Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 36
Þegar fjölskyldur koma saman
um jólin er gaman að bregða sér
í leiki. Við höfum iðulega lýst
leikjum í jólablöðum Æskunnar -
t.a.m. 1989 (bls. 11), 1990 (bls.
10) og 1985 (26—27).
Líklega hafa fá ykkar lesið elsta
blaðið. Þess vegna birtum við að
nýju tvo leiki úr því og bætum
öðrum við:
LEIKIR FYRIR
LATBRAGÐS-
LEIKUR
Hann er fólginn í
því að túlka eitthvert
starf, atvik eða al-
þekkt kvæði með til-
burðum og svip-
brigðum en án þess
að segja nokkuð eða
gefa frá sér hljóð. Á-
horfendur eiga að
þekkja hvað verið er
að leika.
Dæmi: Sýna á lax-
veiðimann. Hann kemur inn, byrjar á
því að látast klæða sig í klofhá stig-
vél, fer í úlpuna, tekur fram dós með
veiðiflugum og önglum, skoðar þetta
í krók og kring, nær í stöngina, tekur
hana úr hulstrinu, setur hana saman,
hnýtir flugu á línuna, snýr hjólinu, ef
til vill krækir hann önglinum í föt sín
eða fingur á sér. Að lokum skálmar
hann niður að ánni og kastar fyrir
laxinn. Svo bítur á. Hann dregur
með tilþrifum...
„SKOLLI" TEIKNAR
Nógu erfitt þykir flestum að
teikna með augun opin. En hvernig
tekst til þegar bundið er fyrir þau?
Stjórnandinn límir nokkur stór blöð
upp á vegg. Þá eiga viðstaddir hver
af öðrum að teikna eitthvað sem
fyrir þá er lagt. Þið munuð sjá að
höndin verður ekki notadrjúg við
teikninguna þegar ekki nýtur augn-
anna.
Gæta verður þess að hafa ekki
teikniáhöld sem hætt er við að smiti
úr á veggi eða festi á þá lit þó að
farið sé út fyrir blaðið.
ELTINCARLEIKUR
Tveir taka þátt í leiknum í einu.
Þeir standa hvor sínum megin við
borð. Bundið er fyrir augu þeirra.
Þeir eiga að leita hvor annars og sá
vinnur sem fyrr grípur í öxl hins. Til
þess þurfa þeir að færa sig með
fram borðinu og hlusta gaumgæfi-
lega eftir hljóði hvor frá öðrum.
Auðvitað verður að taka allt brot-
hætt af borðinu...
HVER ER ÞETTA?
Einn úr hópnum fer út úr herberg-
inu. Þar er bundið fyrir augu hans.
Síðan er hann leiddur aftur inn og
gengið með hann til hvers af öðrum.
Hann á að taka í hönd allra og nefna
hverjum hann heilsar. Þegar hann
hefur getið sér rétt til um einhvern
tekur sá við hlutverki hans.
Auðveldast er að átta sig á hver
börnin eru. Þess vegna er sjálfsagt að
ganga fyrst til þeirra fullorðnu - ef fólk
á ýmsum aldri tekur þátt í leiknum.
TEYOANLECT
Teygju er smeygt yfir höfuð þátt-
takenda og hún sett á nefbroddinn
eða kinnbeinin. Keppnin er fólgin í
því að koma teygjunni niður á háls
án þess að nota hendur. Andlits-
hreyfingarnar verða eflaust marg-
breytilegar!
KAPPHLAUP...
Bolti er settur milli hnjáa og kapp-
hlaupið hefst. Ef hann dettur verður
að byrja að nýju frá rásmarki.
Þyngja má leikinn með því að
ætla „hlaupurunum11 að renna skeið-
ið með skeið í munni og eggi í!
AÐ MATA
Tveir taka þátt í leiknum í einu. Þeir
eiga að sitja samsíða við borð með
bundið fyrir augu. Hvor þeirra fær
disk og skeið og á að mata hinn.
Á diskana má setja kornhringi eða
annað sem ekki gerir óhreint þó að
það rati ekki rétta leið. Ef kosið er að
hafa á þeim skyr, hafragraut eða eitt-
hvað slíkt verður að sveipa þátttak-
endur í lök og gjarna breiða yfir borð
og stóla...
3 6 Æ S K A N