Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 53
TIW TIHM IÍ
Tína Turner heitir fullu nafni
Annie Mae Bullock og er fædd
26. nóvember 1939 í Nutbush
1 Tennessí í Bandaríkjunum. Hún er því í
bogmannsmerkinu. Augnalitur hennar er
brúnn og háralitur svartur. Hún er 166 sm
a hæð. Hún er að hálfu Indíáni og að hálfu
Svertingi. Hún varð snemma söngelsk, tók
undir með útvarpinu og söng í kirkjukór
haptista. Þegar hún var sautján ára fór hún
1 fyrsta skipti með systur sinni í Manhattan-
hlúbbinn í Hlöðvisborg (St. Louis), heima-
hæ þeirra. Á sviðinu var hljómsveitin
Klngs of Rythm.
Höfuðpaur hljómsveitarinnar var svart-
Ur og lék ýmist á orgel eða gítar. Hann hét
fke Turner. Anna Mæja (Annie Mae) var
sv° heilluð af honum að hún kom aftur og
aftur til að hlusta á hljómsveitina. Hana
angaði til að syngja með henni en þar sem
Ike valdi aðeins fallegar söngkonur vildi
hann ekki leyfa henni að spreyta sig.
Annie var nefnilega ekkert sérstaklega
lagleg á þessum tíma. Systir hennar, Elín,
fékk hins vegar tækifæri til að syngja með
hljómsveitinni. Þegar hún steig á sviðið í
fyrsta sinn féll henni allur ketill í eld en
systir hennar var ekki lengi að koma henni
til hjálpar, greip hljóðnemann og byrjaði
að syngja. Hún dró ekki af sér og fólkið
tók eftir henni. Það leið ekki á löngu þar til
henni var boðið fast starf með hljóm-
sveitinni.
Fljótlega fóru Ike og Annie Mae að vera
saman. Hann gaf henni nafnið Tína og það
hefur hún verið nefnd æ síðan. Hann fékk
hana til að klæðast djörfum klæðnaði úr
dýraskinni á sviðinu. Hún átti að vera
nokkurs konar frumskógadrottning. Þrjár
konur voru ráðnar í hljómsveitina til að
syngja bakraddir og sveitin var skýrð „The
Ike and Tina Revve“. Um það leyti varð
Tína ólétt og þau giftu sig.
í byrjun sjöunda áratugarins höfðu þau
Ike og Tína ærna ástæðu til að fagna vel-
gengni enda þótt þau væru ekki enn komin
í fremstu röð tónlistarmanna í Bandaríkj-
unum. En þau voru á réttri leið. Árið 1966
valdi Rolling Stones þau sem upphitunar-
hljómsveit á tónleikaferð um Evrópu. Tina
vakti mesta athygli allra.
„Hún var alveg rosaleg,“ segir Mikki
Jagger þegar hann rifjar upp þessa tíma.
„Hún var alveg rosaleg," heldur hann
áfram. „Hún birtist á sviðinu og lét öllum
illum látum. Ég heyrði lætin í henni bak-
sviðs og undirtektir áhorfenda og velti fyrir
mér hvort það væri ekki vitleysa að við
kæmum fram á eftir henni.“
53