Æskan - 01.05.1992, Qupperneq 19
BORNIN
OG UMFERÐIN
Það er svo skrýtið á vorin. Þá
er einhvern veginn eins og að
börn skjótist fram á sjónar-
sviðið og verði áberandi og auðvit-
að setja þau skemmtilegan svip á
umhverfið. Yfir veturinn verðum við
ekki mikið vör við þau en um leið og
sólin er farin að hækka á lofti birt-
ast þau og á kvöldin kveða við hlátra-
sköll og gleðilæti. Þá eru þau að leika
sér.
Börnin eru mikið úti á sumrin, á
götum og gangstéttum. Þau eru á
reiðhjólum, á hjólabrettum og gang-
andi. Gleði og gáski skín út úr hverju
andliti og allt virðist vera í góðu lagi.
En allt í einu gleymir eitt barnið sér,
á hjólinu eða á hjólabrettinu. Stund-
um ter það nánast óafvitað út á götu
og þarerógnin. Bílarnir, þessi stór-
kostlegu farartæki, sem geta verið
svo falleg og sakleysisleg þegar þau
eru kyrrstæð, geta breyst í stór-
hættuleg, já, lífshættuleg verkfæri ef
sá sem stýrir sýnir ekki gætni. Og
stundum dugar ekki gætni. Börn geta
skotist fyrirvaralaust út á götu og þá
kann hættan að vera á næsta leiti.
Á HJÓU - MEÐ HJÁLM
Reiðhjól - marglit, með mis-
mörgum gírum. Næstum allir krakk-
ar eiga hjól og stundum fer hópur-
inn saman í hjólaferð. Öll börn þurfa
að vita að fyrir reiðhjól gilda ná-
kvæmlega sömu umferðarreglur og
fyrir bíla. Það á að hjóla hægra meg-
in sé hjólað á götunni og hjólreiða-
menn mega hjóla á gangstéttum ef
þeir taka fullt tillit til þeirra sem eru
gangandi. En til að mega hjóla á
götum verða börn að vera 7 ára,
samkvæmt lögunum, en það er eig-
inlega ekki hægt að mæla með því
að yngri börnum en 10 ára sé leyft
að hjóla úti á götu. Umferðin er svo
mikil og verði óhapp er barn á reið-
hjóli óvarið og mikil hætta á alvar-
legum áverkum. En hvað getum við
gert til að koma í veg fyrir að þeir
verði mjög alvarlegir?
Á síðustu árum sjáum við sífellt
fleiri börn sem eru með hjólreiða-
hjálma. Þessi hjálmar eru mjög fal-
legir og marglitir og allir eiga að
getafundið hjálm sem þeim hentar.
I
En hvers vegna nota krakkar
hjálma? Þegar barn dettur á hjóli
er talsverð hætta á að það meiði sig
á höfði. Þessir höfuðáverkar geta
orðið mjög alvarlegir. Sé barn, sem
dettur, hins vegar með hjálm og fái
það högg verður hjálmurinn oftast
til hlífðar og stundum brotnar hann.
Þannig tekur hann á sig höggið.
Þess eru dæmi að börn sem hafa
dottið af hjóli hafi dáið af högginu.
Oft virðist samt slíkt óhapp vera
smávægilegt en reynist síðan hafa
alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Þess vegna eiga börn aldrei að vera
úti að hjóla nema með hjálm.
Hjálmarnir geta verið mjög léttir og
þægilegir og þar að auki mjög fal-
legir. Þess vegna ætti að vera eft-
irsóknarvert að vera með hjálm.
Það er góð regla að sjá til þess
að hjólið okkar sé alltaf í góðu lagi.
Við verðum að fylgjast með því að
hemlar séu í lagi og öll öryggistæki
í eins góðu ástandi og kostur er.
BELTIN BJARGA
Á sumrin eru börn líka oft á
ferðalagi með foreldrum sínum,
kannski í bíl. Þá þurfa allir sem í
bílnum eru að muna eftir að spenna
beltin. Það á jafnt við um ökumenn
sem farþega á öllum aldri. Bílbelti
hafa bjargað mörgum mannslífum
og við getum skapað okkur öryggi
með því að spenna þau þegar við
leggjum upp í ferðalag, já, þó að
við förum ekki nema nokkur hund-
ruð metra.
Spennum beltin í bflnum og
notum hjálm þegar við erum á
hjóli.
Sigurður Helgason fulltrúi
hjá Umferðarráði.
Æ S K A N 7 9