Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1992, Page 20

Æskan - 01.05.1992, Page 20
Akureyri ... Iþróttirnar I SÆTI Rætt við vinina Berg Má og Halldór Jóhann Viðtalið var tekið sumarið 1991 Þeir Bergur Már Bragason og Halldór Jóhann Sigfússon voru að leika golf á æfinga- svæði KA á Akureyri þegar blaða- maður Æskunnar spratt þar óvænt upp úr jörðinni og leyfði sér að trufla þá stutta stund. „Það er engin knattspyrnuæfing núna svo að við ákváðum að nota tækifærið og spila golf,“ sögðu þeir. Strákarnir kváðust grípa í golf- kylfur annað veifið þegar veður leyfði. Þeir eru vinir og skólabræður og jafn- gamlir; 13 ára. „Ég var að kaupa mér nýtt golfsett og við erum að prófa það,“ sagði Bergur. „Þetta er bara hálft sett með sjö kylfum - en það er nóg fyrir mig. Ég er aðeins byrjandi í golfi en hef í hyggju að ganga í Golfklúbb Akur- eyrar fljótlega. Hann er fyrir bæði unga og aldna.“ Halldór er ekki heldur í neinu golf- félagi. Hann ætlaði að ganga í það í fyrra en hætti við. Hann sagði að golfíþróttin yrði að vera aukaíþrótt hjá sér því að mikill tími færi í að æfa knattspyrnu og handknattleik. „Ég æfi báðar greinarnar með 4. flokki KA,“ sagði hann. Bergur bætti við að það gerði hann líka. „Halldór leikur sem aðalmaður með fótboltaliðinu - en ég er hins vegar í b-liðinu,“ sagði hann. „En svo erum við í sama liði í handboltanum." - Er mikill rfgur milli fylgis- m' manna Akureyrarliðanna, KA og Þórs? „Já, það ber dálítið á því þegar liðin eigast við. Þáfærist mikil harka í leikinn." - Er golfið ekki daufleg íþrótt miðað við boltaíþróttirnar? „Það er allt öðruvísi," svöruðu piltarnir. „Þetta er kannski meira spurning um tækni, að standa rétt og halda rétt á kylfunni. Aðalatriðið er að hitta kúluna vel. Það þarf að ganga mikið í golfi svo að þetta er góð líkamleg þjálfun ekki síður en fótbolti og handbolti." LÖGGILTIR UNGLINGAR Bergur og Halldór eru í 8. bekk í Gagnfræðaskóla Akur- eyrar. Þeir sögðu að það væru dálftil viðbrigði að vera komn- ir f gagnfræðaskóla eftir að hafa verið f barnaskóla - og þeim liði nú eins og þeir væru orðnir löggiltir unglingar. Halldór vinnur með skólanum, af- greiðir bensín um helgar. „Ætli ég fái ekki svona 10 þús- und krónur í kaup á mánuði," sagði hann. „Það er ágætur vasapeningur." - Truflar það ekki námið að vinna með skólanum? „Nei, nei, ekki ef maður sinnir því vel, lærir strax og maður kemur heim á daginn. Nokkrir fleiri vinna með skólanum, t.d. krakkar sem bera út blöð.“ - Hvernig er það, hjálpið þið eitthvað til við heimilisstörfin? Bergur: Já, ég ryksuga tvisvar sinnum í viku, þvæ oft upp, fer í búð- ir og sitthvað fleira. Ég fæ 600 krón- ur í vasapeninga á viku í staðinn. Það dugar mér alveg. Það er helst að maður eyði í bíóferðir, sælgæti og slíkt. í fyrrasumar var ég líka í vinnu við að hirða garðinn hjá ömmu minni og fékk dálitla viðbótar-vasa- peninga fyrir það. Halldór: Ég hjálpa líka svolítið til heima hjá mér, t.d. við uppþvott. í fyrrasumar hafði ég rúmar 1500 krónur í vasapeninga á viku en það voru laun sem ég fékk greidd fyrir að vera aðstoðarmaður hjá þjálfara 5. flokks í knattspyrnu. - Áttuð þið ekki kost á neinni unglingavinnu? „Nei, það er búið að taka hana af okkur og færa hana ofar í aldurstig- ann. Hún stóð aðeins 14-16 ára krökkum til boða.“ 2 0 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.