Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1990, Síða 21

Æskan - 01.10.1990, Síða 21
snemma næsta morgun með Flugfélagi Júgóslavíu, hörmulegu flugfélagi. Þorsteinn: Það var ekkert að borða i flugvélinni nema einhverjar sjálfdauðar rollur og ekki til neinir gosdrykkir nema Sigga: Við höfðum ekkert sofið i einn og hálfan sólarhring... sódavatn. Eins og þið vitið er Kolbeinn kafteinn ekki mjög hrifinn af sódavatni og n þar sem ég er mikill Tinnaaðdáandi get ég ekki drukkið sódavatn. Ég varð því að drekka mjólk á leiðinni heim. Vilja McDonalds hamborgara til Islands Grétar: Við millilentum í London og gátum skoðað borgina og borðuðum á veitingastað Makkdónalds (McDonalds). hað er heimskulegt að það skuli ekki vera til slíkur staður á íslandi. Við mótmælum því öll! Við viljum láta setja á laggirnar nefnd sem vinnur að því að fá Makkdón- alds inn í landið. Helst Makkdónalds ráðu- neyti! Þar verður Þorsteinn auðvitað í for- svari. Við viljum að þetta komi fram í greininni þar sem Makkdónalds er komið til Sovétríkjanna. Þorsteinn: Við höfum áhyggjur af þessu. Sigga: Svo fórum við heim um kvöldið °g komum til íslands seint og síðar meir, einhvern tíma eftir miðnætti. Þorsteinn: Þá kom margt fólk og henti í okkur blómum. Það hélt að við værum ekki með nógan farangur! Sigga: Við höfðum ekkert sofið í einn og hálfan sólarhring þegar við komum heim! Þorsteinn: Þá höfðum við verið í Evró- sjón, á diskóteki, á flugvellinum í , Júgóslavíu, á flugvellinum í London, niðri í bæ í London, á leiðinni heim og síðan þurftum við líka að fara að bera blóm! Þá fórum við alveg niður á torg...! - Sigga og Grétar, hvernig finnst ykkur að vinna með strákunum? Grétar: Það er ekki hægt að lýsa því í stuttu máli. Það er nefnilega svo margflók- ið að vinna saman í hópi. Þetta er eins og fjölskylda. Það skiptast á skin og skúrir. Það koma upp alls konar aðstæður. Yfirleitt hefur samstarfið gengið mjög vel. Það virð- ast allir innan hópsins skilja tilgang þessar- ar hljómsveitar. Þorsteinn er til dæmis mik- ið Ijúfmenni. Sigga: Hann er fyndinn og mikill brandarakarl. Hann hefur líka sérstætt and- lit; þið sjáið það alveg! Þetta eru allt ágætis grey, ungir strákar og við Grétar erum eins og mamman og pabbinn! Einar Bragi: Það væri fljótlegra að nefna þá staði sem við spiiuðum ekki á ... Grétar: Jónsi er svolítið hlédrægur og Einar er grallari. Það er gott að vinna með þessum drengjum. - Hvernig móttökur fenguð þið þegar þið komuó frá Júgóslavfu? Sigga: Sjónvarpið tók á móti okkur og útvarpsstjórinn sjálfur. Við fengum blóm og það var haldin smá ræða fyrir okkur. Einnig var fólk frá öðrum útvarpsstöðvum úti á flugvelli, blaðamenn og Ijósmyndarar. Eiður: Svo var haldið hóf í Húsi versl- unarinnar daginn eftir. Sigga: Viðtökurnar voru mjög góðar. - Hvernig var á 17. júni? Sigga: Við komum fram í Hafnarfirði og svo var „eftirhermukeppni" niðri í bæ í Reykjavík. Þar kepptu tuttugu krakkar um það hverjir þeirra líktust okkur Grétari mest. Við lékum aftur í Lækjargötu um kvöldið. ' Þorsteinn: Þarna kom berlega í Ijós < k hvað tæknin getur verið erfið viðfangs. Það voru ytri þættir sem ollu því að öllu seink- aði hjá okkur. Tæknimaðurinn okkar knái misskildi eitthvað og hélt að skemmtunin ætti að fara fram í Hafnarfirði. Hann fór því til Hafnarfjarðar með öll tækin. Þegar enginn úr Stjórninni var kominn til Hafnar- l fjarðar og hann var orðinn einmana þar áttaði hann sig á því að skemmtunin ætti líklega að fara fram annars staðar. Sigga: En þetta hafðist nú allt. Og í Lækjargötunni fengum við afhenta gull- plötuna okkar. Eiður: Gull og ekki gull. Þetta var silf- urlituð gullplata. t Öðruvísi að spila úti á landi en í Reykjavík - Hvernig var hringferðin í kringum landió? Eiður: Þetta er þriðja sumarið sem við förum í hringferð. Flestar hljómsveitir fara l ■ slíkar tónleikaferðir á hverju sumri. Þorsteinn: Já, fólk úti á landi verður að lyfta sér upp og eyða peningunum sínum og þá komum við inn í spilið! 1* Einar Bragi: Við spiluðum um allt land á öllum helstu stöðunum. Það væri fljót- legra að nefna þá staði sem við spiluðum ekki á. Reyndar spiluðum við ekki á ísa- firði og ekki á Þórshöfn á Langanesi. Eiður: Það má geta þess fyrir Þórshafn- arbúa að þeir geta verið ánægðir með það að tveir af sex f Stjórninni eiga ættir sínar að rekja þangað. Það er ótrúlega hátt hlut- fall miðað við að þar búa aðeins nokkur hundruð manns. Það eru jafnmargir ættað- Eiður: Gull og ekki gull. Þetta var silfurlituð gullplata. ÆSKAN 21

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.