Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1992, Síða 50

Æskan - 01.05.1992, Síða 50
AÐ RJÚFA VÍTAHRING Elsku Nanna Kolbrún! Ég vona að þetta bréf verði birt því að ég hef skrifað oft og mörg- um sinnum og aldrei fengið svar. Vandamál mitt er, eins og hjá mörgum stelpum, að mér finnst ég of feit. Flestir segja: „Hvaða rugl er þetta, þú ert tá- grönn.“ Ég er alltaf að reyna að „passa mig“ en það tekst aldrei. Það er ekki eðlilegt að ég borði alveg fulla máltíð kl. 7 og sé svo orðin ban- hungruð um áttaleytið. Mér finnst leiðinlegt að geta ekki verið í tískufötum. Þegar ég er í sundi er alltaf horft á mig (Mér finnst það). Ég get ekki lifað einn dag án sælgætis, það er hjá mér eins og vímuefni hjá vímuefnaneyt- endum. Annað vandamál: Ég er hrifin af strák sem er ekki í sama bekk og ég og honum er illa við bekk- inn minn. Hvað get ég gert til að hann taki eftir mér? Fitubolla í ástarsorg. Svar: Ég held að sama rótin sé á bak við bæði vandamálin hjá þér: Óá- nægja með sjálfa þig og skortur á sjálfstrausti. Þú virðist þjást af því að þú sért of feit og reynir að gæta þín. Það mistekst. Þú verður leið og óánægð og ekkert breytist. Þetta er slæmur vítahringur og get- ur birst á einhvern hátt f framkomu þinni og fasi. Eitt af undirstöðuatrið- um ef fólk vill ná árangri og láta taka eftir sér (t.d. hitt kynið) er að treysta sjálfum sér. Sjálfstraust er m.a. fólgið í því að læra að trúa á sjálfan sig. Það felur í sér að skoðanir annarra á þér ráði ekki líðan þinni heldur þín- ar eigin. Þú getur vegið og metið upplýsingarnar sjálf. Þú þarft að rjúfa vítahringinn slæma og ákveða hvar skal byrja. Reyndu að gera þér Ijóst hver raunveruleg áhugamál þín eru og beindu athyglinni að einhverju sem þér finnst þú standa þig vel í og bættu þig þar. Það orkar yfirleitt vel að vera góð í einhverju. Lík- amsrækt, sund og skokk gefur líka aukinn innri styrk og bætir útlitið. Gerðu tilraunir til þess að vera upp- örvandi við aðra líka. Hrósaðu fjöl- skyldu þinni og vinum, t.d. einu sinni á dag í eina viku, og kann- aðu áhrifin. Þegar sjálfstraustið batnar minnka áhyggjur þínar af fitunni og möguleikarnir aukast á því að strákurinn, sem þú ert skot- inn í, taki eftir þér. Það eru nefni- lega allt önnur boð sem þú munt koma á framfæri en áður. A OG B Kæra Nanna Kolbrún! Ég á við það vandamál að stríða að vera alveg rosalega skot- in í strák. Við skulum kalla hann A. Ég var einu sinni með honum í bekk en núna er ég flutt. En ég á vinkonu sem er enn þá með hon- um í bekk, við skulum kalla hana B. Ég er alltaf að hugsa um A og mig dreymir hann líka. B er líka skotin í honum og hún segir alltaf að hann sé alveg búinn að gleyma mér. Ég veit ekki hvort hún skrökv- ar eða ekki. En ég get ekki gleymt honum. Hvað á ég að gera? Hvað lestu úr skriftinni? Hvað er ég gömul? Ein ástfangin. Svar: Þegar góðar vinkonur eru skotnar í sama stráknum geta auðveldlega komið upp vanda- mál. Ekki gerist það þó alltaf ef rétt er á málum haldið. Þú von- ast til að A sé skotinn í þér og vinkona þín vonar það sama. Þess vegna gæti verið freistandi fyrir hana að halda að hann sé búinn að gleyma þér og segja þér það. Það er fátt jafn mikilvægt og góð vinátta. Þess vegna tel ég að þið vinkonurnar eigið að standa vörð um vinskap ykkar hvað sem þessum strákamálum líður. Þið þurfið að tala saman um það. Þú þarft að heyra hjá henni hvernig hún metur vináttu ykkar. Vináttan endist yfirleitt betur en skot og hrifning á ykk- ar aldri. Þess vegna þarf að gæta hennar vel. Margar góðar vinkonur hafa lent í því sama og þið. Góðar vinkonur hafa oft svipaðan smekk og skoðanir á mönnum og málefnum. Sumar gera með sér samkomulag um vináttuna og hvernig væri hugsanlegt að bregðast við ef strákurinn væri hrifinn af annarri og hafnaði hinni. Þið getið engu ráðið um það en þið getið ráðið því hvort þið látið það eyðileggja vináttu ykkar. Önnur leið gæti líka verið sú að þið gerðuð samkomulag um að ræða sem minnst saman um þetta skot hvor við aðra. Þið vit- ið það báðar að þið eruð skotn- ar í sama stráknum. Þið vitið hins vegar ekkert hvað það mun standa lengi. Reynslan sýnir að tilfinningar breytast fljótt á þess- um árum og þá er þetta vanda- mál úr sögunni. Það er ekki nauðsynlegt að ræða alla hluti við vini sína. Vangaveltur hjá ykkur um það í hvorri hann sé skotinn, hverju hann hafi gleymt o. s. frv. geta magnað upp sam- keppni á milli ykkar og er á- stæðulaust. Þú þarft ekki endilega að reyna að gleyma stráknum. Reyndu að skilja tilfinningar þín- ar. Hvað er svona sérstakt við þennan strák? Af hverju höfðar hann sérstaklega til þín? Þorir þú að líta á aðra stráka og bera saman? Veltu þessu fyrir þér. Skriftin á nokkuð langt í land til þess að verða fullmótuð en hún er læsileg. Ég tel að þú sért á aldrinum 10-12 ára. S 4 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.