Æskan - 01.12.1994, Qupperneq 12
MED
HJARTAHLÝJUNA
EINA...
Þjóðleikhúsið sýnir leikritið Snæ-
drottninguna í vetur fyrir yngstu kyn-
slóðina. Að sjálfsögðu geta foreldr-
ar, afar og ömmur notið þess líka
eins og alls þess sem vel er gert fyrir
börn. Leikritið er byggt á kunnu æv-
intýri danska skáldsins H.C. Ander-
sens. Æskan gaf ritsafn hans út í
þremur bindum, fyrst 1971 og oft
síðan enda er þetta vinsæla og
vandaða verk góð gjöf.
Ævintýrið fjallar um átök góðs og
ills. Aðalpersónan, Gerða litla, heldur
af stað til að leita að Kára vini sínum
sem Snædrottningin hefur lokkað
burt af heimili ömmu þeirra. Hún
hefur hjartahlýjuna eina að vopni -
en hún dugar raunar löngum best.
Með hlutverk Gerðu og Kára fara
ungir leikarar, Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir og Gunnlaugur Egilsson. Þau
eru þó alls ekki óreynd því að þau
hafa oft komið fram á sviði og í kvik-
myndum. Okkur fannst tilvalið að
taka þau tali...
LEIÐIST EF EKKI ER
MIKIÐ AÐ GERA
Álfrún er 13 ára nemandi í Vestur-
bæjarskóla, í 9. bekk...
„Já, ég ætti að vera í 8. bekk eftir
aldrinum. En ég fór í tíu ára bekk en
ekki níu ára þegar ég kom úr ísaks-
skóla. Þar byrjaði ég fimm ára.“
- Þú varst líka ung þegar þú
steigst fyrst á svið í Þjóðleikhúsinu...
„Já, ég var sjö ára þegar ég lék í
Óvitunum."
- Og fleiri leikrit fylgdu í kjölfarið...
„Já, söngleikurinn Söngvaseiður
og Emil í Kattholti. Við Aníta Briem
Gunnlaugsdóttir skiptumst á að leika
ídu. Tveir strákar fóru með hlutverk
Emils.“
Gunnlaugur og Álfrún Helga
lita i Ritsafn H.C. Andersens i
heimsókn á skrifstofu
Æskunnar.
- í hvaða kvikmyndum hefur þú
leikið?
„Svo á jörðu sem á himni og
Ráðagóðu stelpunni. Ég var líka í
pínulitlu hlutverki í myndinni „Cold
Fever“. Svo lék ég í kynningarmynd-
bandi um iðnað, Lífi í tuskunum.
Hún var tekin upp í Grandaskóla og
einn bekkurinn þar, krakkar á svip-
uðum aldri og ég, komu fram í
henni. Líka Jóhann Ari Lárusson
sem lék Emil á móti mér.
Ráðagóða stelpan var tekin sum-
arið 1993 en það er ekki farið að
sýna hana enn.“
- Þú hefur verið nokkur ár í list-
námi?
„Ég hef verið að læra á píanó í
fimm ár og er að byrja fjórða árið í
ballett í Listdansskóla íslands. Ég er
á æfingum þar sex sinnum í viku,
alla daga nema sunnudaga. Við
erum að æfa fyrir sýningu sem verð-
ur í nóvember til styrktar íslenska
dansflokknum.
Ég hef farið í píanótíma tvisvar í
viku en núna einu sinni. Ég æfi mig
líka oftast á hverjum degi að spila en
gat það ekki síðustu vikurnar fyrir
sýninguna. Þá vorum við að æfa
leikritið frá klukkan tíu á morgnana
til klukkan fjögur á daginn og stund-
um líka á kvöldin."
- Er þetta ekki of mikið í einu?
„Nei, nei. Mér finnst ekkert gaman
ef lítið er að gera. Mér leiðist eigin-
lega ef það er ekki rnikið!"
- Þú gast ekki verið í skólanum í
haust vegna æfinganna?
„Nei, ég gat ekki setið í tímum en
vinkona mín hringdi alltaf til mín og
sagði mér hvað hefði verið sett fyrir
og ég lærði það heima. Rabbi og
mamma hjálpuðu mér þá ef ég skildi
ekki allt.“
12 Æ S K A N