Æskan - 01.12.1992, Blaðsíða 73
aria. í leikherberginu var alltaf kom-
ið saman á hrekkjavökunni og svo
var gengið í hús í búningunum. Tvö
ár í röð voru Donni og Mark klædd-
ir sem ballettdansmeyjar og fullyrða
að það sé hlutur sem muni seint
gleymast.
Sumir tala nú um Donna sem
„Þann villta" en þegar hann var yngri
var hann mjög hlédrægur. Með árun-
um breyttist hann, varð fyndnari en
áður, opnari og sóttist meir eftir at-
hygli. Hann segist sjálfur vera skyn-
samur, mjög skynsamur, kannski of
skynsamur!
Donni og þrír vinir hans, þeir Billy,
Eric og Jamie, stofnuðu hljómsveit
þegar hann var á tólfta ári. En þetta
varð aldrei neitt meira en bílskúrs-
hljómsveit.
Þegar Donni heyrði fyrst rabb
sömdu hann og Mark verk sem var
fimm blaðsíður. Þeir notuðu texta
frá rabbsveit en breyttu nöfnum hér
og þar. Það var kallað „The Ronald
Reagan Rap“.
Vinkona Donna sagði honum að
María nágranni hennar væri að leita
að krökkum í hljómsveit. Donni ætl-
aði að fara í reynsluupptöku en hafði
aldrei tíma til þess.
Dag einn kom María til að sækja
hann en Donni var þá að hjálpa pabba
sínum. Hún sagðist koma aftur seinna
og það gerði hún. Donni og Markfóru
saman og komust báðir inn. Mark
hætti eftirfimm mínútur! Hann sagði
að þetta væri ekki sinn stíll. En Donni
hangir þarna enn...!
Salóme Sigurðardóttir, Bolungarvík:
GAMALT OG Nm
DONNIE WAHLBERG
fæddist 17. ágúst 1969 í
Dorchester sem er hverfi í Boston. Á
þeim tíma átti fjölskylda hans heima
í íbúð þar en keypti ekki hús fyrr en
árið 1974 þegar Donnie (hér eftir
Donni) var orðinn fimm ára. Hann
var sá áttundi af níu börnum foreldra
sinna, Ölmu Conroy og Donalds Ed-
monds Wahlbergs. Elst er Debbie,
svo koma Arthur, Michelle, Paul,
Jimbo, Tracy og Bobby, þá Donni
og loks Mark sem er tveimur árum
yngri en hann. Þau eiga ættir að rekja
til Svíþjóðar en hafa þó alla tíð átt
heima í Boston. Þau Alma og Dónald
skildu fyrir mörgum árum.
í húsinu, sem þau keyptu, voru
Arthúr og Páll látnir vera saman í
herbergi, systurnar þrjár í öðru og
fjórir yngstu bræðurnir í hinu þriðja.
í öllum barnaherbergjunum voru koj-
ur. Donni hefur aldrei verið hrifinn
af að vera einn. Hann er svo mikil
félagsvera.
Eins og títt er á meðal systkina,
og þá kannski frekar bræðra, var ekki
óalgengt að deila um hver væri sæt-
astur, kaldastur, hraustasturo.s.frv.
En þessi hópur stóð þó alltaf saman
þegar á reyndi. Ef einhver bræðr-
anna lenti í áflogum létu hinir sig
málið varða og komu til hjálpar.
Þegar Donni var ungur var hon-
um mjög annt um að reyna að stilla
til friðar alls staðar, þar sem ólæti
voru, og tókst það jafnan enda mik-
ill sáttasemjari í eðli sínu. Og þótt
hann nú sé orðinn fullorðinn mað-
ur á hann enn mjög erfitt með að yf-
irgefa fólk sem er ósátt.
í hverri viku spilaði öll fjölskyld-
an bingó heima. Donni vildi auðvit-
að vinna en varð sár af því að amma
hans, Nana sem nú er dáin, var alltaf
heppnari en hann.
Mamma hans fór oft með systk-
inin í bílferðir, á veturna til að sjá
ÞRIÐJI
HILUTI
jólasveininn en á sumrin á strönd-
ina. Börnin voru vön að fara niður á
strönd klukkan átta um morguninn
og koma ekki heim fyrr en um kvöld-
matarleytið. Á kvöldin fóru þau
stundum í bíó eða horfðu á sjón-
varpið í svefnherbergi foreldranna
en þá sofnuðu þau eiginlega strax.
Hrekkjavakan var mikið fyrirbæri
á heimili Wahlberg fjölskyldunnar.
Krakkarnir áttu leikherbergi í kjallar-
anum sem foreldrar þeirra gerðu að
draugahúsi, dulbjuggu sig sem
drauga og reyndu að hræða krakk-
Æ S K A N 7 7