Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1992, Blaðsíða 10

Æskan - 01.05.1992, Blaðsíða 10
„Það voru margir búnir að biðja mig um það, líka í fyrra og árið þar áður. Vinkona mín, Þórunn Lárus- dóttir, tók þátt í keppninni núna svo að ég ákvað að vera með. Við ákváð- um þetta í sameiningu." - Var mikill undirbúningur fyr- ir þá keppni? „Já, undirbúningurinn byrjaði 1. febrúar og keppnin sjálf var 26. mars. Það var mikið um gönguæf- ingar og líkamsrækt.“ - Kom það niður á náminu? „Já, það gerði það. En sem betur fer átti ég fáar einingar eftir á þess- ari seinustu önn minni í M.H. Svo að ég réði alveg við þetta. Ég þurfti ekki að fá mikið frí í skólanum því að æfingarnar voru aðallega um helgar. Mig minnir að ég hafi þurft að fá tvo frídaga, daginn sem keppn- in var og annan dag þegar mynda- tökur fóru fram. Það var sama sag- an með keppnina um titilinn Ungfrú ísland. Ég þurfti einnig að skrópa tvo daga á meðan undirbúningur fyr- ir hana stóð yfir.“ - Undirbjugguð þið ykkur jafn- mikið fyrir þá keppni? „Nei, eiginlegaekki. Það varfrek- ar stuttur tími á milli, rétt rúmar þrjár vikur. Við fórum aðallega í líkams- rækt. En hins vegar fóru allir pásk- arnir í undirbúning. Þá var átta klukkutíma æfing á hverjum degi. Það bitnaði ekki á próflestri því að ég þurfti bara að fara í tvö lokapróf eftir páska, hin prófin voru tekin inni á önninni." - Hvernig var staðið að vali keppenda til að taka þátt í keppninni Ungfrú ísland? „Dómnefndin réð einhverju, einnig þeir sem stóðu að keppninni, sú sem var með gönguæfingarnar og Katý sem sá um líkamsræktina. Þessir ákváðu í sameiningu hverjar kepptu. Við vorum níu sem héldum áfram.“ - Fylgdistu með fegurðarsam- keppni þegar þú varst yngri? „Þegar ég átti heima í Lúxemborg fylgdist ég ekkert með þessu en eft- ir að ég fluttist heim horfði ég alltaf á keppnina." - Og langaði þig til að taka þátt í keppni síðar meir? „Ég hugsaði nú ekkert um það. Ég tók þátt í Elite-keppninni árið 1988. Ég fór í hana vegna þess að vinkona mín sendi myndir af mér. Ég vissi ekki af því. En ég komst á- fram og fannst mjög gaman að kynnast hinum keppendunum. Þar af leiðandi sá ég engin vandkvæði á að taka þátt í keppninni um titilinn Ungfrú Reykjavík." - Var einhver undirbúningur fyrir Elite-keppnina svipaður þeim sem var fyrir fegurðar- samkeppnina? „Nei, það var ekki jafnstrangur undirbúningur. Það voru tvær, þrjár æfingar fyrir kvöldið sjálft. Það var allt og sumt.“ EG VEIT AÐ EG MUN EKKI BREYTAST - Hvert var álit þitt á fegurð- arsamkeppni áður en þú túkst sjálf þátt í slíkri keppni? „Það er náttúrlega mikið talað um keppnina en mig langaði eiginlega aldrei til að fara í slíka keppni. Það var talað illa um þær sem tóku þátt í henni og kjaftasögur komust á kreik um þær. Þess vegna hafði ég ekki mjög mikinn áhuga á þessu sjálf.“ - En hefur álit þitt breyst núna? „Já, já! Ég veit það að hvorki ég breytist eftir þessa keppni né stelp- urnar sem urðu í öðru og þriðja sæti. Það er gaman að hafa þennan titil en hann á ekki eftir að breyta mér. Það var mjög gaman að taka þátt í keppninni og ég hef ekkert nema gott um hana að segja.“ - Heldurðu að velgengni ís- lenskra stúlkna erlendis hafi breytt almenningsálitinu? „Já, það held ég. Fólk hefur meiri áhuga á keppninni og einnig meiri trú á stelpunum.“ - Hvernig verður undirbúning- urinn fyrir keppnina um titil- inn um Ungfrú Heimur? „Ég veit það ekki alveg. Ég fertil Ítalíu í sumar, kem heim í haust og verð í líkamsrækt einhvern tíma. Svo verður mánaðarundirbúningur er- lendis þar sem keppnin verður hald- in. Ég veit ekki alveg hvar hún verð- „Það er gaman að hala þennan titil en hann á ekki eftir að breyta mér. “ Ljósmynd: Hanna. 7 0 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.