Æskan - 01.05.1992, Page 45
Frímerkjasöfnun
er skemmtilegt
áhugamál
Frímerkjasöfnun er bæði skemmtilegt og
fræðandi áhugamál. Hún er krefjandi, en
ánægjan er fyrirhafnarinnar virði.
Þjónusta við safnara
Póstur og sími starfrækir söludeild fyrir safnara
og hún heitir einfaldlega Frímerkjasalan.
Söludeildin annast alla þjónustu við
frímerkjasafnara.
Hafðu samband
við Frímerkjasöluna
ef þú vilt gerast áskrifandi
eða fræðast nánar um starfsemina.
Frímerkjasalan hefursíma 636052, pósthólf
8445, 128 Reykjavík. Frímerkjasalan ertil húsa
í Póstmiðstöðinni í Ármúla, en söludeild
hennar er opin alla virka daga
í pósthúsinu í Austurstræti 5 (R-1).
Vertu áskrifandi!
Ef þú vilt fá ný frímerki reglulega er best fyrir
þig að vera áskrifandi að ákveðnum fjölda
fyrstadagsbréfa og/eða frímerkja. Öll frímerki
eru seld á nafnverði.
Ef þú ert safnari geturðu fengið slíkar fastar
pantanir afgreiddar gegn póstkröfu, þér að
kostnaðarlausu.
FRIMERKJASALAN
PCjJ^PHIL
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík
PÓSTUR OG SÍMI
Afi vökvar garðinn