Æskan - 01.05.1992, Side 42
„GAMAN
í UNGLINGAVINNUNNI"
Rætt við Þóru og Einar á Eg-
ilsstöðum
r
Imiðjum Egilsstaðakaupstað voru
tveir unglingar, strákur og stelpa,
að dreifa skít úr stórum haugum
yfir túnspildu í fyrrasumar þegar ég
kom þar að. Ekki beinlíns starf sem
allir fást til að vinna með glöðu geði.
Og fnykurinn! Almáttugur!
Mig langar til að taka þessa
krakkatali fyrirÆskuna.
Mér dettur í hug að grípa fyrir nef-
ið áður en ég veð yfir skítabreiðuna
til þeirra en svo hugsa ég með mér
að ég geti ekki látið þá sjá hvað ég er
hégómlegur. Ég horfi á lakkskóna
mína og skítabreiðuna til skiptis,
dreg síðan djúpt andann og held
honum niðri á meðan ég stika yfir
hana eins og herforingi.
Þarna eru þau Þóra Pétursdóttir
13 ára og Einar Þorsteinsson 14 ára
að verki.
- Hvar fáið þið allan þennan
skít? spyr ég - Ifkt og sá gæti
spurt sem aldrei hefur séð
dýr.
„Sennilega er hann fenginn á
Truntubökkunum," svarar Einar og
virðist hálfundrandi á spurningunni.
- Truntubökkunum? Hvað er
nú það?
„Það er hesthúsagata," svarar
hann að bragði.
- Finnst ykkur þetta ekki
sóðaleg vinna sem þið fáist
við? spyr ég og er aðeins far-
inn að venjast lyktinni.
„Nei, þetta er stórskemmtilegt
starf!“ svarar Einar um hæl - en
Þóra hlærað honum.
- Hafið þið eingöngu unnið
störf af þessu tagi í sumar?
„Nei, nei,“ svara þau. „Við höfum
fengist við sitt lítið af hverju; verið
að gróðursetja, slá, raka og fleira."
- Nú er stundum talað um að
Þóra og Einar við slörf í unglingavinnunni í fyrrasumar.
4 6 Æ S K A N