Æskan - 01.02.1989, Síða 10
J ' ~
m i
IS
hí
EKki þrautalaust!
Kæri Æskupóstur!
Mér frnnst þrautirnar í Æskunni
dálítið erfiðar og sumar skil ég ekki.
Væri ekki hægt að hafa þær dáhtlu
auðveldari og kannski fleiri. Það þarf
ekki að veita verðlaun fyrir þær allar.
Gaman væri að fá veggmynd af
Mikkjáli Jackson!
Hvernig dragið þið úr lausnum við
þrautum? Verða bréfin, sem þið fáið
fyrst, neðst í bunkanum?
Frída Ammendrup,
Brautarási 15, 110 Reykjavík.
Svar:
Við reynum að hafa þrautirnar af
ýmsu tagi - sumar auðveldar og aðr-
ar erfiðar úrlausnar. En við fjölgum
þeim ekki frá því sem nú er því að þá
getum við ekki haft blaðið eins fjöl-
breytt.
Dregið er af handahófi og lausnir,
sem berast fijótt, eiga jafnmikla
möguleika og þœr sem berast seint en
samt innan settra tímamarka. Þeirra
er ekki getið í blaðinu en við höfum
áður tekið fram að þau eru sem nœst
mánuði eftir að blaðið með þrautun-
um berst lesendum.
Við vonum að þér líki veggmynd-
Kennaravandamál!
Kæra Æska!
Ég er í . . .skóla. Kennarinn minn
er ömurlega leiðinlegur og fer í taug-
arnar á öllum í bekknum. Hvað er
hægt að gera við svona leiðinlegan
kennara? Hann er svo vitlaus og
óþolandi að maður fær taugaáfall.
Getur þú gefið mér ráð við þessum
asnalega kennara mínum?
Marilyn Monroe.
Svar (ef svar skal kalla. . .):
Reyndu að hœtta taugaáföllum og
fáðu alla í bekknum til að vera Ijúfa
og góða og þekka og indœla og eftir-
tektarsama og skemmtilega. Þá hlýtur
kennarinn að draga dám af ykkur. . .
Ef þú ert afar Marilyn-leg er hann
kannski bara „í kerfi“. Kannski œttir
þú að leitast við að vera venjuleg
skólastúlka.
Beri þetta ekki árangur má auðvit-
að rœða við skólastjórann. Ef þetta er
ekki hann. . .
Jóhann G. Jóhannsson
Heill og sæll, Æskupóstur!
Ég er í 7. bekk í Eyjafirði og er yfir
mig hrifin af Jóhanni G. Jóhannssyni
sem lék Júlla í myndinni um Nonna
og Manna. Viltu birta einhverja fróð-
leiksmola um hann og mynd? Mér
finnst hann vera afar sætur en á enga
mynd af honum og veit ekkert um
hann nema nafnið - ekki einu sinni
fullt nafn. Viltu liðsinna mér?
H
Svar:
Þig og fleiri getum við glatt með því
að Jóhann Gunnar svarar spurning-
um aðdáenda í samnefndum þœtti í
þessu blaði.
Textar
vinsælla laga
Æskupóstur góður!
Ég er hafnfirsk stúlka og mig lang'
ar til að koma með tillögu. Hvernig
væri að birta texta vinsælla laga a
einni eða tveimur blaðsíðum? Nefna
má Smooth Criminal og Þig bara þig-
Ég vona að þið gleymið ruslaföt'
unni. . .
Unnandi tónlistar
Svar:
Við vísum á Poppþáttinn. Umsjón-
armaður hans svarar spurningu 111,1
birtingu texta í þessu tölublaði.
Hann er ósKaplega
sætur
Elsku Æskupóstur!
Ég er tíu ára Reykvíkingur
afar ákafur aðdáandi Whitneyiar
Houston. Getið þið birt heimilisfenS
aðdáendaklúbbs hennar?
Ég er í Fossvogsskóla og kennarinn
minn heitir Stefanía. (Hún er frábær1
Bestu vinkonur mínar heita Anna
Dóra og Ragga. Ég á eina vinkonu 1
Svíþjóð. Við skrifumst á. Hún heiúr
Hildur.
Draumaprinsinn minn er ljóshær^(
ur og bláeygur (held ég). Hann
knattspyrnu í sumar. Hann er óskap'
lega sætur. Ég hitti hann í Bústöðum-
Það er bara verst að ég þekki hanfl
ekkert. Hann á heima langt frá fflér-
Ykkar ástkæra
Sigga Sif.
Svar:
Whitney Houston Press Office,
3 Cavendish Square, London Wl>
England.
10 ÆSKAH