Æskan - 01.02.1989, Síða 11
BR05
Æska mín góð!
. þakka fyrir ágætt blað en
)a nframt biðja um fróðleiksmola um
Wjómsveitina BROS, einkum Matt
oss. Mér fmnst hann æðislega
^nugaverður.
Þið mættuð auðvitað birta eitthvað
»gamlar“ stjörnur, svo sem Elvis
resley og Marilyn Monroe.
j P°kkrar spurningar:
• Er Matt Goss ekki aðalsöngvarinn í
nl)ómsveitinni?
Þr Eann yngri en bróðir hans?
• Hvað er Matt gamall? Á hann kær-
ustu.
f' Þr nokkur von til þess að BROS
°nti til íslands. Viljið þið láta vegg-
mynd af hljómsveitinni fylgja blað-
lniO J
Billy Jean
Svar:
{ 7■ tbl. Æskunnar 1988 sögðum við
“ itarlega fnf ensgu hljómsveitinni
ROS - Lagsbrœðrum. (Bls. 53) Þar
ernur fram að Matthew Weston Goss
S söngvari hljómsveitarinnar. Þeir
u e Damon Goss eru tvíburar en
u as skaust í heiminn á undan
Þeir eru fœddir 29. septem-
^ Beiðni um veggmynd tökum við til
^“'ulegrar athugunar. Okkur er
1 kunnugt um hvort hann á unn-
sS.tu- Ekki hefur frést að hljómsveitin
e vcentanleg hingað til lands - en
alltafmá vona. .
I Bolungarvík. . .
^æra ÆLska!
Ég ætla að skrifa nokkrar línur um
.e ®8slífið í Bolungarvík af því að þið
beðið um landsbyggðarfrétt-
piskótek er haldið einu sinni í
fyrir krakka í 4., 5. og 6.
6 k °8 þá er alltaf mikið fjör, - að
13 sögðu. . . Félagsmiðstöðin er op-
in einu sinni í viku fyrir þennan ald-
urshóp. Þar eru spiluð margs konar
spil og hlustað á tónlist.
Hálfsmánaðarlega er haldið diskó-
tek ætlað krökkum í 7., 8. og 9. bekk
og félagsmiðstöðin er þeim opin
tvisvar í viku að ég held.
Hér er hægt að æfa sund, knatt-
spyrnu og handknattleik og bráðum
verður hnit-námskeið (badmin-
ton. . .) fyrir nemendur í 5.-9. bekk.
Á staðnum er líka skátafélag.
Með kveðju,
Ein á Bolungarvík.
Tommi Cruise og
Gæludýrabúðardrengir
Kæra Æska!
Ég þakka fyrir gott blað. En það
mættu vera fleiri viðtöl eins og við
Berglind Rán. Mig langar að biðja
um veggmynd af Tom Cruise og
heimilisfang hans - og einnig póst-
fang aðdáendaklúbbs Pet Shop Boys’.
N.Þ.A.
Svar:
Tom Cruise, CAA 1888 Century Park
East,
1400 Los Angeles, CA90067, USA.
Pet Shop Boys Fan Club,
20 Manchester Square,
London WIA ÍES, England.
Bílveltan
Kæri Æskupóstur!
Fyrir jólin kom dálítið óhapp fyrir
okkur mömmu. Við vorum að fara til
Borgarness að búa til laufabrauð. Við
vorum á bíl. Allt í einu missti
mamma stjórn á bílnum og hann valt.
Mamma fór upp á veg og gat stöðvað
rauðan bíl. Svo kom rúta og hún nam
staðar. Það var sími í henni og bíl-
stjórinn hringdi í ömmu og sagði frá
veltunni. Svo hringdi hann í sjúkra-
bíl. Hann var skotfljótur. Fyrst fór-
um við öll í sama bílinn en síðan fór
ég í annan. Við fórum á Sjúkrahús
Akraness. Þar vorum við einn dag en
þá kom afi og sótti okkur.
Atli Týr Ægisson.
Pennavinir
Ágæta Æska!
Mig langar ákaflega mikið til að
skrifast á við útlending, annaðhvort
Dana eða Englending, en ég veit ekki
hvert ég á að snúa mér. Getur þú að-
stoðað mig, kæri Æskupóstur?
Þakkir fyrir frábært blað.
Gunnhildur.
Svar:
í pennavinadálki finnur þú nafn á
enskum dreng sem þú gœtir skrif-
að. . .
Fá bréf berast okkur frá Danmörku
en svo mörg norsk börn og unglingar
senda okkur beiðni um pennavini að
við getum ekki birt öll nöfnin. Bréf til
þeirra má skrifa á dönsku. . . (Sjá
pennavinadálk)
Við höfum þó leitað uppi nöfn
nokkurra danskra krakka sem óska
eftir pennavinum:
Pia Rasmussen, Wichmandsvej 45,
- og Lone Bille, Vantorevej 49,
- báðar 4880 Nysted, Danmark. Þœr
eru tólf ára og hafa dálœti á A-Ha og
Madonnu.
Lars Hansen, Rosenvœnget 9, 4160
Herlufmagle, Danmark. Tólf ára
drengur sem vill skrifast á við 11-13
ára stúlkur. Eftirlœti hans eru BROS,
Belinda Carlisle og Sandra.
í tímaritinu Vi unge, Postbox 128,
2900 Hellerup, Danmark, er penna-
vinadálkur. Það kostar tiu danskar
krónur að fá nafn sitt og upplýsingar
um áhugamál birt t dálkinum (með
mynd ef þú vilt. . .) Bréfið á að
merkja M0DESTEDET - neðst í
vinstra horni.
Kæra Æska!
Okkur langar til að eignast penna-
vini sem eiga heima í Noregi, Dan-
mörku eða Svíþjóð. En þeir verða að
skrifa á íslensku. Ef einhver veit um
krakka í þessum löndum sem vilja
skrifast á við íslendinga biðjum við
hann að vera svo góðan að skýra okk-
ur frá heimilisfanginu. . .
Ása og Elsa,
Austurgötu 4,190 Vogum.
ÆSKAU 11