Æskan - 01.02.1989, Síða 45
sem hann á (apa, geitum, slöngu
o.fl.) og troðfullu húsi af geimleik-
föngum. Hann er sagður hræðast
öldrun og kvef allt að því sjúklega.
Hvað sem til er í þeim sögum þá hag-
ar hann sér oft einkennilega. Þegar
vinkona hans og hjálparhella árum
saman, Diana Ross, giftist ljóshærð-
um Svía fyrir nokkrum árum fauk
illa í hann og hann söng níðvísuna
>,Diana óþverri“ (Dirty Diana) inn á
plötu.
^ 'kkjáll var adeins fimm ára þegar
ann hóf að vinna á skemmtunum.
- Póstáritun hans er:
THE WONDERFUL WORLD
OF M. JACKSON,
P.O. Box 1804, Encino,
California 91426, U.S.A.
- Plötulisti Mikkjáls lítur þannig út:
Ben, 1972
Got To Be There, 1972
Best of, 1975
Off The Wall, 1979
One Day In Your Life, 1981
Thriller, 1982
Ain‘t No Sunshine, 1982
Bad, 1987
fcPþliólfiÓ
U2, Duran Duran, Cure og 5/
h-draumur
Kæra Popphólf!
Ég er ein af mörgum sem sáu U2-
myndina. Mig langar til að vita eitthvað
meira um hljómsveitina. Það sem þið haf-
ið skrifað um U2 til þessa er ekki svo mik-
ið.
Erla Ó. Arnardóttir,
Hjarðarhaga 26, Reykjavtk.
Duran Duran
Kæra Popphólf!
Getið þið sagt mér fullt nafn og heimil-
isfang Bonos, söngvara U2?
S.A. Jónsson.
Heil og sæl!
Mig vantar heimilsfang Duran Duran
og upplýsingar um U2, t.d. hvenær U2
var stofnuð o.s.frv.
Elín Björt Halldórsdóttir.
Kæri Poppþáttur!
Getur þú birt plötulista U2 og Cure og
sagt frá S/H draumi? Getur þú birt ís-
lenska og óþýdda útlenda texta?
Tinna, Kópavogi.
Svar:
Söngvari írsku rokksveitarinnar U2
fæddist 10. maí 1960. Honum var gefið
nafnið Páll (Paul) Hewson. Vegna sterkrar
söngraddar er hann ætíð kallaður „Radd-
sterkur“ (Bono Vox). í gagnfræðaskóla í
Dyflinni lenti Bono í slagtogi með
trommaranum Larry Mullen, gítarleikar-
anum Davíð „The Edge“ Evans og bassa-
leikaranum Adam Clayton. Þeir hrifust
allir af rokkuðum takt-blús (rythm & blu-
es) og hófu feril sinn sem hljómsveit með
því að spila lög eftir Rolling Stones o.fl.
Pönk-byltingin breska ‘77 hafði gríðarleg
áhrif á írska kvartettinn. Þeir fjórmenn-
ingar lögðu eftirhermur á hilluna og hófu
að flytja eigin rokkmúsík í stíl við pönk og
nýrokk. Jafnframt breyttu þeir nafni
kvartettsins úr Feedback í Hype og síðan í
U2. Nafnið U2 býður upp á orðaleik
(U=þú, þið 2=tvö, tveir, tvær, líka). Að
auki er nafnið sótt í heiti á bandarískri
njósnaflugvél sem Rússar skutu niður yfir
Sovétríkjunum fyrir nokkrum áratugum.
Þannig vísar nafnið líka til þess að liðs-
menn U2 láta sig umhverfið varða. Eng-
um stjórnmálafyrirbærum hefur tekist að
„eigna“ sér U2 en það er ólíkt flestum
pólitískum skemmtikröftum. Þeir eru
nefnilega eins og Joan Baez, bandarísk
vinkona þeirra, einlægir friðarsinnar.
Áhuga sinn á friði blanda þeir trúboði fyr-
ir kristni.
Friðar- og trúarboðskapur er fyrirferð-
armikill í músík og viðtölum U2. Þeir eru
ófeimnir við að móðga hverja þá sem þeir
telja að brjóti mannréttindi. Þannig gagn-
rýna þeir harkalega stríðandi fylkingar
kaþólskra og mótmælenda í írlandi, bresk
yfirvöld, breska herinn og her Í.R.A.,
bandaríska herinn í S-Ameríku, sovéska
herinn í Afganistan o.s.frv. Boðskap sín-
um til áréttingar veifar Bono gjarnan risa-
stórum hvítum fána á hljómleikum.
„Hvíti liturinn boðar frið og hann tilheyr-
ir engu einu ákveðnu fyrirbæri," segir
Bono.
ÆSKAJST 45