Æskan - 01.05.1992, Page 56
GROSKUMIKILL
GRASFLÖTUR
eftir Guðbjörgu
Gylfadóttur 8 ára.
Fyrir mörg þúsund árum voru
bara tvær eyjar á jörðinni. Önnur hét
Gróskumikill grasflötur en hin Para-
dís.
Á Paradís bjuggu Adam og Eva
og á Gróskumiklum grasfleti bjuggu
Freyja og Arnar. Þau vissu bara um
þessar tvær eyjar enda voru ekki fleiri
til.
En svo kom veturinn á Grósku-
miklum grasfleti en ekki á Paradís.
Síðan sleit Eva eplið af Skilningstré
góðs og ills. Þá gátu þau ekki verið
lengurá Paradís.
Þess vegna skiptu þau. Adam og
Eva fengu Gróskumikinn grasflöt en
Arnar og Freyja Paradís.
Á Paradís eignuðust Arnar og
Freyja Ingólf en á Gróskumiklum
grasfleti eignuðust Adam og Eva
Söru.
Svo heimsóttu Adam, Eva og
Sara Arnar, Freyju og Ingólf.
Sara og Ingólfur giftust og fluttu
á Gróskumikinn grasflöt. En Ingólfi
fannst nafnið Ijótt og nefndi landið
ísland.
Þannig er nú sagan um ísland ...
(Höfundur fékk viðurkenningu fyrir
söguna í smásagnakeppninni ífyrra)
Hvaðerum að
vera þarna fyrir
utan?-Ljósm.:
Elín Karlsdóttir,
Narfastöðum, 551
Sauðárkrókur.
Clara Guðjóns-
dóttir, Hraunbæ
34, 110 Reykja-
vík, tókþessa
mynd afErlusyst-
ursinni sem þykir
gaman að syngja.
NOKKRAR MYNDIR
í sumar verður ekki Ijósmyndakeppni. Hún bíður
næsta árs. Við bendum lesendum á að geyma góðar
myndir, sem þeir taka í sumar, og senda okkur þegar
keppnin verður kynnt.
Að undanförnu hafa borist nokkrar myndir. Við birt-
um fáeinar þeirra hér - en síðan ekki meir fyrr en á
næsta ári.
Það er gott að hafa stuðning við bakið
þegar maður er að læra að sitja! Þetta
eru systkinin Guðjón Smári og Jóhanna
ÖSþ Guðmundsbörn. Háholti 33, 300
Akranesi. Jóhanna Ösp á öskudeginum,
4. mars 1992.
6 0 Æ S K A N