Æskan - 01.05.1992, Blaðsíða 48
PÓSTUR
HERMIKRÁKUR
EFTIRLÆTI
Kæra Æska!
Viltu byrja aftur með þáttinn Eft-
irlæti en hafa blaðið laust því að
þá er auðveldara að klippa mynd-
irnar úr.
Það væri gaman ef þú hefðir
viðtal við einhverja handknattleiks-
kappa því að þeir stóðu sig svo vel
í B-keþpninni.
Að lokum vil ég segja að mér
finnst þú alveg frábærlega gott blað
og ég vona að svo verði áfram.
Lísa Simpson.
Kæra Æska!
Ég sendi þér skrýtlu:
Óli: Tíu hermikrákur stóðu á
kletti. Ein stökk út í sjó. Hve marg-
ar sátu eftir?
Binní: Auðvitað níu.
Óli: Nei! Þær hermdu allar eft-
ir og stukku líka!
Þórey Sjöfn.
LJÓÐ
Kæri Æskupóstur!
Viltu birta þetta?
NÓTTIN
Hann stekkur yfir stóran stein
og þýtur uþp á fjall eins og svört
elding. Það er dimmt, stjörnur
glampa á himni.
Langt uppi á fjalli leynist fögur
hryssa með lítið folald. Þau kúra
bak við stóran stein.
Það hvín í trjánum. Lítil, brún
hagamús skýst inn í holuna sína.
Grimmur refur leitar sér skjóls. Allt
í einu byrjar að rigna. Allt verður
blautt; droparnir falla af trjánum og
fuglarnir byrja að syngja því að nú
er kominn morgunn.
Jóna Bjarney.
Svar: Ef til vill - en segja má
að límmiðarnir hafi tekið við
hlutverki þáttarins.
Ég vona að þér líki vel að Sig-
urður Sveinsson svarar aðdá-
endum í þessu tölublaði.
KARATE-STRÁKURINN
Kæra Æska!
Ég ætla að byrja á því að þakka
fyrir gott blað. Mig langar til að
spyrja þig þessa:
Hvað heitir strákurinn sem lék í
Karate Kid-myndunum? Geturðu
birt veggmynd af honum og fróð-
leiksmola um hann?
Hafrún.
Svar: Hann heitir Ralph
Macchio, f. 4. nóvember 1961 í
Bandaríkjunum. Hann er af
ítölskum ættum, 170 smá hæð,
dökkhærður og brúneygður.
Foreldrar hans heita Ralph og
Rosalie, bróðir hans Steven (lið-
lega tvítugur). Áhugamál hans
eru íþróttir, m.a. karate, og tón-
list. Kvikmyndin Karate Kid var
gerð 1983.
ÞEIR ERU NIU
EÐA ELLEFU ...!
Kæra Æska!
Mig langar til að lýsa drauma-
prinsunum mfnum. Þeir eru níu
eða ellefu. En ég ætla að lýsa
þremur þeirra:
X: Hann er tólf ára, brúneygð-
ur og í skóla í Reykjavík.
Y: Hann er 15 ára og langartil
að verða atvinnumaður í knatt-
spyrnu - brúneygður og á heima
á Reykjanesskaganum.
Z: Hann er lágvaxinn miðað við
aldur - að verða ellefu ára og á
heima í þorpi á Norðurlandi.
Sóley.
Við höfum ekki birt lýsingar á
draumaprinsum og munum ekki
gera það nema í undantekning-
artilvikum eins og þessum...
MEIRA UM DÝR
Kæra Æska!
Við þökkum gott blað. En við
vildum gjarna að meira væri fjallað
um dýr í Æskunni en þið hafið gert.
Líka að oftar væru birtar vegg-
synd að sitja inni í góðu veðri.
Sigurrós.
AÐDÁENDUR MADONNU
Kæra Æska!
Við dáum Madonnu. Getið þið
ekki birt veggmynd af henni? Það
hafa verið tvær veggmyndir af
NKOTB með stuttu millibili í Æsk-
unni og eitthvað hefur verið sagt
frá þeim í hverju tölublaði - en þeir
sem dá Madonnu hafa þurft að
bíða árangurslaust eftir efni um
hana.
Það eru fleiri en við sem vilja
veggmynd af henni. Við biðjum alla
sem dá Madonnu að skrifa og
segja skoðun sína.
María Káradóttir,
Guðný E. Þórarinsdóttir.
Svar: Rétt er það - að und-
anförnu hefur meira verið fjall-
að um Nýju krakkana en
Madonnu. (Myndir af henni voru
þó í 2. og 3. tbl.) Ástæðan er sú
að miklu fleiri hafa beðið um efni
með þeim strákunum en henni.
En við höfum tvisvar birt vegg-
myndir af henni og margsinnis
myndir af dýrum - og myndir á lím-
miðum.
Lísa og Magga Simpson.
Svar: í 4. tbl var veggmynd
af hestum. Mynd af svönum
hefur þú séð í opnunni. Áskrif-
endur Æskunnar fá 32 límmiða á
þessu ári. Á nokkrum þeirra eru
myndir af dýrum.
AÐ SITJA EFTIR ...
Kæra Æska!
Ég hef mikið dálæti á hljóm-
sveitinni New Kids on The Block
og bið ykkur um viðtöl við hana.
Ég læt skrýtlu fylgja:
Pabbinn: Hvers vegna kemur
þú svona seint heim úr skólanum,
Siggi minn?
Siggi: Ég var látinn sitja eftir.
Pabbinn: Hvernig stóð á því?
Siggi: Kennarinn spurði hvað
synd væri og ég sagði að það væri
sagt frá henni mörg undanfarin
ár.
Þess má geta að frést hefur
að Madonna muni leika aðalhlut-
verk í sakamálamynd á næst-
unni. Willem Dafoe leikur verj-
anda hennar.
Einnig hefur heyrst að hún
hafi nýlega gert samning við fjöl-
miðlarisann Time Warner. Talið
er að hún hafi fengið 3,5 millj-
arða íslenskra króna greidda fyr-
ir fram! Hún ætlar á næstunni
að stofna eigið útgáfufyrirtæki,
Maverick - og gefa út bækur,
auk hljómplatna og myndbanda.
Kærar þakkir fyrir bréfin!
Það var gaman að fá Ijóð
og hugleiðingar!
Fréttir úr heimabyggð eru
vel þegnar...
5 2 Æ S K A N