur að skólinn sykki í snjó,“ muldraði hún. Svo tókst henni einhvern veginn að koma sér á fætur. Þá hringdi síminn. „Halló, er þetta Karen?“ sagði röddin. „Já.“ „Er mamma þín þarna? Segðu henni að hún sé of sein í vinnuna." Lagt á. Hún labbar inn í hjónaherbergi, ýtir við mömmu sinni og segir henni að hún sé orðin of sein. Eftir smá-stund springur allt saman. „Djö...., klukkan er orðin hálf níu og ég sem átti að vera mætt.“ Hún klæðir sig og brunar út en gleymir samt ekki að kveikja sér í sígarettu. Svo var það pabbinn: „Andsk...., og ég sem þarf að vera mættur út á flugvöll eftir kortér.“ Karen glotti bara og labbaði út í rólegheitum. „Þeim er nær að fara aldrei að sofa fyrr en undir morgun." RINGGGGGG. Síminn hringdi. Pabbi Karenar svarar. „Já, komdu sæl. Þetta er hann. Á morgun? í skólanum? Allt í lagi. Við komurn bæði. Bless.“ 33

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.